30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af mjúku ullargarni
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 396.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Ocean Dream Tee

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 266-19

#oceandreamtee

DROPS Design: Mynstur cl-149
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600-650 gr litur 08, Ísblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 396.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3) .
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu.

LEIÐBEININGAR MYNSTUR-1:
Þegar lykkjur eru auknar út á bakstykki, prjónið nýju lykkjurnar smá saman inn í mynstrið eins og útskýrt er í A.1 og A.3 – prjónið ekki gatamynstur (= A.4) fyrr en það er pláss fyrir heila mynstureiningu af A.4 á breiddina. Þegar pláss er fyrir 10-10-10-10-10-12-12 mynstureiningar af A.4, prjónið útauknar lykkjur í sléttprjóni. Eftir allar útaukningar, prjónið mynstrið þannig (séð frá réttu): 3-5-5-7-7-3-5 lykkjur í sléttprjóni, (A.2) alls 9-9-9-9-9-11-11 sinnum, A.4 og 3-5-5-7-7-3-5 lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR MYNSTUR-2:
Þegar lykkjur eru auknar út fyrir hálsmáli og framstykki, prjónið nýjar lykkjur smá saman inn í mynstrið – prjónið ekki gatamynstur fyrr en það er pláss fyrir heila mynstureiningu af A.4 á breiddina. ATH! Þegar lykkjur eru fitjaðar upp fyrir miðju framan í hálsmáli, prjónið ekki gatamynstur yfir nýjar lykkjur fyrr en prjónaðar hafa verið 3 umferðir á hæðina yfir þessar lykkjur, prjónið einungis slétt og brugðið eins og útskýrt er í A.2/A.4.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI (= ný lykkja snýr til vinstri):
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI (= ný lykkja snýr til hægri):
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hlið á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum lykkjum), aukið út 1 lykkju til vinstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.
Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-6.

1. BAKSTYKKI:
Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl.

2. FRAMSTYKKI:
Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni.

3. BERUSTYKKI:
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónað er yfir lykkjur frá öðru framstykkinu, lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan, hinn hlutinn á framstykkinu er prjónaður, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, lykkjur frá bakstykki prjónaðar, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur.

4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Samtímis sem berustykkið er prjónað, aukið út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermum.

5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

6. KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

-------------------------------------------------------

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 35-39-39-43-43-43-47 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Light eða DROPS Muskat.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið MYNSTUR í útskýringu að ofan og prjónið þannig:
Prjónið A.1 yfir 3-5-5-7-7-7-1 lykkjur, A.2 yfir næstu 24-32-32-32-32-32-40 lykkjur (= 3-4-4-4-4-4-5 sinnum á breiddina), A.3 yfir 8-2-2-4-4-4-6 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið A.3 yfir 9-3-3-5-5-5-7 lykkjur, A.2 yfir 24-32-32-32-32-32-40 lykkjur (= 3-4-4-4-4-4-5 sinnum á breiddina) og prjónið A.1 yfir 4-6-6-8-8-8-2 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Lesið LEIÐBEININGAR MYNSTUR-1 í útskýringu að ofan.

Haldið áfram með útaukningu á sama hátt og áður þar til aukið hefur verið út 24-24-24-24-24-28-28 sinnum í hvorri hlið (= 24-24-24-24-24-28-28 umferðir prjónaðar). Það eru 83-87-87-91-91-99-103 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón.

VINSTRI ÖXL:
Notið hringprjón 4 og DROPS Cotton Light eða DROPS Muskat.
Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 25-25-25-25-25-29-29 lykkjur innan við útauknar lykkjur þannig að skiptingin frá bakstykki yfir í framstykki verði falleg (Prjónið upp ca 1 lykkju í hverja prjónaða umferð).
Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið mynstur þannig:
Frá réttu: Prjónið 1-3-3-1-1-1-3 lykkjur slétt, 0-1-1-1-1-1-0 lykkjur brugðið, 0-3-3-3-3-3-0 lykkjur slétt, A.2 yfir 16-16-16-16-16-16-24 lykkjur, A.4 yfir 5-0-0-0-0-5-0 lykkjur og 3-2-2-4-4-3-2 lykkjur slétt.
Frá röngu: Prjónið 3-2-2-4-4-3-2 lykkjur brugðið, A.4 yfir 5-0-0-0-0-5-0 lykkjur, A.2 yfir 16-16-16-16-16-16-24 lykkjur, prjónið 0-3-3-3-3-3-0 lykkjur brugðið, prjónið 0-1-1-1-1-1-0 lykkjur slétt og prjónið 1-3-3-1-1-1-3 lykkjur brugðið.

Prjónið fram og til baka svona þar til stykkið mælist ca 6-6-7-8-9-10-11 cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.4/A.2 á hæðina. Lesið LEIÐBEININGAR MYNSTUR-2 í útskýringu að ofan.
Haldið áfram fram og til baka JAFNFRAMT sem fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmál í lok hverrar umferðar frá röngu. Fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum, 2 lykkjur 2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu = 35-35-35-35-35-39-39 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmál er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-10-11-12-13-14-15 cm. 1-1-1-2-2-2-3 cm af dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið.
Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar, prjónið nú hægri öxl meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL:
Notið hringprjón 4 og DROPS Cotton Light eða DROPS Muskat.
Finnið hægri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði/hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl.
Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 25-25-25-25-25-29-29 lykkjur innan við útauknar lykkjur þannig að skiptingin frá bakstykki yfir í framstykki verði falleg (prjónið upp ca 1 lykkju í hverja prjónaða umferð).
Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið mynstur þannig:
Frá réttu: Prjónið 3-5-5-7-7-3-5 lykkjur slétt, A.2 yfir 16-16-16-16-16-24-24 lykkjur, A.4 yfir 5-0-0-0-0-0-0 lykkjur, prjónið 0-1-1-1-1-1-0 lykkjur brugðið og prjónið 1-3-3-1-1-1-0 lykkjur slétt.
Frá röngu: Prjónið 1-3-3-1-1-1-0 lykkjur brugðið, prjónið 0-1-1-1-1-1-0 lykkjur slétt, A.4 yfir 5-0-0-0-0-0-0 lykkjur, A.2 yfir 16-16-16-16-16-24-24 lykkjur og prjónið 3-5-5-7-7-3-5 lykkjur brugðið.
Prjónið fram og til baka svona þar til stykkið mælist ca 6-6-7-8-9-10-11 cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.4/A.2 á hæðina. Lesið LEIÐBEININGAR MYNSTUR-2.
Haldið áfram fram og til baka JAFNFRAMT sem fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmál í lok hverrar umferðar frá réttu. Fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum, 2 lykkjur 2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu = 35-35-35-35-35-39-39 lykkjur. Stykkið mælist ca 10-10-11-12-13-14-15 cm. Nú á að prjóna berustykki áfram héðan.

BERUSTYKKI:
Í næstu umferð er stykkið prjónað saman, prjónið upp lykkjur fyrir ermar og fækkið um 4 lykkjur þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið eins og áður yfir hægri öxl, fitjið upp 13-17-17-21-21-21-25 lykkjur fyrir hálsmáli við miðju að framan, prjónið eins og áður yfir vinstri öxl þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri) = 81-85-85-89-89-97-101 lykkjur á framstykki, setjið merki hér, prjónið upp 21-21-23-25-27-29-31 lykkjur meðfram hlið vinstra framstykki (= lykkjurnar fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið merki hér, setjið lykkjurnar af bakstykkinu aftur á prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið eins og áður yfir bakstykkið þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri) = 81-85-85-89-89-97-101 lykkja (= bakstykki), setjið eitt merki hér, prjónið upp 21-21-23-25-27-29-31 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið eitt merki hér = 204-212-216-228-232-252-264 lykkjur.

Síðan er stykkið prjónað í hring, mynstrið á fram- og bakstykki er prjónað eins og áður og ermarnar eru prjónaðar í sléttprjóni.

Nú er aukið út lykkjur fyrir ermar þannig:

UMFERÐ 2:
Prjónið (yfir framstykkið) eins og áður fram að 2. merki, munið eftir LEIÐBEININGAR MYNSTUR-2, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið sléttprjón fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið yfir bakstykkið eins og áður, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttprjón fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón. Aukið hefur verið út um 4 lykkjur = 208-216-220-232-236-256-268 lykkjur.

Á EFTIR UMFERÐ 2:
Prjónið eins og umferð 2 2 sinnum til viðbótar = 216-224-228-240-244-264-276 lykkjur.

Nú er útaukningunni breytt og prjónið þannig:

UMFERÐ 1:
Prjónið (yfir framstykkið) eins og áður fram að 2. merki (= framstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttprjón fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið fram að næsta merki eins og áður (= bakstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttprjón fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón. Aukið hefur verið út um 4 lykkjur (= 2 lykkjur á hvorri ermi) = 220-228-232-244-248-268-280 lykkjur.

UMFERÐ 2:
Prjónið mynstur eins og áður, en án útaukninga = 220-228-232-244-248-268-280 lykkjur.
EFTIR UMFERÐ 2:
Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 10-10-7-8-8-5-2 sinnum til viðbótar (samtals hafa verið gerðar 11-11-8-9-9-6-3 útaukningar) = 260-268-260-276-280-288-288 lykkjur.

Aukið nú út bæði á fram- og bakstykki og ermum þannig:

UMFERÐ 1:
Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir að 1. merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttprjón fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir að merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttprjón eins og áður fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e. 1 lykkja hefur verið aukin út hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar). Nýjar lykkjur á fram- og bakstykki eru síðan prjónaðar í sléttprjóni.
UMFERÐ 2:
Prjónið mynstur, en án útaukninga.
EFTIR UMFERÐ 2:
Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 3-4-8-9-13-16-19 sinnum til viðbótar (= 8-10-18-20-28-34-40 umferðir prjónaðar, alls 4-5-9-10-14-17-20 sinnum aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermum = 57-59-63-69-79-81-83 lykkjur á hvorri ermi og 89-95-103-109-117-131-141 lykkjur á framstykki/bakstykki = 292-308-332-356-392-424-448 lykkjur alls.

Ermin mælist ca 12-12-13-15-17-17-17 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxlina á stykkið að mælast ca 17-17-19-21-24-24-25 cm frá ysta á öxl og niður meðfram handvegi. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 18-19-20-21-24-25-26 cm yst meðfram handvegi.
Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið yfir 89-95-103-109-117-131-141 lykkjur frá framstykki eins og áður, setjið næstu 57-59-63-69-79-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 89-95-103-109-117-131-141 lykkjur frá bakstykki eins og áður, setjið næstu 57-59-63-69-79-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 190-206-222-238-254-286-310 lykkjur.
Prjónið í hring eins og áður, nýjar lykkjur í hliðunum eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur í hvorri hlið – merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum á fram- og bakstykki. Þegar prjónaðir hafa verið 2 cm frá skiptingunni er lykkjum fækkað í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 3-3½-3½-3½-3-3-3½ cm millibili alls 4 sinnum = 174-190-206-222-238-270-294 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 13-15-15-15-13-13-15 cm frá skiptingunni er aukið út í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 3-3½-3½-3½-3-3-3½ cm millibili alls 4 sinnum = 190-206-222-238-254-286-310 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 46-49-50-51-52-54-55 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan – stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.2 á hæðina.
Prjónið nú stroff samtímis sem aukið er út. Prjónið eins og áður fram að fyrstu mynstureiningu af A.2 á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið A.5 yfir hverja mynstureiningu af A.2 (aukið út um 1 lykkju í hverri mynstureiningu), prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) yfir næstu 18-26-34-42-54-50-62 lykkjur, prjónið A.5 yfir hverja mynstureiningu af A.2 (aukið út um 1 lykkju í hverri mynstureiningu), prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 18-26-34-42-54-50-62 lykkjur. Aukið hefur verið út um 20-20-20-20-20-24-24 lykkjur = 210-226-242-258-274-310-334 lykkjur. Haldið áfram með stroff og síðan síðustu umferð í A.5.
Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 48-51-53-54-56-58-59 cm frá miðju að aftan og ca 49-52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMAR:
Setjið 57-59-63-69-79-81-83 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 63-67-71-79-89-93-97 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur – merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir er lykkjum fækkað undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-5-4-2-1-0-0 cm alls 2-2-2-2-3-1-1 sinnum = 59-63-67-75-83-91-95 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 12-12-11-9-7-7-8 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-13-15-17-17-19 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 70-74-80-90-100-108-114 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 14-14-14-12-11-11-11 cm frá skiptingunni undir ermi og ca 26-26-27-27-28-28-29 cm frá öxl og niður.

HÁLSMÁL:
Notið hringprjón 3 og byrjið við aðra öxlina. Prjónið upp ca 88 til 122 lykkjur í kringum hálsmálið – prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju (fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 2-2-3-3-3-4-4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

Prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn og 1 lykkju slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn) = Prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn og 1 lykkju slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn)
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar = Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
Búið er að fækka um þessa lykkju, farðu beint áfram í næstu lykkju = Búið er að fækka um þessa lykkju, farðu beint áfram í næstu lykkju
Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn – uppslátturinn er prjónaður slétt frá réttu/brugðið frá röngu svo það myndist gat = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn – uppslátturinn er prjónaður slétt frá réttu/brugðið frá röngu svo það myndist gat
Hér byrjar útaukning fyrir hálsmáli = Hér byrjar útaukning fyrir hálsmáli
Diagram for DROPS 266-19
Diagram for DROPS 266-19
Diagram for DROPS 266-19
Diagram for DROPS 266-19
Diagram for DROPS 266-19
Diagram for DROPS 266-19

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceandreamtee eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (2)

country flag Marion skrifaði:

Ich habe eine Frage zum Muster A2: Wenn ich eine Mache abhebe, zwei zusammenstricke und die erste Masche dann darüber hebe, bleibt nur noch eine Masche übrig. Wo kommt die 2. Masche her, die ich brauche um in der 3. Reihe einen Umschlag zwischen zwei Masche zu machen ? Vielen Dank für ihre Antwort

06.04.2026 - 12:07

DROPS Design svaraði:

Liebe Marion, in A.2 sollen die 2 Maschen nicht zusammen gestrickt werden, diese Maschen sollen separat gestrickt werden, so sind es 2 Maschen übrig nach der 1. Reihe. In diesem Video zeigen wir, wie man so einen Zopf strickt. Viel Spaß beim Stricken!

08.04.2026 - 11:34

country flag Ola skrifaði:

Kalkulator zamykania oczek źle działa . Nie jest prawidłowy. Jeżeli mam do zamknięcia 20 oczek, on pokazuje mi że mam przerobić 1 oczko na prawo i zamknąć 2 oczka razy 20, więc zostaje mi 41 oczek zamiast 40

08.03.2026 - 15:25

DROPS Design svaraði:

Witaj Olu, rzadko będzie tak idealnie, że da się podzielić liczbę oczek bez reszty. Nie szkodzi, że jest o 1 oczko więcej. To nie będzie widoczne. Pozdrawiamy!

11.03.2026 - 10:18