Leticia skrifaði:
From the BODY section is this going to be A.5 then A.6 and then next round will be A.5 again and A.6 and then next round will also be A.5 and A.6 OR A.5 then A.6 and then next round will only be A.6 and then next round will also be A.6 :)
29.08.2026 - 10:31DROPS Design svaraði:
Dear Leticia, you will alternate between A.5 and A.6. You work all rounds of chart A.5 for 3cm then work A.6 once (all 4 rounds). After these 4 rounds, work all 4 rounds of A.5 3-4 times (depending on the size worked) and work all 4 rounds of A.6 once. Continue alternating like this time until you have worked A.6 4 times in total. Happy knitting!
30.08.2026 - 23:27
Michela skrifaði:
Maria Rita: devi fare A1-A2-A2-A3
11.08.2026 - 05:02
Maria Rita skrifaði:
Buongiorno Inoltre vorrei sapere se gli aumenti del raglan sono compresi nel diagramma oppure bisogna farli in più ? Poi quando dite “c’è spazio per un’altra ripetizione di A.2 tra A.1 e A.3 “ non capisco cosa vuol dire Perdonatemi ma per me è una maglia un po’ più difficile di altre che ho fatto, ma è così bella che vorrei provare a farla Grazie
03.07.2026 - 11:22DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maria Rita, solitamente gli aumenti per il raglan sono in aggiunta ai diagrammi. Alla fine della lavorazione dei diagrammi, grazie agli aumenti, avrà un numero di maglie sufficiente per lavorare una ripetizione in più di A.2 rispetto alle precedenti. Buon lavoro!
09.08.2026 - 12:17
Maria Rita skrifaði:
Buongiorno Dopo aver fatto il bordo del collo non capisco dove iniziare a mettere i segnapunti grazie
03.07.2026 - 06:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria Rita, deve seguire le indicazione riportate nelle istruzioni: prima inserisce 1 segnapunti e poi gli altri 4. Buon lavoro!
12.07.2026 - 13:34
Cottignies skrifaði:
Bonjour,je ne comprends pas comment mettre les marqueurs de maille apres avoir tricotele col.Merci pour votre reponse.
02.07.2026 - 18:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cottignies, accrochez vos marqueurs dans la maille indiquée (vous devez avoir 4 mailles avec chacune un marqueur), ou bien si vous ne pouvez pas accrocher vos marqueurs sur une maille, vous pouvez également marquer ces mailles avec un fil comme dans cette vidéo. Bon tricot!
03.07.2026 - 07:39
Ritva skrifaði:
Minä sain kuvion jatkumaan raglalisäysten jälkeen: Raglasilmukan jälkeen kuvio A4a, sitten toistin A4b:tä ja viimeiset 6 s A4c. Ihan ohjekuvan mukaan meni.
12.06.2026 - 17:53
Lucía skrifaði:
Buenas, Cuando se terminan los aumentos para la manga, ¿debería tejer A5 después de A4 y luego A2? ¿Porque parece ser una referencia a A4c y no a A5? Y qué patrón es A7, porque no sale en los diagramas... Muchas gracias.
11.06.2026 - 23:10DROPS Design svaraði:
Hola Lucía, el patrón se ha corregido recientemente; ahora ya está corregido en español.Trabajas A.4a, A.4b y A.4c en las mangas.
15.06.2026 - 00:34
Lotte skrifaði:
Mange tak for hurtigt svar👌🏼
08.06.2026 - 21:24
Lotte skrifaði:
Jeg sidder og hygger mig med at strikke, men er i tvivl om opskriften….Når man tager ud i siderne på for- og bagstykke mønsterrapport A6… Skal man fortsætte med at følge det opstartede A5 eller skal man rykke mønsteret A5 1 maske på hver side af markøren ved hver udtaget maske..
07.06.2026 - 22:06DROPS Design svaraði:
Hei Lotte. Følge det opstartede A.5, slik at pilen i A.5 alltid er i midten. mvh DROPS Design
08.06.2026 - 11:24
Maria Berntsson skrifaði:
Ska sticka mönsterstickning efter delning till fram o bakstycket. Ska sticka A6 i de upptagna maskorna. Efter 3 cm sticka A7? Hittar inte A7. Vilken är det?
05.06.2026 - 14:31DROPS Design svaraði:
Hei Maria. Her har det vært en rettelse, men som ikke er blitt oppdatert på svensk. Det skal vi få gjort asap, du kan i mellomtiden se på den norske, danske eller den engelske oppskriften. mvh DROPS Design
08.06.2026 - 09:06
Tea Time Lace Sweater#teatimelacesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-10 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki/bakstykki og inn í mynstur á ermum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-116-120-124 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2½-2½-3-3-3 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 35-36-37-38-40-41-42 lykkjurnar í umferð (= ca miðja að framan), stykkið á að vera mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju frá stroffi, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkjuna, teljið 21 lykkju (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-35-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 21 lykkju (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, 25-27-29-31-35-37-39 lykkjur eru eftir á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið síðan með hringprjón 4, prjónið í hring eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 á ermum, sléttprjón á framstykki/bakstykki jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – sjá útskýringu að ofan hvernig á að auka út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). ATH! Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu í viðbót af A.2 á milli A.1 og A.3 á hvorri ermi. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu þar til aukið hefur verið út alls 16-20-20-24-28-28-32 sinnum (mynsturteikningin hefur verið prjónuð alls 4-5-5-6-7-7-8 sinnum á hæðina) = 224-260-264-300-340-344-380 lykkjur. Lykkjurnar skiptast þannig: 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur fyrir hvora ermi og 59-69-71-81-93-95-105 lykkjur á framstykki/bakstykki (laskalykkjurnar eru taldar með framstykki/bakstykki). Útaukning fyrir ermar hefur nú verið gerð til loka í öllum stærðum, útaukning á framstykki og bakstykki heldur áfram og síðan er mynstrið á ermum prjónað þannig: Prjónið laskalykkju í sléttprjóni, A.4a yfir 7 lykkjur, A.4b yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), A.4c yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið sléttprjón yfir framstykkið, aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju og prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.4a yfir 7 lykkjur, A.4b yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), A.4c yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið sléttprjón yfir bakstykki, aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 7-6-8-6-5-9-9 sinnum til viðbótar (= alls 23-26-28-30-33-37-41 sinnum á framstykki/bakstykki). Það eru 252-284-296-324-360-380-416 lykkjur í umferð. Lykkjurnar skiptast niður þannig: 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur fyrir hvora ermi og 73-81-87-93-103-113-123 lykkjur á framstykki/bakstykki (laskalykkjurnar eru taldar með á framstykki/bakstykki). Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka á stykkið að mælast ca 16-18-20-21-23-26-29 cm. Prjónið síðan í sléttprjóni og mynstri án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-19-20-21-24-26-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Athugið í hvaða umferð í mynsturteikningu sem var síðasta umferð á ermum, þá er auðveldara að prjóna ermin áfram síðar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að teygja sig aðeins yfir á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju í sléttprjóni (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 73-81-87-93-103-113-123 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 72-80-86-92-102-112-122 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-194-210-234-258-282 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-12-14-16-18 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið þar til 3 lykkjur eru efitr á undan fyrsta merkiþræði, umferðin byrjar hér. Prjónið A.5 yfir 6 lykkjur (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í A.5), prjónið sléttprjón fram þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði fyrir miðju undir hinni erminni, prjónið A.5 (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í A.5), prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram hringinn, jafnframt þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingunni, prjónið A.6 yfir A.5 (= 2 lykkjur fleiri í hvorri hlið). Haldið síðan áfram með A.5 og endurtakið A.6 (= útaukning) í ca 3-3-3-4-4-4-4 hvert skipti sem mynsturteikningin er prjónuð á hæðina þar til A.6 hefur verið prjónað alls 4 sinnum í hvorri hlið = 178-194-210-226-250-274-298 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.5 þar til stykkið mælist 40-43-45-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 16-16-22-22-26-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 194-210-232-248-276-300-326 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 42-45-47-49-51-53-55 cm frá merki við miðju að framan og ca 47-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 61-69-71-81-91-93-103 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. ATH! Passið uppá að mynstrið byrji í réttri umferð þegar prjónað er áfram. Prjónið 4-4-5-6-7-8-9 lykkjur sléttprjón, A.4ayfir 7 lykkjur, A.4b yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), A.4c yfir 6 lykkjur og prjónið 4-4-5-6-7-8-9 lykkjur í sléttprjóni – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-3-2-2-3-1-2 sinnum í annarri hverri umferð = 59-63-67-77-85-91-99 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 19-19-19-18-14-13-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-68-74-84-92-100-108 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 21-21-21-20-17-16-13 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #teatimelacesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.