Peach Whisper Cardi#peachwhispercardi |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með rúllukanti, i-cord, hringlaga berustykki og gatamynstri á berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-21 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-8-8-8½-8½ cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. UPPHÆKKUN: Til að gera peysuna aðeins hærri aftan í hnakkanum þegar prjónað er í kringum berustykkið, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er hér að neðan. Sleppið þessum kafla ef þið viljið ekki upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja að aftan), lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið næstu 6 umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-15-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði fyrir miðju að aftan, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga):Prjónið 24-26-28-30-32-34-36 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 36-39-42-45-48-51-54 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 48-52-56-60-64-68-72 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 60-65-70-75-80-85-90 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 72-78-84-90-96-102-108 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Prjónið slétt út umferðina (kantur að framan er prjónaður eins og áður), snúið við og prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 (mynsturteikning A.5 á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 103-107-111-115-117-121-125 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Paris. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur) og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 4 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 5 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 6 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 7 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hlið stykkisins, stykkið á að vera mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skipið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferðina frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 89-93-97-101-103-107-111 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 12-18-19-25-28-29-30 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 115-125-130-140-145-150-155 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan við hnakka – lesið útskýringu að ofan, haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki upphækkun, prjónaðu eins og útskýrt er að neðan. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2½-2½-3½-3½-2½-3½-4½ cm frá merki, aukið út lykkjur á berustykki með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: A.1: Prjónið kant að framan eins og áður, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 alls 20-22-23-25-26-27-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið kant að framan eins og áður. Haldið áfram svona þar til A.1 hefur verið prjónað til loka = 155-169-176-190-197-204-211 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan þar til stykkið mælist 6½-6½-7½-7½-6½-7½-8½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: A.2: Prjónið kant að framan eins og áður, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 alls 20-22-23-25-26-27-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið kant að framan eins og áður. Haldið áfram svona þar til A.2 hefur verið prjónað til loka = 195-213-222-240-249-258-267 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan þar til stykkið mælist 10½-10½-11½-11½-10½-11½-12½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: A.3: Prjónið kant að framan eins og áður, 1 lykkja slétt, prjónið A.3 alls 20-22-23-25-26-27-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið kant að framan eins og áður = 215-235-245-265-275-285-295 lykkjur. Haldið áfram svona þar til A.3 hefur verið prjónað til loka. Prjónið sléttprjón og kanta að framan þar til stykkið mælist 14½-14½-15½-15½-14½-15½-16½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: A.4: Prjónið kant að framan eins og áður, 1 lykkja slétt, prjónið A.4 alls 20-22-23-25-26-27-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið kant að framan eins og áður = 235-257-268-290-301-312-323 lykkjur. Haldið áfram svona þar til A.4 hefur verið prjónað til loka. Mynstur með útaukningu hefur nú verið prjónað til loka í stærð XS, S, M og L – prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð XL, XXL og XXXL er prjónað sléttprjón og kanta að framan þar til stykkið mælist 0-0-0-0-18½-19½-20½ cm frá merki, síðan er aukið út í síðasta skipti í A.5 eins og útskýrt er að neðan (= frá réttu). A.5 Prjónið kant að framan seins og áður, 1 lykkja slétt, prjónið A.5 alls 0-0-0-0-26-27-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið kant að framan eins og áður = 235-257-268-290-327-339-351 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.5 hefur verið prjónað til loka – prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið prjónaðar til loka, prjónið sléttprjón og kanta að framan JAFNFRAMT því sem aukið er út um 7-9-10-16-3-7-15 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð frá réttu (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 242-266-278-306-330-346-366 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-22-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT og næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 41-45-47-51-54-58-62 kantlykkjur að framan og sléttprjón eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-50-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 68-76-80-88-94-102-110 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-50-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), og prjónið síðustu 41-45-47-51-54-58-62 lykkjur í sléttprjóni og kant að framan eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-222-242-262 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 42-44-46-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 29-29-33-33-37-41-45 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 191-207-223-239-259-283-307 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, eða fellið af með ítalskri affellingu. Peysan mælist 45-47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-50-52-58-64-64-66 lykkjur af erminni af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni - sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 52-56-60-66-74-76-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 2-2-2-2-2-1-0 sinnum = 48-52-56-62-70-74-80 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 12-12-10-12-10-9-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-10-10-12-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-66-72-82-88-94 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 15-15-13-15-14-13-11 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peachwhispercardi eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.