Marianne Andersen skrifaði:
For mig ser det ud som om, I bytter om på venstre og højre i udtagningstips1. Og hvad er så rigtigt mht. det efterfølgende ? Mvh. Marianne
11.12.2025 - 01:00DROPS Design svaraði:
Hej Marianne, udtagningstipset stemmer, se også videoen for at se hvordan det kommer til at se ud i begge sider :)
12.12.2025 - 08:34
Linda skrifaði:
Jag skulle vilja sticka denna tröja med en tråd av ett garn från garngrupp A av Drops garner, vad ska jag ha för sticknummer och fasthet då?
17.11.2025 - 21:29DROPS Design svaraði:
Hej Linda. Om du använder ett garn i garngrupp A så kommer dessvärre inte stickfastheten att stämma (och därmed inte måtten), så för att kunna följa detta mönster måste du använda ett garn ur garngrupp B. Mvh DROPS Design
19.11.2025 - 10:38
Stormy Coast Sweater#stormycoastsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl. Stærð S - XXXL.
DROPS 260-35 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið sett á bið á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-36-38-38-40-42 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið umferð 2 og 3 alls 16-18-20-22-23-25 sinnum (= 32-36-40-44-46-50 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 98-108-118-126-132-142 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 8-10-11-11-10-8 cm frá merki. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-4-3-3-6-8 sinnum (= 10-8-6-6-12-16 umferðir prjónaðar) = 108-116-124-132-144-158 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón (stykkið mælist ca 12-13-13-13-14-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handveg). Nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út við handveg þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 32-36-40-44-46-50 lykkjur. Setjið 1 merki hér, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm frá merki og næsta umferð er umferð frá réttu, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) = 40-44-48-52-54-58 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 32-36-40-44-46-50 lykkjur. Setjið 1 merki hér, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm frá merki og næsta umferð er umferð frá réttu, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) = 40-44-48-52-54-58 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm frá merki. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 40-44-48-52-54-58 lykkjur frá hægra framstykki slétt, fitjið upp 18-20-22-22-24-26 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 40-44-48-52-54-58 lykkjur frá vinstra framstykki slétt = 98-108-118-126-132-142 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-26-29-31-30-30 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-4-3-3-6-8 sinnum (= 10-8-6-6-12-16 umferðir prjónaðar) = 108-116-124-132-144-158 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 28-29-31-33-34-36 cm, mælt frá merki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 108-116-124-132-144-158 lykkjur frá framstykki slétt, fitjið upp 2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 108-116-124-132-144-158 lykkjur frá bakstykki slétt og fitjið upp 2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 220-236-252-272-296-324 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 34-35-35-34-35-35 cm frá handveg. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 40-44-48-56-56-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 260-280-300-328-352-388 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm, mælt frá innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl - ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkrum cm niður á framstykki. Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur þétt (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 78-82-86-94-100-106 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Til að ermin passi betur og hún fái fallegt form er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpu, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 9-9-9-10-11-11 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 9-9-9-10-11-11 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 16 skipti (= 8 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. SÍÐAN ERMINA NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 8-10-11-12-14-16 sinnum í hverjum 6-4½-4-3½-3-2½cm = 58-58-60-64-66-68 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 54-53-52-50-49-48 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-10-12-12-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-68-72-76-76-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 58-57-56-55-54-53 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 96-100-108-108-112-120 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-5-5-6-6 cm – stillið af að 2 lykkjur slétt frá stroffi komi yfir 2 lykkjur slétt frá skásettu axlalínunni. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stormycoastsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 260-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.