Tybet skrifaði:
Bonjour, Il me reste une manche à faire pour finir ce pull qui est magnifique et que j'ai réussi. Je l'ai fait uniquement avec un fil de mohair aiguilles 4,5, l'echantillon correspondait. J'ai respecté votre patron avec 2 diminutions de plus pour les manches. Si je peux me permettre, il vaut largement le modèle viral dont tout le monde parle.
29.04.2026 - 22:08
Ebba skrifaði:
Jag får inte antalet maskor att stämma när jag följer det här mönstret. När mönstret A1 och A2 är färdigstickat i st XS har jag 224 m på stickan och inte 252 som det står. För det är ju inte möjligt när 8 rapporter x 23 m + 8 rapporter x 5 m faktiskt blir 224. Att starta med 90 m stämde inte heller, hela beskrivningen behöver ses över.
25.04.2026 - 22:41
Aida skrifaði:
For size Small, at the end of A2, there are 3+8x(27+5)+2 = 266 stitches. There should be 288 stitches. Where do I insert the 22 stitches? When A.2 has been worked up to arrow for correct size, there are 252-288-306-324-340-360-380 stitches on needle. There are 23-27-29-31-29-31-33 stitches in each repetition of A.2.
24.04.2026 - 22:40
Milla skrifaði:
I am knitting the size XS for the yoke it says to do A2 and A1 in total 8 times. However, that would only be 80sts and I have 90 as instructed
18.04.2026 - 23:12DROPS Design svaraði:
Dear Milla, work the 90 stitches as follows: start with the last 3 stitches A.1, then repeat a total of 8 times (5 sts A.2 (on first row, increased to 7 on this row, 5 sts A.1), now work one more time A.2 and finish with the first 2 stitches A.1, so that you will have: 3 + (8x(5+5) + 5 + 2=90 sts. Happy knitting!
20.04.2026 - 10:04
Barbara skrifaði:
Buongiorno, come posso realizzare gli aumenti del motivo, c è un video relativo? Grazie.
07.04.2026 - 15:50DROPS Design svaraði:
Buongiormo Barbara, per gli aumenti del motivo deve seguire il diagramma: sono dei gettati. Buon lavoro!
08.04.2026 - 16:31
Michelle skrifaði:
Bonjour pour centrer A2, il faut tricoter les 3 dernières mailles. Mais faut il compter le jeter dans ces trois dernières mailles ? Ou commencer par la maille endroit, faire le jeté et les deux mailles envers? Merci
01.04.2026 - 09:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Michelle, les 3 dernières mailles de A.2 sont (1 m end, 2 m env), au 1er tour, faites bien le jeté après la maille endroit au début du tour et après les 2 m envers à la fin du tour. Bon tricot!
07.04.2026 - 16:06
Podunavac Claudette skrifaði:
Absolument magnifique ! je le tricoterai dès que j'aurai terminé mon autre ouvrage.
26.03.2026 - 16:28
Joanna skrifaði:
Na schemacie miedzy dwoma panelami wzoru głównego mamy 4 oczka lewe, które są w robótce obok siebie i nie dają takiego efektu jak na zdjęciu. Nie mam panelu z mniejszym wzorem. Czy gdzieś coś zgubiłam ?
20.02.2026 - 07:40DROPS Design svaraði:
Witaj Joanno, rozumiem, że chodzi Ci o schemat A.2? Jaki rozmiar wykonujesz i w którym dokładnie miejscu schematu się znajdujesz? Dzisiaj nastąpiła aktualizacja schematu A.3, być może to rozwiązuje problem. Jeśli nie proszę o kontakt.
20.02.2026 - 21:24
Lucie Tremblay skrifaði:
N’y aurait-il pas une erreur au graphique A.3 XL ? Pour arriver au même nombre de mailles sans augmentation il faut absolument enlever 2 jetées. Merci pour ce magnifique patron.
19.02.2026 - 05:27DROPS Design svaraði:
Bonjour et merci pour votre retour, nos stylistes vont vérifier le diagramme le plus rapidement possible, merci d'avance pour votre patience. Bon tricot!
19.02.2026 - 09:15
Delphine skrifaði:
Bonjour pourriez vous m expliquer comment tricoter A3 sans faire d augmentation ? Merci beaucoup
18.02.2026 - 15:58
Meringue Bliss Sweater#meringueblisssweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-5 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------ MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-90-90-90-100-100-100 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við miðju að aftan, setjið 1 merki hér. BERUSTYKKI: Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofa. ATH! Til að ein heil mynstureining A.2 komi til með að vera fyrir miðju framan á peysunni, þá byrjar umferðin fyrir miðju í mynstureiningu. Passið uppá að það verði réttur fjöldi uppsláttar og úrtöku í mynstureiningunni fyrir miðju að aftan – það eiga að vera jafn margir uppslættir og úrtökur hvoru megin við miðju að aftan, annars kemur mynstrið til með að færast til. STÆRÐ XS-S-M-L: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig: Prjónið síðustu 3 lykkjur í A.1, *A.2, A.1*, prjónið frá *-* alls 8-8-8-8 sinnum, prjónið A.2 og endið með fyrstu 2 lykkjur í A.1. Haldið áfram með þetta mynstur. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig: Prjónið síðustu 3 lykkjur í A.2, *A.1, A.2*, prjónið frá *-* alls 9-9-9 sinnum, prjónið A.1 og endið með fyrstu 2 lykkjur í A.2. Haldið áfram með þetta mynstur. ALLAR STÆRÐIR: Munið að fylgja prjónfestunni! Þegar A.2 hefur verið prjónað upp að ör að tilgreindri stærð eru 252-288-306-324-340-360-380 lykkjur í umferð. Það eru 23-27-29-31-29-31-33 lykkjur í hverri mynstureiningu af A.2. Á EINUNGIS VIÐ UM STÆRÐ XS og XL: Í stærð XS og XL prjónið 2-1 mynstureiningar af A.3 á hæðina (= án útaukningar) yfir A.2, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan í sléttprjóni, í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 258-282-306-330-346-366-386 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21-23-24-25-26 cm, mælt frá merki á eftir stroff. Munið að fylgja prjónfestunni! SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-43-45-49-52-57-61 lykkjur eins og áður (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 77-85-89-97-103-113-121 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-42-44-48-51-56-60 lykkjur í sléttprjóni (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-182-194-210-226-250-270 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-47-49-49-51-53 cm frá merki við miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-18-22-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 184-200-216-232-252-276-300 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-72-76-80-82-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 3½ cm alls 2-3-7-8-9-9-10 sinnum = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-44-44-43-41-41-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-48-48-47-46-46-46 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #meringueblisssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.