Country Vine Sweater#countryvinesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki, köðlum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-4 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Byrjið við ör í réttri stærð (á við um A.1, A.2 og A.3). Ef ekki eru til nægilega margar lykkjur fyrir kaðal, prjónið lykkjurnar í sléttprjóni. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. I-CORD AFFELLING: Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið þessum 3 nýju lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast lítill snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið afl. Saumið smá spor sem bindur saman byrjun og lokin á i-cordkantinum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og framstykkið prjónað = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, aukið út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og fellt er af í kanti í hálsmáli með i-cord. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-37-37-37-38-38-38 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt því sem aukið er út um 12-9-9-9-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 50-46-46-46-50-50-50 lykkjur. Nú á að auka út í hvorri hlið í hverri umferð innan við 1 kantlykkju og 2 lykkjur í sléttprjóni eins og útskýrt er í mynsturteikningu, nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstrið jafnóðum. Prjónið og aukið út í mynstur eins og útskýrt er hér að neðan - ATH! Byrjið við örina í umferð 1 - á við um A.1 (= 4-8-8-8-4-4-4 lykkjur), A.2 (= 12 lykkjur) og A.3 (= 3-7-7-7-3-3-3 lykkjur): UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 43-31-31-31-43-43-43 lykkjur (þ.e.a.s. prjónið A.2 3-2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið síðan fyrstu 7 lykkjurnar í A.2), prjónið A.3 (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið A.3, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðið yfir næstu 43-31-31-31-43-43-43 lykkjur, prjónið A.1 (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-16-16-16-18-18-18 sinnum (= 24-32-32-32-36-36-36 umferðir prjónaðar) og 48-64-64-64-72-72-72 lykkjur fleiri – A.2 hefur verið prjónað 3-4-4-4-4½-4½-4½ sinnum á hæðina = 98-110-110-110-122-122-122 lykkjur. Mynstrið er nú byrjað á bakstykki. Munið að fylgja prjónfestunni. Það eru 2 lykkjur í sléttprjóni og 1 kantlykkja í hvorri hlið. Klippið þráðinn og setjið lykkjurnar á hjálparprjón. Öll peysan er prjónuð í stroffprjóni (= 4 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið / 6 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið frá réttu) – kaðli er snúið í hverri einingu með sléttprjóni sem samanstendur af 6 lykkjum sléttprjón. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði/hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við handveg og prjónið sléttar lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna 1 lykkju í ysta hornið á öxlinni (= kantlykkja), prjónið síðan 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 24-32-32-32-36-36-36 lykkjur) = 25-33-33-33-37-37-37 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll lengdarmæling á framstykkinu er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, 1-0-0-0-1-1-1 lykkjur slétt, 6-5-5-5-6-6-6 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið stroffprjón (= 4 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt / 6 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, endið með 1 lykkju brugðið (= kantlykkja) – mynstrið endurspeglar bakstykkið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju slétt, 2 lykkjur slétt, 1 lykkju brugðið, prjónið A.2 út umferðina. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-7-8 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Athugið hvaða umferð er síðasta umferðin sem prjónuð er í A.2, þannig að útaukningarnar fyrir hálsmál á vinstri öxl geti byrjað í sömu umferð í mynsturteikningunni. Prjónið síðan UMFERÐ 2 og 3 JAFNFRAMT og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, síðan 2 lykkjur 4 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) - útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2 = 37-45-45-45-49-49-49 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, prjónið síðustu umferðina frá réttu án útaukningar. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13-14 cm frá merki. Ca 2-1-1-1-1-1-1-1 cm af dýpt frá hálsmáli kemur til með að teygjast aðeins yfir á bakstykkið. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón, prjónið nú vinstri öxl meðfram vinstri öxl meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna (= 24-32-32-32-36-36-36 lykkjur), endið með því að prjóna upp 1 lykkju í ysta hornið á öxlinni (= kantlykkja) = 25-33-33-33-37-37-37 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessu merki, mæld í lykkjustefnu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið (= kantlykkja), 2 lykkjur brugðið, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 6 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt / 4 lykkjur brugðið) út umferðina (umferðin endar með 2-5-5-5-2-2-2 lykkjur brugðið) - mynstrið endurspeglar bakstykkið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (ATH: Mynstur A.2 byrjar ekki með fyrstu lykkjunni í mynsturteikningu, stillið af að það passi við stroff sem þegar er byrjað), prjónið 2 lykkjur slétt, endið með 1 lykkju slétt (= kantlykkja). UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 5-5-6-6-7-7-8 cm - síðasta umferðin er prjónuð frá röngu og á að vera prjónuð jafnlangt og sem prjónað var á hægri öxl á undan útaukningu fyrir hálsmáli. Prjónið síðan UMFERÐ 2 og 3 JAFNFRAMT sem fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, síðan 2 lykkjur 4 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) – nýju lykkjurnar sem hafa verið auknar út eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2 með því að telja frá öxl þannig að mynstrið haldi áfram yfir allar lykkjur eins og áður = 37-45-45-45-49-49-49 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, prjónið síðustu umferðina frá réttu. Gangið úr skugga um að kaðalmynstrið hafi verið prjónað jafn langt á báðum öxlum – síðan á að sameina axlirnar í eitt framstykki þar sem öllum köðlum verður snúið í sömu umferð. Ekki klippa þráðinn, prjónið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= ranga) eru axlirnar settar saman til að mynda framstykki þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur á vinstri öxl (= 37-45-45-45-49-49-49 lykkjur), fitjið upp 24-20-20-20-24-24-24 nýjar lykkjur í lok umferðar, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur frá hægri öxl frá röngu (= 37-45-45-45-49-49 lykkjur) = 98-110-110-110-122-122-122 lykkjur. Prjónið síðan mynstrið – ATH: Ekki snúa köðlum yfir lykkjurnar sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli í fyrstu umferð, heldur snúið köðlunum í A.2 alltaf í sömu umferð og áður yfir allt framstykkið. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju slétt, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir (mynstrið endar með fyrstu 7 lykkjunum í A.2), prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju slétt. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður þar til stykkið mælist ca 14 cm frá merki - stillið af þannig að síðasta umferðin sem prjónuð er sé síðasta umferðin í A.2. Klippið þráðinn og látið lykkjurnar vera á þræði eða á hjálparprjóni. Leggið síðan fram- og bakstykkið saman og prjónið upp lykkjur fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. Mynstrið sem er þegar byrjað á ermum kemur ekki til með að ganga upp með mynstri á bakstykki og framstykki. Síðar þegar fram- og bakstykkið er prjónað í hring kemur mynstrið til með að ganga jafnt upp yfir allar lykkjur. BERUSTYKKI: Byrjið á að prjóna yfir bakstykkið frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar af bakstykkinu slétt saman (= 1 kantlykkja færri), prjónið mynstur A.2 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykkinu, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 kantlykkja færri), setjið 1 merki í umferðina, prjónið upp 42 lykkjur meðfram hlið hægra framstykkisins (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við 1 kantlykkju), setjið 1 merki í umferðina, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar af framstykkinu slétt saman (= 1 kantlykkja færri), prjónið mynstur A.2 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykkinu, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 kantlykkja færri), setjið 1 merki í umferðina, prjónið upp 42 lykkjur meðfram hlið vinstra framstykkisins (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við 1 kantlykkju), Setjið 1 merki í umferðina = 276-300-300-300-324-324-324 lykkjur. Umferðin byrjar á milli vinstri ermi og bakstykkis - þegar berustykkið er prjónað í hring er snúið við í köðlum í sömu umferð bæði á ermum og fram- og bakstykki hringinn allt stykkið. Mynstrið sem er þegar byrjað á ermum kemur ekki til með að ganga jafnt upp með mynstri á bakstykki og framstykki. Síðar þegar fram- og bakstykkið er prjónað í hring kemur mynstrið til með að ganga jafnt upp yfir allar lykkjur. Í fyrstu umferð er mynstur sett upp á ermum og aukið er út á ermum á meðan mynstrið er prjónað eins og áður. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður yfir bakstykkið, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið yfir ermi í stroffprjóni (= 6 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið / 4 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 6 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri (= 44 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður yfir framstykkið, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið yfir ermina í stroffprjóni (= 6 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið / 4 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 6 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri (= 44 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón = 280-304-304-304-328-328-328 lykkjur. Aukið nú út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar, útaukningar eru sýndar í mynsturteikningu og aukið er út í hvorri hlið um 2 lykkjur í sléttprjóni. Prjónið mynstur í hring þannig: * Prjónið 2 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.4, prjónið mynstur (= A.2) eins og áður yfir næstu 90-102-102-102-114-114-114 lykkjur, prjónið A.5, prjónið 2 lykkjur í sléttprjóni, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið mynstur (= A.2) eins og áður yfir næstu 42 lykkjur, prjónið A.5 (= lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, * prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Prjónið mynstur í hring alls 36-36-40-44-50-56-60 umferðir. Í stærðum L, XL XXL og XXXL, þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, aukið síðan út í mynstri með sömu mynsturteikningu og áður (= 168-168-192-208-232-264-288 lykkjur fleiri) = 448-472-496-512-560-592-616 lykkjur - það eru 86-86-92-96-102-110-116 lykkjur á hvorri ermi og 138-150-156-160-178-186-192 lykkjur fyrir framstykki/bakstykki. Ermin mælist ca 13-13-14-16-18-20-21 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxlina á stykkið að mælast ca 20-20-21-23-25-27-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið þá að tilgreindu máli án útaukningar. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 138-150-156-160-178-186-192 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 86-86-92-96-102-110-116 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-8-14-18-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 138-150-156-160-178-186-192 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 86-86-92-96-102-110-116 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-8-14-18-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 288-312-336-336-384-408-432 lykkjur. Prjónið mynstur A.2 eins og áður í hring yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 43-46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan – nýjar lykkjur undir ermi ganga jafnt upp í mynstri hringinn á fram- og bakstykki (= 24-26-28-28-32-34-36 mynstureiningar). Skipið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er fækkað um 30-28-32-32-34-38-42 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 258-284-304-304-350-370-390 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 46-49-51-53-55-57-59 cm frá miðju að aftan og ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 86-86-92-96-102-110-116 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-12-8-14-18-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 92-92-104-104-116-128-140 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-12-8-14-18-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið hringinn í mynstri sem þegar er byrjað eins og áður – nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til ermin mælist 15-14-14-13-10-9-9 cm frá skiptingunni, ermin mælist ca. 28-27-28-29-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er fækkað um 12-12-12-12-14-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 80-80-92-92-102-116-126 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 18-17-17-16-13-12-12 cm frá skiptingunni og ca 31-30-31-32-31-32-33 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp á öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3 og fitjið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við aðra axlarlínuna og fitjið upp ca 98-98-102-102-104-104-106 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með I-CORD AFFELLING - lesið útskýringu að ofan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countryvinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 49 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.