Kerstin skrifaði:
Ich bin ziemlich verärgert aufgrund der fehlerhaften Anleitung. Ich weiß jetzt, wie ich die Ärmel stricken muss, damit der Musterversatz erfolgt, nämlich nach 8 R um 4 M versetzen, allerdings muss ich jetzt den kompletten Rumpfteil wieder auftrennen, da der Fehler bereits in der Passe beginnt
19.04.2026 - 12:14
Kerstin skrifaði:
Ich habe auch das Problem, dass an den Ärmel nach der Passe kein Musterversatz mehr entsteht. Könnt ihr bitte die Anleitung korrigieren
18.04.2026 - 23:41DROPS Design svaraði:
Liebe Kerstin, können Sie bitte mitteilen, welche Größe Sie stricken und wo der Fehler bei der Passe sein soll? So können wir noch weiter prüfen. Danke im voraus für Ihr Verständnis.
20.04.2026 - 10:09
Ana skrifaði:
Hola cuando terminas de tejer el cuello decís que hay que poner un marcador después de x puntos (centro de la labor) esos puntos se tejen?
16.04.2026 - 16:26DROPS Design svaraði:
Hola Ana, no, insertas el marcapuntos para medir sin trabajar los puntos, igual que los marcapuntos del canesú en la siguiente sección.
27.04.2026 - 01:03
Ayşe skrifaði:
Hi, after finishing diagrams A1, A2, A3 vertically should I repeat same diagrams again with inserting A2 two times between A1 and A3. Best regards
14.04.2026 - 21:12DROPS Design svaraði:
Dear Ayşe, correct, when you have worked the diagrams one time in height, you repeat pattern as before: A.1 to start with, then repeat A.2 (there are now enough sts to work 2 more repeat of A.2) and finish with A.3. Happy knitting!
15.04.2026 - 07:56
Monika Bönsch skrifaði:
Ich kann mich der Frage von Laura nur anschliessen. Wenn die Raglanzunahmen für die Ärmel beendet sind, kann man genau nur einmal den Mustersatz A4-A2–A5 in der Höhe stricken, danach gibt es keinen Musterversatz mehr. Gibt es da eine Lösung? Ich stecke fest und komme nicht mehr weiter. Danke im voraus für eine schnelle Antwort.
10.04.2026 - 06:52DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bönsch, wenn die Raglanzunahmen bei den Ärmeln fertig sind, stricken Sie wie beschrieben: Muster mit A.4 beginnen, dann A.2 wiederholen und mit A.5 enden (+ beidseitig die Raglanmaschen rechts). Viel Spaß beim Stricken!
10.04.2026 - 09:31
Laura skrifaði:
Non mi torna la lavorazione del motivo sulle maniche: una volta terminati gli aumenti, se lavorati come nelle indicazioni, gli schemi del motivo (A4, A2 e A5) risultano perfettamente allineati in verticale (dopo la prima ripetizione), invece che sfalsati. Dove sbaglio? Grazie!
09.04.2026 - 23:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Laura, una volta completati tutti gli aumenti raglan, le maniche dovrebbero essere lavorate come segue: A.4 su 7 maglie, A.2 sulle successive 40-48-48-56-64-64-72 maglie (= 5-6-6-7-8-8-9 volte in larghezza), A.5 su 6 maglie - questo significa che A.4 viene lavorato sulle prime 7 maglie del precedente A.1, poi A.2 (= sulle ultime 4 maglie di A.1 + le prime 4 maglie del successivo A.2), poi A.2 viene semplicemente ripetuto come prima, e A.5 viene lavorato sulle ultime 6 maglie di A.3. A.4 e A.5 rappresentano solo metà del motivo, poiché non vengono eseguiti ulteriori aumenti. Buon lavoro!
26.04.2026 - 21:51
Susanne skrifaði:
Skal jeg gøre A1 færdig op ad, eller tage den nederste i A1 så A2 og A3
09.04.2026 - 13:42DROPS Design svaraði:
Hej Susanne. Du stickar första rad i A1, A2, A3 på samme pind, andra rad i A1, A2, A3 på andra pind osv. Mvh DROPS Design
10.04.2026 - 10:41
CLEMENT skrifaði:
Great pattern
17.03.2026 - 15:23
Tea Time Lace Sweater#teatimelacesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-10 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki/bakstykki og inn í mynstur á ermum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-116-120-124 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2½-2½-3-3-3 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 35-36-37-38-40-41-42 lykkjurnar í umferð (= ca miðja að framan), stykkið á að vera mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju frá stroffi, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkjuna, teljið 21 lykkju (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-35-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 21 lykkju (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, 25-27-29-31-35-37-39 lykkjur eru eftir á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið síðan með hringprjón 4, prjónið í hring eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 á ermum, sléttprjón á framstykki/bakstykki jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – sjá útskýringu að ofan hvernig á að auka út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). ATH! Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu í viðbót af A.2 á milli A.1 og A.3 á hvorri ermi. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu þar til aukið hefur verið út alls 16-20-20-24-28-28-32 sinnum (mynsturteikningin hefur verið prjónuð alls 4-5-5-6-7-7-8 sinnum á hæðina) = 224-260-264-300-340-344-380 lykkjur. Lykkjurnar skiptast þannig: 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur fyrir hvora ermi og 59-69-71-81-93-95-105 lykkjur á framstykki/bakstykki (laskalykkjurnar eru taldar með framstykki/bakstykki). Útaukning fyrir ermar hefur nú verið gerð til loka í öllum stærðum, útaukning á framstykki og bakstykki heldur áfram og síðan er mynstrið á ermum prjónað þannig: Prjónið laskalykkju í sléttprjóni, A.4 yfir 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), A.5 yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið sléttprjón yfir framstykkið, aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju og prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.4 yfir 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), A.5 yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið sléttprjón yfir bakstykki, aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 7-6-8-6-5-9-9 sinnum til viðbótar (= alls 23-26-28-30-33-37-41 sinnum á framstykki/bakstykki). Það eru 252-284-296-324-360-380-416 lykkjur í umferð. Lykkjurnar skiptast niður þannig: 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur fyrir hvora ermi og 73-81-87-93-103-113-123 lykkjur á framstykki/bakstykki (laskalykkjurnar eru taldar með á framstykki/bakstykki). Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka á stykkið að mælast ca 16-18-20-21-23-26-29 cm. Prjónið síðan í sléttprjóni og mynstri án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-19-20-21-24-26-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Athugið í hvaða umferð í mynsturteikningu sem var síðasta umferð á ermum, þá er auðveldara að prjóna ermin áfram síðar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að teygja sig aðeins yfir á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju í sléttprjóni (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 73-81-87-93-103-113-123 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 72-80-86-92-102-112-122 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-194-210-234-258-282 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-12-14-16-18 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið þar til 3 lykkjur eru efitr á undan fyrsta merkiþræði, umferðin byrjar hér. Prjónið A.6 yfir 6 lykkjur (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í A.6), prjónið sléttprjón fram þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði fyrir miðju undir hinni erminni, prjónið A.6 (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í A.6), prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram hringinn, jafnframt þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingunni, prjónið A.7 yfir A.6 (= 2 lykkjur fleiri í hvorri hlið). Haldið síðan áfram með A.6 og endurtakið A.7 (= útaukning) í ca 3-3-3-4-4-4-4 hvert skipti sem mynsturteikningin er prjónuð á hæðina þar til A.7 hefur verið prjónað alls 4 sinnum í hvorri hlið = 178-194-210-226-250-274-298 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.6 þar til stykkið mælist 40-43-45-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 16-16-22-22-26-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 194-210-232-248-276-300-326 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 42-45-47-49-51-53-55 cm frá merki við miðju að framan og ca 47-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 61-69-71-81-91-93-103 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. ATH! Passið uppá að mynstrið byrji í réttri umferð þegar prjónað er áfram. Prjónið 4-4-5-6-7-8-9 lykkjur sléttprjón, A.4 yfir 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), A.5 yfir 6 lykkjur og prjónið 4-4-5-6-7-8-9 lykkjur í sléttprjóni – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-3-2-2-3-1-2 sinnum í annarri hverri umferð = 59-63-67-77-85-91-99 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 19-19-19-18-14-13-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-68-74-84-92-100-108 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 21-21-21-20-17-16-13 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #teatimelacesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.