DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 garntegundum
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 792.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8712.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Spring & Summer 2026

Spell of Summer Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni, v-hálsmáli og i-cord. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 268-17

#spellofsummercardigan

DROPS Design: Mynstur l-184
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-700-800-850-950 gr litur 11, Beige

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 5 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni með prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 792.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8712.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar lykkjurnar eru taldar þá er uppslátturinn ekki talinn sem ein lykkja.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 2 lykkjur í slétta klukkuprjónslykkju (= slétt lykkja og uppsláttur) með því að prjóna 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en takið vel eftir að útauknar lykkjur eru ekki með uppslætti í næstu umferð og eru því prjónaðar stakar í fyrsta skipti sem þær eru prjónaðar.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu frá réttu ca 1 cm eftir að útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið.
Fellið síðan af fyrir 4 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-8½-8½-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Það eru eftir ca 5-4-5-4-5-6-6 cm neðst á fram- og bakstykki á eftir síðasta hnappagatinu.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar):
Úrtakan er gerð í umferð þar sem uppsláttur og sléttar lykkjur eru prjónaðar slétt saman.
Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með merki þannig:
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið að fyrstu sléttu klukkuprjónslykkjunni á eftir lykkju með merki í:
Lyftið fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið að næst síðustu sléttu klukkuprjónslykkjunni á undan lykkju með merki í:
Lyftið fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lykkjunni og uppslættinum sem er næst brugðnu lykkjunni með merki yfir lykkjuna sem var lyft til baka yfir á vinstri prjón, í lokin er lykkjunni sem eftir er yfir á hægri prjón (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum.
Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvert fyrri sig niður að handveg og prjónað er ofan frá og niður.
Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka fyrir ermarkúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Bomull-Lin.
Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið fram og til baka í klukkuprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Endurtakið síðan UMFERÐ 2 og 3 þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umferðir – þ.e.a.s. síðasta umferðin er prjónuð frá röngu og stykkið mælist ca 2 cm. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón og prjónið vinstra bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur á hringprjón 5.
Prjónið á sama hátt og hægri öxl bakstykki (= 8 umferðir prjónaðar) – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð er prjónað yfir báðar axlirnar samtímis sem lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur á vinstra bakstykki eins og áður, fitjið upp 21-21-23-23-23-25-25 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 25-27-27-29-31-33-35 lykkjur frá hægra bakstykki eins og áður = 71-75-77-81-85-91-95 lykkjur.
Prjónið síðan klukkuprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Frá réttu byrjar umferðin alltaf með 1 lykkju í garðaprjóni með tilheyrandi 1 sléttri klukkuprjónslykkju - en takið vel eftir að nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru ekki með uppslætti í fyrstu umferð og eru því prjónaðar stakar í fyrstu umferð.
Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu.
Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5.
Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan.
Prjónið svona þar til kantur að framan mælis 7-7-7½-7½-7½-8-8 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu.
Á eftir síðustu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 25-27-27-29-31-33-35 nýjar lykkjur fyrir öxl í lok umferðar = 32-34-34-36-38-40-42 lykkjur.

Prjónið klukkuprjón fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Endurtakið síðan umferð 2 og 3.

Þegar stykkið mælist 7-8-7-8-9-10-10 cm frá uppfitjunarkanti á öxl byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu – auka á út í næst síðustu sléttu klukkuprjónslykkju á undan kanti að framan, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið þannig:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið eins og áður þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð (þ.e.a.s. það eru eftir 7 kantlykkjur að framan, 2 sléttar klukkuprjónslykkjur og 2 brugðnar klukkuprjónslykkjur), aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju (þ.e.a.s. aukið er út í slétta klukkuprjónslykkju), prjónið út umferðina eins og áður (= 2 lykkjur fleiri).
Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 5-5-6-6-6-6-6 sinnum = 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur.
Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið er eftir ca 1 cm prjónað HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan – prjónað er klukkuprjón og kantur að framan eins og áður án útaukningar þar til framstykkið mælist 19-20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn, látið lykkjurnar hvíla á hjálparprjóni og prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5.
Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan.
Prjónið svona þar til kantur að framan mælis 7-7-7½-7½-7½-8-8 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu.
Á eftir síðustu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 25-27-27-29-31-33-35 nýjar lykkjur fyrir öxl í lok umferðar = 32-34-34-36-38-40-42 lykkjur.

Prjónið klukkuprjón fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= rétta):
Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= ranga):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Endurtakið síðan umferð 2 og 3.

Þegar stykkið mælist 7-8-7-8-9-10-10 cm frá uppfitjunarkanti á öxl byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu – auka á út í 2. sléttu klukkuprjónslykkjuna á eftir kanti að framan, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur klukkuprjón eins og áður (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 brugðin klukkuprjónslykkja), aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju (þ.e.a.s. aukið er út í slétta klukkuprjónslykkju), prjónið út umferðina eins og áður (= 2 lykkjur fleiri).
Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 5-5-6-6-6-6-6 sinnum = 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur.
Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, prjónið klukkuprjón og kant að framan eins og áður án útaukningar þar til framstykkið mælist 19-20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð frá réttu eru stykkin sameinuð í fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður yfir 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 1-1-3-5-7-11-15 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir 71-75-77-81-85-91-95 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 1-1-3-5-7-11-15 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur frá hægra framstykki = 157-165-175-187-199-217-233 lykkjur.
Prjónið síðan klukkuprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður – nýjar lykkjur undir hvorri ermi eru prjónaðar inn í mynstur, en takið vel eftir að nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir hvorri ermi eru ekki með uppslætti og eru því prjónaðar stakar í fyrstu umferð.

Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. Fellið af með sléttum lykkjum – til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að fella uppsláttinn af eins og venjuleg lykkja.

FRÁGANGUR-1:
Saumið axlasaumana.

ERMAR:
Prjónið upp 53-55-57-61-63-67-69 lykkjur með hringprjón 5 innan við lykkju í garðaprjóni meðfram framstykki og bakstykki – ATH: Lykkjur eru ekki prjónaðar upp í lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermi, klaufin undir ermakúpunni er síðar saumuð við lykkjur á fram- og bakstykki sem fitjaðar voru upp undir ermum.
Fyrst er prjónuð ermakúpa fram og til baka í klukkuprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= rétta):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með að prjóna uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= ranga):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 4 (= rétta):
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 1-1-2-3-4-6-9 sinnum (þ.e.a.s. prjónaðar hafa verið alls 4-4-6-8-10-14-20 umferðir).

Nú hefur ermakúpan verið prjónuð til loka. Í lok síðustu umferðar (= frá réttu), er fitjuð upp 1 ný lykkja í umferð (= síðasta lykkjan í umferð) = 54-56-58-62-64-68-70 lykkjur. Setjið 1 merki í nýju lykkjuna sem fitjuð var upp í lok umferðar. Síðan er prjónað klukkuprjón hringinn frá réttu yfir allar lykkjur þannig:
UMFERÐ 1:
Prjónið 1 lykkju brugðið, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið.
UMFERÐ 2:
* Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3:
* Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Endurtakið síðan UMFERÐ 2 og 3.

Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-6-6-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með merki (= 4 lykkjur færri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 50-52-54-58-60-64-66 lykkjur.
Haldið áfram að prjóna klukkuprjón hringinn þar til ermin mælist 49-49-49-49-48-47-47 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Fellið af með sléttum lykkjum – til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að fella uppsláttinn af eins og venjuleg lykkja.

FRÁGANGUR-2:
Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = miðja að aftan, síðan eru kantarnir saumaðir við lykkjur aftan í hnakka. Tölur saumaðar í vinstra framstykki. Saumið klauf undir ermum við lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki.

Mynstur

Diagram for DROPS 268-17

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spellofsummercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (1)

country flag Françoise Roget skrifaði:

Spell of summer: Bonjour, Je ne trouve pas l explication des côtes anglaises? Pouvez-vous m aider svp? Merci Cordialement

29.04.2026 - 17:58

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Roget, l'explication des côtes anglaises se trouve au début de chaque partie, ex pour l'épaule droite du dos vous tricotez les rangs 1 à 3 comme indiqué puis vous répéterez les rangs 2 et 3. Bon tricot!

30.04.2026 - 08:55