Nicoletta skrifaði:
Buongiorno, non mi sono chiare due cose, la prima: dopo aver lavorato il bordo del collo si dice di fare un ferro a maglia diritta, però da quanto si vede nell'immagine, sembra si debba mantenere un punto a rovescio, due a diritto e uno a rovescio per la separazione delle trecce. La seconda: quante trecce totali devo avere, quattro? È corretto impostarle nei punti del davanti e del dietro? Grazie mille.
16.09.2026 - 13:25DROPS Design svaraði:
Buongiorno Nicoletta, dopo il bordo a coste deve inserire i segnapunti e proseguire a maglia rasata. Le trecce sono indicate dai diagrammi e descritte nelle spiegazioni. Buon lavoro!
20.09.2026 - 09:11
Kadi skrifaði:
Tere, pildi järgi paistab olevat kaeluse soonik 1 pahempidi, 2 parempidi või 2 pahempidi, 2 parempidi. Aga juhistes kirjas 1 pahempidi, 1 parempidi. Selle skeemi järgi raglaan kaeluse soonikut ei jätka. Mis oleks õige variant?
18.08.2026 - 16:37DROPS Design svaraði:
Tere Kadi! Juhendit uuendatud.
31.08.2026 - 16:20
Anna skrifaði:
Is there a similar pattern in adult sizes?
12.08.2026 - 19:13DROPS Design svaraði:
Hi Anna, please see Drops models 255-7, 255-19, 259-7. Happy knitting!
12.08.2026 - 19:19
Sunny Laugh Sweater#sunnylaughsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-33 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptinguna yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðnar, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 66-72-72-78-78-78-84 lykkjur á sokkaprjóna / hringprjón 3,5 með DROPS Big Merino. Prjónið stroff hringinn: 1 lykkja slétt, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 2 lykkjur slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið svona þar til kantur í hálsmáli mælist 2½-2½-3-3-3½-3½-4 cm. Byrjun umferðar er við miðju að aftan og umferðin byrjar á milli 2 sléttra lykkja. Setjið 1 merki við byrjun umferðar, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 4 lykkja, þessar 4 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar eins og í stroffi, þ.e.a.s. prjónað er þannig: 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið (= 4 lykkjur). Passið uppá að merkin séu sett á milli 2 lykkja slétt. Teljið 9-9-9-12-12-12-12 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið 1. merki á undan fyrstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 18-21-21-24-24-24-27 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru 9-12-12-12-12-12-15 lykkjur á eftir síðasta merki (= ca hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, aukið er út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1 (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 4 laskalykkjur eins og áður (merkið er staðsett mitt á milli þessara 4 lykkja), prjónið A.2 (= 2 lykkjur fleiri) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið slétt út umferðina (= 16 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt – laskalykkjurnar eru prjónaðar 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið slétt – laskalykkjurnar eru prjónaðar 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið eins og áður. UMFERÐ 4: Prjónið slétt – laskalykkjurnar eru prjónaðar 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 5-6-6-7-7-8-8 sinnum (= 20-24-24-28-28-32-32 umferðir prjónaðar) = 146-168-168-190-190-206-212 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú er einungis aukið út á framstykki og bakstykki þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1 (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 4 laskalykkjur eins og áður (merkið er mitt á milli þessara 4 lykkja), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið 4 laskalykkjur eins og áður (merkið er mitt á milli þessara 4 lykkja), prjónið A.2 (= 2 lykkjur fleiri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt – laskalykkjurnar eru prjónaðar 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið slétt – laskalykkjurnar eru prjónaðar 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið eins og áður. UMFERÐ 4: Prjónið slétt – laskalykkjurnar eru prjónaðar 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2-1-2-1-2-2-2 sinnum (= 8-4-8-4-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 162-176-184-198-206-222-228 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og laskalykkjur eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 13-13-15-15-16-18-19 cm frá merki við miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 24-24-26-29-31-33-33 lykkjur slétt (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 33-37-37-41-41-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 48-51-55-58-62-66-69 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 33-37-37-41-41-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 24-27-29-29-31-33-36 lykkjur í slétt (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-114-122-128-136-144-150 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 24-26-28-30-31-33-39 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-21-22-22-23-24-24 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 126-135-144-150-159-168-174 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 28-30-32-34-36-38-44 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 32-34-36-38-40-42-48 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 33-37-37-41-41-45-45 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hlið á stykki á hringprjón 2,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 39-43-43-47-47-51-51 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur alls 3-4-4-5-4-5-4 sinnum með 6-6-6-6-7-7-10 cm millibili = 33-35-35-37-39-41-43 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 19-24-27-31-34-37-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-7-7-8-6-7-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 39-42-42-45-45-48-51 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-28-31-35-39-42-46 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnylaughsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.