Carine skrifaði:
Hallo, ik zou graag deze trui willen breien de Snow Funfetti Sweater voor mijn kleindochtertje, ik kan breien maar geen grote ervaren breidster, ik heb nooit met rondbreinaalden gebreid alleen eens een kraag, gaat dit lukken voor mij of is dit niveau al iets te hoog Alvast bedankt
02.11.2026 - 17:42DROPS Design svaraði:
Dag Carine,
Als je geduld hebt dan zou het moeten lukken. Het kan wel heel erg wennen zijn om met rondbreinaalden te breien, dus daar kan wel wat doorzettingsvermogen voor nodig zijn. Als je er eenmaal aan gewend bent is het heel handig omdat je het werk niet in elkaar hoeft te naaien. Bekijk eventueel de lessen en video's goed en lees het patroon goed door van te voren. Maak een proeflapje en zorg dat de stekenverhouding klopt. Mocht je vragen hebben, dan kun je altijd een bericht bij het patroon posten.
04.11.2026 - 17:59
Judesbois skrifaði:
Bonjour, J'aimerais avoir une précision : Une fois les augmentations terminées nous devons tricoter jusqu'à atteindre 15cm. Est ce 15cm incluant le col ou non ? J'ai du mal à comprendre le patron , l'empiècement doit mesurer 18 cm avec le col ou 15 sans le col ? Merci
09.10.2026 - 06:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Judesbois, vous devez mesurer les 15 cm (2ème et 3ème taille) à partir du marqueur que vous avez mis au milieu du devant, juste après les côtes du col, autrement dit, les 15 cm sont sans le col. Les 3 cm à droite dans le schéma correspondent à la hauteur de l'épaule quand on plie l'ouvrage en double, ainsi 3 cm d'épaule + 15 cm d'empiècement (sans le col) = 18 cm de l'épaule jusqu'en bas de l'emmanchure. Bon tricot!
09.10.2026 - 15:52
Ann-Britt skrifaði:
Jag förstår inte hur jag ska lägga upp maskorna efter halsen alltså efter resåren. Hur placerar jag markören
29.09.2026 - 12:03DROPS Design svaraði:
Hej Ann-Britt, den første markør du sætter, skal være midt foran til at måle fra. Omgangen starter ved raglanovergang 1 som er bagpå lige før højre ærme, her sætter du raglan-markør 1 og så fortsætter du at sætte de andre ifølge opskriften :)
01.10.2026 - 09:50
Lene skrifaði:
Der er en fejl i inddeling til raglan i størrelse 5/6 år inddeling 15m 31 m 15 m 31 m =94 m og der er 96 m i halskanten.
25.09.2026 - 16:10DROPS Design svaraði:
Hei Lene. Nei, ingen feil. Du har glemt å telle maskene merkene sitter i. 1+15+1+31+1+15+1+31 =96 masker. Dessuten er 15m 31 m 15 m 31 m =92 m, ikke 94 m. Og legger du til de 4 maskene med merket blir det 92 + 4 = 96 masker. mvh DROPS Design
28.09.2026 - 14:23
Hanne skrifaði:
Model bm-045-bn Når arbejdet skal deles til ryg/forstykke og ærmer står der at det skal måle 15 cm fra mærket er det incl ribkant eller efter ribkant
14.09.2026 - 13:57DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Under HALSKANT står det: Sett 1 merke etter de første 31-32-33-34-35-36-37 maskene på omgangen (= ca midt foran), arbeidet skal måles fra dette merket. Og når det står slik: strik videre i glatstrik uden at tage ud, til arbejdet måler 14-15-15-16-17-18-19 cm fra mærket midt foran, altså det måles fra mærket midt foran, mvh DROPS Design
14.09.2026 - 15:04
Jeanette skrifaði:
Dere skriver i FAQ at eet står oppgitt antall gram som trengs til hver oppskrift, men det jeg ser det ikke. Hvilke tall indikerer dette? Det er for kryptisk for meg.
11.09.2026 - 04:24DROPS Design svaraði:
Hei Jeanette, Under GARN på toppen av oppskriften, står antall gram for hver størrelse. Tallrekken begynner med den minste størrelsen og går til den største. Hilsen Drops Team.
11.09.2026 - 06:16
Sigrid skrifaði:
Hallo! Is it possible to knit the neck as a rolled-neck-edge with same number of stitches? Thank you
05.09.2026 - 09:40
Alicja skrifaði:
Gdzie najlepiej dodać oczka w dolnym ściągaczu przód/tył? Czy pomiędzy dwoma oczkami prawymi, tak żeby w następnym okrążeniu przerobić narzut na lewo?
04.09.2026 - 08:07DROPS Design svaraði:
Witaj Alicjo, gdy równomiernie dodajemy oczka w pierwszym okrążeniu ściągacza, należy je dodawać w miejscach, gdzie będą później przerabiane na lewo. Pozdrawiamy!
04.09.2026 - 10:03
Rechte Schulter?! skrifaði:
Hallo, ich habe die Anleitung auf deutsch gelesen. Dort stand, das der Rundenanfang an der rechten Schulter hinten ist. Von der Aufteilung der Raglanmaschen eine Zeile weiter unten geht aber hervor, dass der Rundenanfang wohl an der linken Schulter hinten ist? Sonst würde die Aufteilung Schulter - Vorn - Schulter - Hinten doch keinen Sinn machen. Das hat mir am anfang etwas Kopfzerbrechen bereitet…
26.08.2026 - 15:07DROPS Design svaraði:
Hallo, die Runden beginnen mit der rechten Schulter (von oben nach unten gestrickt), bei der Verteilung wird die 1. Masche der Masche gestrickt, da sie jetzt zum Rückenteil gehört, die Maschen vom rechten Ärmel legt man still, dann neuen Maschen anschlagen, Maschen vom Vorderteil stricken, die Maschen vom linken Ärmel legt man still, dann neuen Maschen anschlagen, dann strickt man die Maschen vom Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!
26.08.2026 - 16:53
Pamela skrifaði:
This Snow Funfetti Sweater pattern, child age 3-4, has me casting on 92 stitches and after the ribbing it has me separating marker 1 -15, marker 2 -29, marker 3 - 15 s, marker 4 - 29 st for a total of 88 stitches, however I have 92 stitches for the ribbing. The markers show 88 stitches which is for a size 2 sweater. Can you clarify please. Fondly, Pam
22.08.2026 - 06:18DROPS Design svaraði:
Dear Pamela, note that the markers should be each inserted in one stitch (and not between stitches), so that you will have: 1+15+1+29+1+15+1+29=92. Happy knitting!
24.08.2026 - 08:00
Snow Funfetti Sweater#snowfunfettisweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-29 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptinguna yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðnar, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan, setjið 1 merki eftir fyrstu 31-32-33-34-35-36-37 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Aukið nú út fyrir LASKALÍNU hvoru megin við laskalykkjurnar jafnframt því sem prjónað er sléttprjón í hring – lesið útskýringuna að ofan á hvernig á að auka út og prjóna þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 17-19-21-22-23-24-24 sinnum (= 34-38-42-44-46-48-48 umferðir prjónaðar) = 224-244-264-276-288-300-304 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú er einungis aukið út á framstykki og bakstykki þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 6-6-5-6-6-6-7 sinnum (= 12-12-10-12-12-12-14 umferðir prjónaðar) = 248-268-284-300-312-324-332 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-25-26-28-29-30-31 sinnum á framstykki/bakstykki og 17-19-21-22-23-24-24 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-18-19 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu lykkjuna slétt (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 49-53-57-59-61-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-81-85-91-95-99-103 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 49-53-57-59-61-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 74-80-84-90-94-98-102 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-178-186-198-210-218-230 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 8-8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 26-28-30-32-33-35-41 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 38-40-44-44-46-50-52 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 204-218-230-242-256-268-282 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 29-31-33-35-37-39-45 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 32-34-36-38-40-42-48 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 49-53-57-59-61-63-63 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hlið á stykki á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-61-65-67-71-73-75 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-4-5-5-5½-6-8 cm alls 4-5-5-5-6-6-5 sinnum = 49-51-55-57-59-61-65 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 18-23-27-31-33-37-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-11-13-15-15-15 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 60-62-66-70-74-76-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 21-26-30-34-37-41-45 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowfunfettisweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.