Sand Whisper Top#sandwhispertop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr DROPS Bomull-Lin. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni, sléttprjóni og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-7 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 LYKKJUR MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju undir handvegi. Fækkið um eina slétta lykkju og 1 brugðna lykkju í annað hvert skipti þannig að nýja lykkjan passi inn í stroffprjónið, þ.e.a.s. 3 lykkjur verða að 1 lykkju. Byrjið úrtöku þegar 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju undir handvegi og fækkið lykkjum eins og útskýrt er að neðan: FÆKKIÐ LYKKJUM ÞANNIG AÐ ÞAÐ VERÐUR 1 LYKKJA SLÉTT: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). Nýja lykkjan er nú miðjulykkjan undir handvegi. FÆKKIÐ LYKKJUM ÞANNIG AÐ ÞAÐ VERÐUR 1 LYKKJA BRUGÐIÐ: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Nýja lykkjan er nú miðjulykkjan undir handvegi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er bakstykkið og framstykkið prjónað hvort fyrir sig fram og til baka niður að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað í hring niður á við. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSTRI HLÝRI FRAMSTYKKI: Fitjið upp 11-11-11-13-13-15-15 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Bomull-Lin. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 LYKKJUR I-CORD - sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 fram og til baka í 3-4-4-5-6-7-7 cm - síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú á að auka út fyrir hálsmáli, prjónið stroffprjón eins og áður jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp í lok hverrar umferðar frá röngu – nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum, 2 lykkjur 2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu (= 10 umferðir prjónaðar). Það eru 20-20-20-22-22-24-24 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn og prjónið hægri hlýrann eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI HLÝRI FRAMSTYKKI: Fitjið upp 11-11-11-13-13-15-15 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 fram og til baka í 3-4-4-5-6-7-7 cm - síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú á að auka út fyrir hálsmáli, prjónið stroffprjón eins og áður jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp í lok hverrar umferðar frá réttu – nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum, 2 lykkjur 2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu (= 10 umferðir prjónaðar). Það eru 20-20-20-22-22-24-24 lykkjur í umferð. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli á milli hægri og vinstri hlýra, prjónið þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður. Setjið 1 merki í umferð á undan næstu lykkju, prjónið 10 lykkjur slétt, fitjið upp 11-13-15-15-15-15-15 nýjar lykkjur í umferð, prjónið yfir vinstri hlýra frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur slétt, setjið 1 merki í umferð á undan næstu lykkju, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord = 51-53-55-59-59-63-63 lykkjur fyrir framstykki. FRAMSTYKKI: = 51-53-55-59-59-63-63 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur stroffprjóni og 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8-9-9-10-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti á toppi á öxl. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Aukið nú út lykkjur á hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, prjónið brugðið þar til 10-10-10-12-12-14-14 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 9-9-10-8-8-4-2 sinnum (= 18-18-20-16-16-8-4 umferðir prjónaðar) = 69-71-75-75-75-71-67 lykkjur. Aukið síðan út í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á ekki við um stærðir XS og S) og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 0-0-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 0-0-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 0-0-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 0-0-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-1-3-4-8-11 sinnum (= 0-0-2-6-8-16-22 umferðir prjónaðar) = 69-71-79-87-91-103-111 lykkjur. Aukið hefur verið út alls 9-9-12-14-16-20-24 sinnum í hvorri hlið. Framstykkið mælist ca 16-17-18-19-21-22-23 cm frá uppfitjunarkanti í toppi á öxl. Klippið þráðinn og setjið framstykkið á hjálparprjón eða þráð. Prjónið bakstykkið eins og útskýrt er hér að neðan. HÆGRI HLÝRI BAKSTYKKI: Fitjið upp 11-11-11-13-13-15-15 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar). Nú á að auka út fyrir hálsmáli, prjónið stroffprjón eins og áður jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp í lok hverrar umferðar frá röngu – nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Fitjið upp 1 lykkju 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu (= 4 umferðir prjónaðar). Það eru 14-14-14-16-16-18-18 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn og prjónið vinstri hlýrann eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI HLÝRI BAKSTYKKI: Fitjið upp 11-11-11-13-13-15-15 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt þar til 1 lykkja eru eftir í umferð, endið með 1 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar). Nú á að auka út fyrir hálsmáli, prjónið stroffprjón eins og áður jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp í lok hverrar umferðar frá réttu – nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Fitjið upp 1 lykkju 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu (= 4 umferðir prjónaðar). Það eru 14-14-14-16-16-18-18 lykkjur í umferð. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli á milli vinstri og hægri hlýra, prjónið þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður. Setjið 1 merki í umferð á undan næstu lykkju, prjónið 4 lykkjur slétt, fitjið upp 23-25-27-27-27-27-27 nýjar lykkjur í umferð, prjónið yfir hægri hlýra frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, setjið 1 merki í umferð á undan næstu lykkju, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord = 51-53-55-59-59-63-63 lykkjur fyrir bakstykki. BAKSTYKKI: = 51-53-55-59-59-63-63 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur stroffprjóni og 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8-9-9-10-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti á toppi á öxl – nýjar lykkjur sem fitjaðar eru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Aukið nú út lykkjur á hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, prjónið brugðið þar til 10-10-10-12-12-14-14 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 9-9-10-8-8-4-2 sinnum (= 18-18-20-16-16-8-4 umferðir prjónaðar) = 69-71-75-75-75-71-67 lykkjur. Aukið síðan út í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á ekki við um stærðir XS og S) og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 0-0-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 0-0-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 0-0-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 0-0-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, endið með 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-1-3-4-8-11 sinnum (= 0-0-2-6-8-16-22 umferðir prjónaðar) = 69-71-79-87-91-103-111 lykkjur. Aukið hefur verið út alls 9-9-12-14-16-20-24 sinnum í hvorri hlið. Bakstykkið mælist ca 16-17-18-19-21-22-23 cm frá uppfitjunarkanti í toppi á öxl og er jafnlangt og framstykkið. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð frá réttu er bakstykkið og framstykkið sett saman í fram- og bakstykki þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið, fitjið upp 5-9-9-9-13-13-17 lykkjur (= miðja undir handveg), prjónið yfir framstykkið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í stroffprjóni eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið, fitjið upp 5-9-9-9-13-13-17 lykkjur (= miðja undir handveg) = 152-164-180-196-212-236-260 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-180-196-212-236-260 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju bakstykkisins. Prjónið eins og áður fram að merki (= miðja að aftan), umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Fækkið lykkjum í miðjunni undir hvorum handvegi á sama tíma og lykkjur eru auknar út í hvorri hlið innan við 4 merkin í 4. hverri umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón með stroffprjóni í hliðum eins og áður. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón með stroffprjóni í hliðum eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón með stroffprjóni í hliðum eins og áður. UMFERÐ 4: Prjónið slétt fram að fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju fyrir miðju undir handvegi, prjónið 3 lykkjur saman eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, prjónið stroffprjón eins og áður að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju fyrir miðju undir handvegi, prjónið 3 lykkju saman eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, prjónið stroffprjón eins og áður að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur fleiri og 4 lykkjur færri) = 152-164-180-196-212-236-260 lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 3-5-5-5-7-7-9 sinnum (= 12-20-20-20-28-28-36 umferðir prjónaðar) = 152-164-180-196-212-236-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón og stroffprjón eins og áður þar til stykkið mælist 42-44-46-48-49-51-53 cm frá uppfitjunarkanti í toppi á öxl. Færið byrjun umferðarinnar að síðasta merkinu í umferðinni (þ.e.a.s. á eftir strofflykkjum í vinstri hlið á flíkinni). Skipið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið slétt fram að fyrsta merki samtímis sem aukið er út um 2-4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir, prjónið stroffprjón eins og áður og sléttprjón fram að næsta merki samtímis sem aukið er út um 2-4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir, prjónið stroffprjón eins og áður út umferðina = 156-172-188-204-224-248-272 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) í hringinn og passið að stroffprjónið í hliðum passi við stroffprjón yfir eininguna sem prjónað er í sléttprjóni. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Toppurinn mælist 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. FRÁGANGUR: Saumið hlýrana saman – saumið lykkju á móti lykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 82-88-92-94-96-98-98 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandwhispertop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.