Winter Ocean Cardigan#winteroceancardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn frá réttu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að lykkjur fyrir hálsmáli hafa verið fitjaðar upp. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8½-7½-8-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. Passið uppá að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjurnar eru prjónaðar upp í miðjunni undir erminni getur myndast lítið gat í opinu milli lykkjunnar frá fram- og bakstykki og erminni. Þú getur lokað þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli lykkjanna tveggja - þráðurinn er snúinn saman við fyrstu lykkjuna á milli fram- og bakstykkis og ermarinnar, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst er hálsmálið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmálið. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hálsmáli og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 66-68-70-72-74-76-78 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 75-77-79-81-83-85-87 lykkjur. UMFERÐ 2 (frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 76-78-80-82-84-86-88 lykkjur. UMFERÐ 3 (frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 85-87-89-91-93-95-97 lykkjur. UMFERÐ 4 (frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 86-88-90-92-94-96-98 lykkjur. Prjónið umferð 3 og 4 3 sinnum til viðbótar. Aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu og fitjaðar hafa verið upp 5 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í hvorri hlið = 116-118-120-122-124-126-128 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan, fitjið upp 11-12-13-14-15-16-17 nýjar lykkjur í lok umferðar = 135-138-141-144-147-150-153 lykkjur. UMFERÐ 2 (frá röngu): Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 11-12-13-14-15-16-17 nýjar lykkjur í lok umferðar = 146-150-154-158-162-166-170 lykkjur. Nú eru 32-34-36-38-40-42-44 lykkjur á bakstykki, 30 lykkjur á hvorri ermi, 23-24-25-26-27-28-29 lykkjur á hvoru framstykki og 2 lykkjur í hverri laskalínu. Prjónið nú berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan. Munið að fylgja prjónfestunni og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið leiðbeiningar að ofan. Útaukning fyrir laskalínu heldur áfram þannig: ATH! Í stærð XS er hoppað yfir þennan kafla, haldið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 0-4-6-9-6-7-7 sinnum (= 0-8-12-18-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 146-182-202-230-210-222-226 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Síðan er prjónað og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 10-9-9-8-11-12-14 sinnum (= 40-36-36-32-44-48-56 umferðir prjónaðar = 10-9-9-8-11-12-14 sinnum útaukning á ermum og 20-18-18-16-22-24-28 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 266-290-310-326-342-366-394 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 26-28-30-31-34-37-41 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 16-19-21-23-23-25-27 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón og kanta að framan án þess að auka út, þar til stykkið mælist 24-26-28-29-31-34-38 cm, frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 45-48-51-53-57-61-66 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-92-100-108-118 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 45-48-51-53-57-61 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-190-206-214-234-254-274 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-22-22-30-30-30-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 196-212-228-244-264-284-304 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist ca 49-51-53-55-57-59-61 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-62-68-72-74-80-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 0-10-10-10-10-5-3½ cm alls 0-2-3-4-4-6-7 sinnum = 52-54-58-60-62-64-66 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-39-39-36-34-30-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-60-64-68-68-72-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-43-43-40-39-35-33 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 108 til 132 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 4, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. ATH! Prjónið upp lykkjur í ysta lykkjubogann yfir lykkjur frá kanti að framan og prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju meðfram afgangi af kanti í hálsmáli. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – stillið af að 2 lykkjur slétt í stroffi passi yfir 2 lykkjur slétt frá hverri laskalínu. Fellið af þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan – stillið af að 2 lykkjur slétt í stroffi passi yfir 2 lykkjur slétt frá hverri laskalínu. Prjónið fram og til baka í stroffprjóni. Fellið af þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winteroceancardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.