Marit skrifaði:
Viga eestikeelses tõlkes mustriga alustamisel passe osas!!! SUURUSED XS-S-M-L:\\r\\nVõta 4,5 mm ringvardad ja koo nii: koo 3 viimast silmust skeemil A.1, *koo skeemi A.2, A.1 *, korda * kuni * 8-8-8-8 korda kokku, koo skeemi A.2, lõpus tee esimesed 2 silmust skeemil A.1. Jätka nii mustriga.\\r\\n\\r\\nKudusin väiksemat suurust ja nii jääb mustrikordus valesse kohta. Palun parandage ära.
12.11.2026 - 14:23DROPS Design svaraði:
Tere Marit! Palun mainige, kus täpselt on valesti? Juhend on igas keeles sama. Info edastatud disainerile.
24.11.2026 - 16:08
Maria Padatsu skrifaði:
Meneekö pääntien jälkeen oleva kaarrokeohje näin? A1, A2, A1, A2, A1, A2, A1, A2 ja sitten jatketaan A2-kaavion mukaan 5.riviltä?
06.11.2026 - 20:52DROPS Design svaraði:
Hei, pääntien reunuksen jälkeen kaarrokkeen silmukoilla neulotaan mallineuletta näin (koot XS-S-M-L): Piirroksen A.1 viimeiset 3 silmukkaa, neulo *A.2, A.1* 8 kertaa, A.2 ja piirroksen A.1 ensimmäiset 2 silmukkaa. Jatka mallineuletta tähän tapaan, kunnes olet neulonut piirrokseen nuolella merkityn kerroksen.
09.11.2026 - 17:24
M-L Guilbert skrifaði:
Bonjour, je viens de tricoter A2 taille XL et selon mes calculs 9x29= 261 mailles et 1Ox5 mailles de A1=50 mailles donc en tout 311 mailles et pas 340 comme indiqué. Y a t'il un mauvais décompte de mailles ? Merci pour ce très beau modèle
10.10.2026 - 18:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guilbert, retrouvez le décompte pour XL ci-dessous, bonne continuation!
12.10.2026 - 08:17
M-L Guilbert skrifaði:
Bonjour, je viens de tricoter A2 taille XL et selon mes calculs 9x29= 261 mailles et 1Ox5 mailles de A1=50 mailles donc en tout 311 mailles et pas 340 comme indiqué. Merci pour ce très beau modèle
10.10.2026 - 16:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guilbert, n'oubliez pas d'augmenter dans le premier motif A.2 (on commence par les 3 dernières mailles) et dans le dernier A.2 du tour (on commence par les 2 premières mailles, vous aurez ainsi: (3+12) = premier motif du tour, puis (5 m de A.1 + (5 m de A.2 +24 augmentations) = 34x9=306 mailles), puis 5 m de A.1 et le dernier A.2: 2 m + 12 = 14, soit 15+306+5+14=340 mailles. Bon tricot!
12.10.2026 - 08:14
Ute skrifaði:
Hallo liebes Team, Sind die Rückreihen im Muster angegeben oder werden diese gestrickt wie sie erscheinen? Liebe Grüße Ute
01.09.2026 - 09:21DROPS Design svaraði:
Liebe Ute, die Diagramme zeigen alle Reihen, so stricken Sie jeder Runde rechts nach links (das sind alle Hinreihen), so ist z.B. A.1 nur 4 Reihen usw. Viel Spaß beim Stricken!
02.09.2026 - 17:19
Julia skrifaði:
Hello! I am a beginner knitter. Please can you tell me what stitch to start with when I get to the third row of A.1. If I am beginning with the last 3 stitches of A.1 do I start immediately with a yarn over and then knit the last two stitches together (twisted) OR do I start with a knit, then YO and then knit the two twisted together?
23.08.2026 - 22:02DROPS Design svaraði:
Hi Julia, You knit 2 together, then make 1 yarn over, make 1 yarn over, knit 1, make 1 yarn over and knit 2 twisted together. This is repeated on the round. On the 4th round which is knitted, you also knit the yarn overs leaving you with holes for the lace pattern. Regards, Drops team.
24.08.2026 - 06:17
Diana skrifaði:
Change to a 3.5 mm circular needle, knit in ribbing (= knit 1/purl 1) increasing 18-18-22-22-26-26-30 stitches evenly spaced on the 1st row = 184-200-216-232-252-276-300 stitches. Can you please tell me how to do the increases evenly spaced in this ribbing?
08.08.2026 - 02:04DROPS Design svaraði:
Hi Diana, For the smallest size, divide 166 by 18 = 9.2. Increase after approx. each 9th stitch. Increase either with yarn overs or by working 2 stitches in one stitch. It is neatest if the increased stitches will then be purled in the rib (e.g., knit 1, make 1 yarn over which is purled twisted on the next round, knit 1). Regards, Drops Team.
09.08.2026 - 06:46
Diana skrifaði:
Hola! Estoy tejiendo el talle XL. Empecé con los 3 últimos puntos de A2 y terminé con A1-A2. Ya avancé en las vueltas y me di cuenta de que es un motivo más, con lo que serían 10 repeticiones A1-A2. Siempre mantuve eso, ahora me toca tejer la vuelta en que A2 va a terminar con 15 puntos, pero me parece que se me desfaso al inicio y al final. Como debería ser y si se arregla simplemente cambiando de lugar el marcador de inicio de vuelta?
03.08.2026 - 20:22DROPS Design svaraði:
Hola Diana, correcto, tienes 10 repeticiones de cada diagrama en la vuelta; A.1 y A.2 se repiten 9 veces, A.1 se repite una vez más y la mitad de A.2 está al inicio de la vuelta y la otra mitad al final de la vuelta. El dibujo debería quedar simétrico, con el mismo número de aumentos y disminuciones al final y al inicio de la fila. Así que el dibujo debería seguir bien, como antes. Si hay un fallo en el dibujo en la última fila, habría que deshacer y rehacer la fila. Si no hay ningún fallo, coloca el marcapuntos de inicio de vuelta en el centro de la espalda y continuar con A.3.
30.08.2026 - 18:41
Miris skrifaði:
Bonjour, y aurait-il une vidéo pour illustrer l'astuce manche, afin d'éviter le trou lors de la reprise des mailles ? Merci
15.06.2026 - 18:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Miris, vous pouvez retrouver cette technique dans cette autre vidéo au time code 2:08 approximativement. Bon tricot!
16.06.2026 - 08:02
Pracht skrifaði:
Bonjour Pour commencer le diagramme en XL faut faire 2 rangs de jersey endroit pour tout le pourtour du pull comme diagramme 1 et enchaîner après les diagrammes A1 , A2 ainsi de suite? Merci
29.05.2026 - 14:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pracht, en XL commencez le pont fantaisie en tricotant les 3 dernières mailles de A.2 (= au 1er tour = 1 m end, 1 jeté, 2 m env), puis répétez 9 fois les 10 m du point fantaisie: (A.1 (5 m), A.2 (les 5 m cette fois)) et terminez par les 5 m de A.1 et les 2 premières mailles de A.2 (au 1er tour = 2 m env, 1 jeté). N'hésitez pas à noter si besoin dans le diagramme là où le tour commence dans A.2, ainsi vous pourrez toujours vérifier votre nombre de mailles. Bon tricot!
29.05.2026 - 16:47
Meringue Bliss Sweater#meringueblisssweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-5 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------ MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-90-90-90-100-100-100 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við miðju að aftan, setjið 1 merki hér. BERUSTYKKI: Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. ATH! Til að ein heil mynstureining A.2 komi til með að vera fyrir miðju framan á peysunni, þá byrjar umferðin fyrir miðju í mynstureiningu. Passið uppá að það verði réttur fjöldi uppsláttar og úrtöku í mynstureiningunni fyrir miðju að aftan – það eiga að vera jafn margir uppslættir og úrtökur hvoru megin við miðju að aftan, annars kemur mynstrið til með að færast til. STÆRÐ XS-S-M-L: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig: Prjónið síðustu 3 lykkjur í A.1, *A.2, A.1*, prjónið frá *-* alls 8-8-8-8 sinnum, prjónið A.2 og endið með fyrstu 2 lykkjur í A.1. Haldið áfram með þetta mynstur. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig: Prjónið síðustu 3 lykkjur í A.2, *A.1, A.2*, prjónið frá *-* alls 9-9-9 sinnum, prjónið A.1 og endið með fyrstu 2 lykkjur í A.2. Haldið áfram með þetta mynstur. ALLAR STÆRÐIR: Munið að fylgja prjónfestunni! Þegar A.2 hefur verið prjónað upp að ör að tilgreindri stærð eru 252-288-306-324-340-360-380 lykkjur í umferð. Það eru 23-27-29-31-29-31-33 lykkjur í hverri mynstureiningu af A.2. Á EINUNGIS VIÐ UM STÆRÐ XS og XL: Í stærð XS og XL prjónið 2-1 mynstureiningar af A.3 á hæðina (= án útaukningar) yfir A.2, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan í sléttprjóni, í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 258-282-306-330-346-366-386 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21-23-24-25-26 cm, mælt frá merki á eftir stroff. Munið að fylgja prjónfestunni! SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-43-45-49-52-57-61 lykkjur eins og áður (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 77-85-89-97-103-113-121 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-42-44-48-51-56-60 lykkjur í sléttprjóni (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-182-194-210-226-250-270 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-47-49-49-51-53 cm frá merki við miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-18-22-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 184-200-216-232-252-276-300 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-72-76-80-82-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 3½ cm alls 2-3-7-8-9-9-10 sinnum = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-44-44-43-41-41-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-48-48-47-46-46-46 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #meringueblisssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.