Elene skrifaði:
Dette svar giver Drops, når jeg bruger Drops foreslåede ord : "Vi beklager. Der findes ingen resultater som modsvarer dit søg. Prøv igen ved at skrive på en anden måde, eller prøv at filtrere på en anden måde. Fjern Filtre." Hvad kan jeg gøre ? v.h. E. B.
10.03.2026 - 21:18DROPS Design svaraði:
Hei Elena. Da fins ikke det ordet i en av oppskriftene vår, men sjekk om du er på den danske siden og det er et dansk ord, evnt opplys hvilket ord du prøver å søke på, så skal vi sjekke det. mvh DROPS Design
27.03.2026 - 11:42
Elene Breinholt skrifaði:
Jeg leder efter en opskrift, hvor pinde 2½ bruges. Blusen må gerne ligne denne, men jeg kan ikke finde en opskrift, hvor 2½ bruges - eller har ikke tålmodighed til at tjekke alle bluser, der minder om denne. Kan I hjælpe ? Venlig hilsen, E. Breinholt
07.03.2026 - 23:07DROPS Design svaraði:
Hei Elene. Bruk vår søke filter og velg Topp - Strikk og en strikkefasthet der det brukes pinne 2,5-3,5. Da kan du se om det er noen som passer deg, men om du vil bruke pinne 2,5 kommer jo litt an på hvordan du strikker. Du må bruke den pinne str. som gir deg den strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. mvh DROPS Design
09.03.2026 - 13:53
Sunlit Grid Top#sunlitgridtop |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-24 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað í sléttprjóni fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónað er yfir lykkjur frá bakstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, lykkjur prjónaðar frá öðrum hluta framstykkis, lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli við miðju að framan, hinn hlutinn af framstykkinu prjónaður, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, aukið út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. ------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 33-35-37-37-39-39-39 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Aukið nú út í hvorri hlið innan við 3 lykkjur, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-11-11-12-12-13-13 sinnum (= 22-22-22-24-24-26-26 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 77-79-81-85-87-91-91 lykkjur á prjóni. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna (= 22-22-22-24-24-26-26 lykkjur), endið með því að prjóna upp 1 lykkju í ysta horni axlar (= kantlykkja) = 23-23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið við hálsmál. Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur brugðið, 1 lykkju slétt, prjónið 4 lykkjur brugðið jafnframt því sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 12-12-12-12-12-17-17 lykkjur brugðið samtímis sem aukið er út um 1-1-1-1-1-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 26-26-26-28-28-31-31 lykkjur – uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt. Prjónið síðan mynstrið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1, prjónið A.2 alls 1-1-1-1-1-2-2 sinnum, prjónið A.3, A.4, prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur sléttprjón, A.4, A.3, A.2 alls 1-1-1-1-1-2-2 sinnum, A.1 – frá röngu eru alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina – prjónið síðustu umferð frá réttu = 37-37-37-39-39-42-42 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11 cm frá merki. Ca. 2-2-2-1-1-1-1 cm af dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á hjálparprjón og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 22-22-22-24-24-26-26 lykkjur) = 23-23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Prjónið 12-12-12-12-12-17-17 lykkjur brugðið þar sem aukið er út um 1-1-1-1-1-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur brugðið þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur brugðið = 26-26-26-28-28-31-31 lykkjur – uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist göt. Prjónið síðan mynstrið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.5, prjónið A.6, prjónið A.2 alls 1-1-1-1-1-2-2 sinnum, prjónið A.7. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.7, prjónið A.2 alls 1-1-1-1-1-2-2 sinnum, prjónið A.6, prjónið A.5, prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur sléttprjón – frá röngu eru alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina – prjónið síðustu umferð frá réttu = 37-37-37-39-39-42-42 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á hjálparprjón og prjónið stykkin saman í berustykki eins og útskýrt er hér að neðan. BERUSTYKKI: Nú eru öll stykkin sett saman í berstykki, lykkjur eru prjónaðar upp meðfram framstykkjum fyrir ermar og fækkað er um 4 kantlykkjur JAFNFRAMT sem 4 merki eru sett í umferð sem merkjaskiptinguna á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Byrjið á að prjóna yfir bakstykkið frá réttu þannig: Setjið 1 merki í umferðina (= byrjun umferðar), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykkinu, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki í umferðina, prjónið upp 23 lykkjur meðfram hlið hægra framstykkis (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki í umferðina, prjónið síðan yfir hægra framstykkið þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina, fitjið upp 18-18-18-24-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir vinstra framstykkið frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki í umferðina, prjónið upp 23 lykkjur meðfram hlið vinstra framstykkisins (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna) = 211-213-215-229-231-241-241 lykkjur. Það eru 23 lykkjur á hvorri ermi, 90-90-90-100-100-106-106 lykkjur á framstykki og 75-77-79-83-85-89-89 lykkjur á bakstykki. Prjónið síðan í hring jafnframt því sem einungis er aukið út á ermum, nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar inn í mynstrið – passið upp á að mynstrið haldi áfram eins og áður (þ.e.a.s. A.2, A.3 og A.6 heldur áfram í umferð 9 í mynsturteikningu, á meðan A.5 og A.4 heldur áfram í umferð 1 í mynsturteikningu). Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur á bakstykki slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, yfir framstykkið er prjónað mynstur eins og áður þannig: Prjónið 3-3-3-5-5-2-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.5, prjónið A.6, prjónið A.2 alls 9-9-9-10-10-12-12 sinnum (= 54-54-54-60-60-72-72 lykkjur), prjónið A.3, prjónið A.4, prjónið 3-3-3-5-5-2-2 lykkjur sléttprjón, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 15-16-16-17-15-12-8 sinnum (= 30-32-32-34-30-24-16 umferðir prjónaðar) = 271-277-279-297-291-289-273 lykkjur. Það eru 53-55-55-57-53-47-39 lykkjur á hvorri ermi, 90-90-90-100-100-106-106 lykkjur á framstykki og 75-77-79-83-85-89-89 lykkjur á bakstykki. Aukið síðan út fyrir bæði ermar og fram- og bakstykki, aukið út fyrir fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merkið þannig að það verði 2 lykkjur í sléttprjóni á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykkinu á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykkinu á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-7-9-10-13-17-22 sinnum (= 10-14-18-20-26-34-44 umferðir prjónaðar) = 311-333-351-377-395-425-449 lykkjur. Það eru 63-69-73-77-79-81-83 lykkjur á hvorri ermi, 100-104-108-120-126-140-150 lykkjur á framstykki og 85-91-97-103-111-123-133 lykkjur á bakstykki. Ermin mælist ca 14-16-18-19-20-21-21 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxlina á stykkið að mælast ca 20-22-24-25-26-27-27 cm yst á öxl og niður meðfram handvegi. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 85-91-97-103-111-123-133 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 63-69-73-77-79-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 100-104-108-120-126-140-150 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-69-73-77-79-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 193-207-221-243-261-291-315 lykkjur. Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn þar til stykkið mælist 40-42-44-46-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan – passið uppá að það sé ekki snúningur í kaðli í síðustu umferð. Skipið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 19-25-31-31-37-37-43 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir mynstur á framstykki) = 212-232-252-274-298-328-358 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 44-46-48-51-53-55-57 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 63-69-73-77-79-81-83 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 67-75-81-87-91-95-99 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-1-1-1-1-1 cm alls 3-4-5-5-3-2-1 sinnum = 61-67-71-77-85-91-97 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 10-9-7-5-5-4-5 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 13-13-15-17-17-17-19 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 74-80-86-94-102-108-116 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 14-13-11-10-10-9-10 cm frá skiptingunni og ca 28-29-29-29-30-30-31 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp á öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við annan kantinn þar sem lykkjur voru prjónaðar upp og prjónið upp ca 98-104-108-108-114-114-114 lykkjur í kringum hálsmálið innan við 1 lykkju - fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) hringinn í 3½-3½-4-4-4-4½-4½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunlitgridtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 49 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.