Rose Blossom Top#roseblossomtop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-19 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu og gatamynstur. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-112-120-120128-128-128 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 41-41-43-43-45-45-45 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Skiptið yfir í hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt og setjið merki og aukið út lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja = laskalykkjur. ERMI: Prjónið slétt yfir næstu 22 lykkjur og aukið út 1 lykkju = 23 lykkjur á ermi. FRAMSTYKKI: Prjónið 2 lykkjur og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), prjónið slétt yfir næstu 30-30-34-34-38-38-38 lykkjur og aukið út 3-5-3-3-1-1-3 lykkjur jafnt yfir (= 33-35-37-37-39-39-41 lykkjur á framstykki), prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur). ERMI: Prjónið slétt yfir næstu 22 lykkjur og aukið út 1 lykkju = 23 lykkjur á ermi. BAKSTYKKI: Prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), prjónið slétt yfir næstu 30-30-34-34-38-38-38 lykkjur og aukið út 3-5-3-3-1-1-3 lykkjur jafnt yfir (= 33-35-37-37-39-39-41 lykkjur á bakstykki). Það eru alls 120-124-128-128-132-132-136 lykkjur í umferð. BERUSTYKKI: Nú er prjónað mynstur eins og útskýrt er að neðan og auka á út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan um hvernig auka á út, prjónið mynstur og aukið út fyrir laskalínu samtímis, lestu því næstu tvo kafla (MYNSTUR og LASKALÍNA) áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur) ERMI: A.1, A.2, A.3 FRAMSTYKKI: 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur), A.1. A.4 er prjónað 0-0-0-0-1-1-1 sinnum, 2-3-4-4-2-2-3 lykkjur sléttprjón, A.5, 2-3-4-4-2-2-3 lykkjur sléttprjón, A.6 er prjónað 0-0-0-0-1-1-1 sinnum, A.3, 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur). ERMI: A.1, A.2, A.3 BAKSTYKKI: 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur), A.1. A.4 er prjónað 0-0-0-0-1-1-1 sinnum, 2-3-4-4-2-2-3 lykkjur sléttprjón, A.5, 2-3-4-4-2-2-3 lykkjur sléttprjón, A.6 er prjónað 0-0-0-0-1-1-1 sinnum, A.3, 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur). ATH! A.1 og A.3 sýnir mynsturteikningu þegar aukið er út í annarri hverri umferð. Á ermum er aukið út á eftir 4. hverja umferð, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. LASKALÍNA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur eins og útskýrt er að ofan, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur (munið að uppslátturinn í laskaútaukningunni er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-9-11-9-12-10-8 sinnum (= 10-18-22-18-24-20-16 umferðir prjónaðar) = 160-196-216-200-228-212-200 lykkjur í umferð og skiptingin er þannig: 33-41-45-41-47-43-39 lykkjur á hvorri ermi, 43-53-59-55-63-59-57 lykkjur á framstykki/bakstykki og 8 laskalykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður (munið að uppslátturinn í laskaútaukningunni er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 12-11-11-14-14-18-21 sinnum (= 48-44-44-56-56-72-84 umferðir prjónaðar = 12-11-11-14-14-18-21 sinnum aukið út á ermum og 24-22-22-28-28-36-42 sinnum aukið út á framstykki/bakstykki). Öll útaukning fyrir laskalínu eru nú lokið, aukið hefur verið út alls 29-31-33-37-40-46-50 sinnum á framstykki/bakstykki og alls 17-20-22-23-26-28-29 sinnum á ermum. Það eru 304-328-348-368-396-428-452 lykkjur í umferð og lykkjuskiptingin er sem hér segir: 57-63-67-69-75-79-81 lykkjur á hvorri ermi, 91-97-103-111-119-131-141 lykkjur á framstykki/bakstykki og 8 laskalykkjur. Prjónið mynstur eins og áður án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-24-27-29-33-36 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið og haldið eftir fyrstu lykkju í umferð (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 59-65-69-71-77-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 93-99-105-113-121-133-143 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 59-65-69-71-77-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 92-98-104-112-120-132-142 lykkjur (= bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-234-254-274-298-322 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram yfir mynstur frá berustykki og eins langt og hægt er inn að hlið við miðju undir ermar. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 18-22-22-26-26-30-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 220-240-256-280-300-328-352 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá merki við miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 59-65-69-71-77-81-83 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-75-81-85-93-97-101 lykkjur. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum undir ermum, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram yfir mynstur frá berustykki og eins langt og hægt er að hlið fyrir miðju undir ermi. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið mynstur sem þegar er byrjað, jafnframt í umferð 1 eftir skiptingu er lykkjum fækkað undir ermi, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 3 cm – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 63-71-77-81-89-93-97 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 17-17-17-16-14-12-11 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-7-7-7-11-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-80-84-88-96-104-108 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #roseblossomtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.