Marie-france Altmayer skrifaði:
Bonjour Merci de votre réponse, mais se n'est pas la technique qui me pose problème, mais la ligne 10 endroit envers quatre fois? Cordialement
23.03.2026 - 10:55
Marie-france Altmayer skrifaði:
Bonjour J\'ai un problème sur le diagramme, incompréhension entre le rang 9 et 10 ? Merci Cordialement
22.03.2026 - 23:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Altmayer, cette vidéo montre comment augmenter en tricotant 2 fois la même maille à l'envers et comment tricoter les côtes ensuite. Suivez bien le diagramme indiqué ici pour votre taille, même s'il y a quelques différences avec la vidéo. Bon tricot!
23.03.2026 - 10:07
Blue Ray Sweater#blueraysweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-28 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 86 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,6. Í þessu dæmi er aukið út eins og útskýrt er að neðan til skiptis í ca 8. og 9. hverja lykkju. Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið yfir fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Myndið nýja lykkju með uppslætti með þræðinum sem prjónað er með utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Fjarlægið ysta hluta lykkjunnar af vinstri prjóninum og prjónið síðan hinn endann á lykkjunni í gegnum fremri lykkjubogann. Nú hefur þú aukið út um 1 lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og fellt er af með i-cord. BERUSTYKKI: Fitjið upp 86-88-90-94-100-102-108 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 28-29-30-31-33-34-36 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni hringinn jafnframt því sem aukið er út um 10-12-14-16-20-24-26 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-100-104-110-120-126-134 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-4-4-5 cm frá merki, aukið út 29-30-31-35-40-44-46 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 125-130-135-145-160-170-180 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6-7 cm frá merki, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið A.1 alls 25-26-27-29-32-34-36 sinnum berustykkið hringinn. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 250-260-270-290-320-340-360 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-18-20-21-21-23-24 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT þegar prjónað hefur verið í sléttprjóni 1 cm á eftir A.1, er aukið út um 2-8-6-10-16-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 252-268-276-300-336-352-372 lykkjur. Prjónið þar til berustykkið mælist 20-21-23-24-24-26-28 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 50-52-52-58-66-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-82-86-92-102-110-118 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 50-52-52-58-66-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 76-82-86-92-102-110-118 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-196-212-232-252-272 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-10-12-14-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-48-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-30-30-36-36-42-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 198-214-226-248-268-294-320 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-52-52-58-66-66-68 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-64-72-80-82-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-2-1-3-5-4-4 sinnum í 2. hverjum cm = 50-54-58-62-64-68-72 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-41-39-39-39-38-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-64-68-72-76-80-84 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 46-46-44-44-45-44-42 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI MEÐ I-CORD AFFELLINGU: Notið hringprjón 3 og prjónið upp 86-88-90-94-100-102-108 lykkjur í kringum hálsmál innan við uppfitjunarkantinn (passið uppá að uppfitjunarkanturinn sjáist ekki). Klippið þráðinn. Byrjun (= rétta): Fitjið upp 3 lykkjur á hægri prjón. Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón – þráðurinn sem prjónað er með situr 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðist á þræðinum sem prjónað er með, þannig að það myndast snúruprjón). UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir (passið uppá að i-cordinn verði ekki stífur eða verði of laus). Lyftið í lokin til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á i-cord. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueraysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.