Lena skrifaði:
Hej igen, Ja men eftersom man sedan skall börja varvet med en raglanmaska som ju är rät och avsluta varvet med en raglanmaska så hamnar ju dessa på avigmaskorna i resåren. Man skall väl då börja resåren med en rätmaska. Hälsningar Lena
16.11.2026 - 21:48
Lena skrifaði:
Hej igen, och tack för svaret, men det måste ändå stå fel i mönstret att man skall börja med en avig (sticka resår så här: 1 avigmaska, * 2 rätmaskor, 2 avigmaskor *, sticka från *-*)när man sedan börjar öka för raglan då kommer ju raglan linjen i två aviga m från resåren. Jag har nu börjat sticka även st. s och det blir ju samma. man måste väl börja varvet med en rät m istället för som det står nu en avig m . Hälsningar Lena
10.11.2026 - 16:22DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Men det står jo så her: Sticka resår så här: 1 avigmaska, * 2 rätmaskor, 2 avigmaskor *, sticka från *-* tills det ÅTERSTÅR 3 maskor på varvet, sticka 2 rätmaskor och 1 avigmaska. mvh DROPS Design
16.11.2026 - 09:34
Lena skrifaði:
Hej, Jag tycker det är fint när resårens 2 rätmaskor från halskanten följer de två rätmaskorna i raglanlinjen, men då skall man väl börja med en rätmaska istället för en avigmaska som det står i mönstret? (storlek xs) eller tänker jag fel? Hälsningar Lena
08.11.2026 - 21:15DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Du tenker riktig, du må bare tilpasse det slik at 1.raglanøkningen blir etter 1. maske, som da må være en rettmaske og siste raglanøkning blir før 1. maske (som også er en rettmaske). mvh DROPS Design
09.11.2026 - 11:26
Birgit skrifaði:
Warum soll man wenn das Rumpfteil fertig ist beim Bündchen nochmal 32 Maschen aufnehmen?
03.11.2026 - 20:37DROPS Design svaraði:
Liebe Birgit, man braucht mehr Maschen für das Bündchen mit der Nadel Nr 3 als fürs Glattrechts mit der Nadel Nr 4,5 deshalb wird man vor Bündchen zunehmen (so wird die untere Kante auch die Arbeit nicht zusammenziehen). Viel Spaß beim Stricken!
04.11.2026 - 08:27
E Bou skrifaði:
Bonjour, Auriez-vous des conseils pour ajouter une réhausse en rangs raccourcis ? Merci d'avance! Bien cordialement
03.11.2026 - 12:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bou, vous pouvez vous inspirer de cette vidéo pour ajouter des rangs raccourcis et une réhausse dos. Bon tricot!
04.11.2026 - 07:37
Esther skrifaði:
Hi, I am interested in this pattern, but have a question: The pattern requires needles Nr. 3 and 4.5, but noticed that the suggested needle size for "Nepal" is 5.5 mm diameter. Which one is the correct needle size? Does it work if you use a much thinner needle for thicker yarn? all the best, E.
25.10.2026 - 15:15DROPS Design svaraði:
Dear Esther, the recommended needle size in a yarn is for general use. However, we can also use smaller or larger needles, depending on the desired gauge and texture. For this pattern, we have used the 3mm and 4.5mm needles. The 3mm needles are only for the rib sections, while the 4.5mm needles are not that much thinner than the recommended size and will be the mainly used needles, to get a tighter stocking stitch than the one obtained with 5.5mm needles. Happy knitting!
25.10.2026 - 21:25
Dorete skrifaði:
Hej Hvor meget “space” er der i denne trøje ? Jeg vil nemlig ikke ha’ en bluse der sidder meget snæver 😇 Mvh Dorete
01.10.2026 - 09:21DROPS Design svaraði:
Hej, Tag målene på en bluse du synes om at have på, så kan du sammenligne med målene i måleskitsen og vælge den størrelse som har samme mål :)
01.10.2026 - 13:07
Snow Dream Sweater#snowdreamsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-2 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-96-96-96-104-104-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja brugðið , * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 9-9-9-10-10-11-11 cm. Nú er stroffið brotið inn að röngu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur. Prjónið síðan næstu umferð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja í umferð er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú er tvöfaldur kantur í hálsmáli sem mælist ca 4-4-4-4½-4½-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-34-34-34-38-38-40 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í byrjun umferðar, teljið 20-20-20-20-24-24-24 (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-28-28-28-28-28-32 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-20-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru eftir 24-28-28-28-28-28-32 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón í hring og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar - lesið útskýringu að ofan um hvernig á að auka út. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út þegar 1 lykkja hefur verið prjónuð eftir 1. merki og í lok umferðar er aukið út þegar 1 lykkja er eftir á undan 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-6-8-9-17-13-13 sinnum (= 10-12-16-18-34-26-26 umferðir prjónaðar) = 128-144-160-168-240-208-216 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – engar lykkjur eru auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 10-10-10-11-7-11-12 sinnum (= 40-40-40-44-28-44-48 umferðir prjónaðar = 10-10-10-11-7-11-12 sinnum aukið út á ermum og 20-20-20-22-14-22-24 sinnum aukið út á framstykki/bakstykki) = 248-264-280-300-324-340-360 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 25-26-28-31-31-35-37 sinnum á framstykki/bakstykki og 15-16-18-20-24-24-25 sinnum á ermum. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1-1-1-1-5-5-5 lykkjur sléttprjón (= þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 48-50-54-58-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-82-86-92-100-108-116 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-58-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 75-81-85-91-95-103-111 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-188-200-216-236-256-276 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-52-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 32-32-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 204-220-236-252-276-300-324 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-55-57-58-60-62 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-50-54-58-62-62-64 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-68-74-80-82-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 1-2-2-2-2-2-2 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur með 5-5-7-5-4-4-3 cm millibili 2-2-4-6-8-8-9 sinnum = 52-54-56-58-60-62-64 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-38-36-36-34-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-10-12-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-64-68-68-72-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-44-44-42-43-41-39 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowdreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.