Elodie Lace Sweater#elodielacesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með ¾ löngum ermum úr DROPS Muskat eða DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og öldumynstri á ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-15 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA (þegar prjónað er fram og til baka): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA (þegar prjónað er í hring): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir í skiptingunni yfir í stroff, er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar eru síðar prjónaðar brugðið, sléttprjóns lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fitjið upp lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið fram og til baka á hringprjóna með útaukningu fyrir laskalínu -jafnframt eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið í umferð að tilgreindum fjölda lykkja og hálsmál hefur verið formað til loka. Berustykkið er síðan prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 82-84-86-90-92-100-102 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Muskat eða DROPS Belle. Setjið 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, setjið merkin í lykkju, þessar lykkjur kallast laskalykkjur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 1 lykkju (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 23-23-23-25-25-29-29 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 30-32-34-34-36-36-38 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 23-23-23-25-25-29-29 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Nú er 1 lykkja eftir á prjóninum fyrir hægra framstykki. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið fram og til baka - JAFNFRAMT eru fitjað upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og aukið út fyrir LASKALÍNA - sjá útskýringu að ofan á hvernig auka á út. Þegar lykkjurnar eru prjónaðar, prjónið þær samkvæmt eftirfarandi mynstri: Prjónið sléttprjón á framstykki og bakstykki og sléttprjón og MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan, á ermum, þ.e.a.s. A.1 er prjónað yfir miðjulykkjurnar á ermum mitt á milli 1. og 2. merkis og mitt á milli 3. og 4. merkis. Munið að fylgja prjónfestunni. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 1. merkið, prjónið 4 lykkjur slétt, A.1, prjónið 4 lykkjur slétt yfir ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2. merkið, prjónið slétt fram að 3. merkinu (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 3. merkið, prjónið 4 lykkjur slétt, A.1, prjónið 4 lykkjur slétt yfir ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4. merkið, prjónið 1 lykkju slétt (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðarinnar = 92-94-96-100-102-110-112 lykkjur. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið brugðið (munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar 94-96-98-102-104-112-114 lykkjur. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt og haldið áfram með A.1 yfir miðju 15-15-15-17-17-21-21 lykkjurnar á hvorri ermi – JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 104-106-108-112-114-122-124 lykkjur. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 106-108-110-114-116-124-126 lykkjur. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 117-119-121-125-127-135-137 lykkjur. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 120-122-124-128-130-138-140 lykkjur. UMFERÐ 8 (= rétta): Prjónið slétt og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 14-16-18-18-20-20-22 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 142-146-150-154-158-166-170 lykkjur. Á EFTIR UMFERÐ 8: Hálsmálið hefur nú verið prjónað og aukið hefur verið út alls 4 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin. Klippið þráðinn. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í lykkjurnar á bakstykki (= miðja að aftan). Prjónið síðan stykkið í hring frá miðju að aftan, færið því lykkjurnar á vinstri prjóni yfir á hægri prjón þar til komið er að merkiþræði (lykkjurnar eru ekki prjónaðar heldur færðar til). BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón og haldið áfram með A.1 á ermum – JAFNFRAMT er haldið áfram að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð 0-7-4-9-14-16-13 sinnum til viðbótar (aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 4-11-8-13-18-20-17 sinnum) = 142-202-182-226-270-294-274 lykkjur. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú aðeins aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri lykkjur), endurtakið þessa útaukningu alls 22-16-22-20-16-16-22 sinnum á framstykki og bakstykki og 11-8-11-10-8-8-11 sinnum á ermum. Nú hefur verið aukið út samtals 26-27-30-33-34-36-39 sinnum á framstykki/bakstykki og 15-19-19-23-26-28-28 sinnum á ermum (meðtalin útaukning sem var gerð samtímis með hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 274-298-314-346-366-390-406 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-21-23-25-26-28-30 cm frá hálsmáli við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. samtímis sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 42-46-49-53-56-61-65 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 53-57-59-67-71-73-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-14-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 84-92-98-106-112-122-130 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 53-57-59-67-71-73-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-14-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 42-46-49-53-56-61-65 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-224-240-260-284-308 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 36-38-40-42-43-44-46 cm frá hálsmáli við miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 38-42-44-48-52-56-62 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 230-250-268-288-312-340-370 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða með ítalskri affellingu. Peysan mælist 40-42-44-46-48-49-51 cm frá hálsmáli við miðju að framan og ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 53-57-59-67-71-73-73 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-12-14-14-18-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 65-69-73-81-89-93-97 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 12-12-14-14-18-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-4-4-6-7-7-7 sinnum með 3-3-3-2-1½-1½-1½ cm millibilil = 57-57-61-65-69-73-77 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 20-20-19-19-17-16-15 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT og aukið er út um 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (passið uppá að auknar séu út fjöldi lykkja með sléttri tölu yfir A.1) = 66-66-72-76-80-86-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 24-24-23-23-22-21-20 cm frá skiptingunni. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu við miðju að aftan og prjónið upp ca. 116-120-124-130-136-142-146 lykkjur í kringum hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt og stillið lykkjufjöldann ef þörf krefur – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 og stillið lykkjufjöldann af þannig að stroffið gangi upp með 1 lykkju slétt yfir hverja laskalykkjur frá berustykkinu. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3½-3½-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #elodielacesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 48 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.