Nico skrifaði:
Bonjour, Question de débutant intermédiaire. Je n'ai jamais tricoté en double fils. La quantité de laine en grammes est prévue pour les deux fils ou un seul et alors faut il doubler le nombre de pelote. Bien cordialement Nicolas
28.05.2026 - 07:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicolas, la quantité indiquée correspond à la quantité nécessaire en tricotant le fil en double, vous n'avez pas besoin de multiplier la quantité indiquée par 2. Bon tricot!
28.05.2026 - 09:42
Lisbeth skrifaði:
Tak for svar, men rettelsen er forkert. Udtagningstips-2 beskriver rigtig nok, hvordan der skal strikkes udt-hø-vr og udt-ve-vr, så maskerne vender rigtigt, men det er en fejl, at der på pind 3 står, at man først skal tage ud mod højre og til slut mod venstre - det er lige omvendt.
27.05.2026 - 14:39
Lisbeth skrifaði:
Hej, jeg vil spørge, om det ikke er en fejl, når der i opskriften under BAGSYKKE står: 3.pind vrangen: Strik A2, tag 1 maske ud mod HØJRE - skal det ikke være mod venstre? og igen (inden der strikkes A1) står tag ud mod højre og ikke mod venstre?
27.05.2026 - 10:38DROPS Design svaraði:
Hej Lisbeth, UDTAGNINGSTIPS-2 er opdateret, så det stemmer det som står under 3. pind fra vrangen :)
27.05.2026 - 12:11
Vera Santucci skrifaði:
Teria algum vídeo como executar o Gráfico A1 , no avesso? Obrigada
21.05.2026 - 20:52DROPS Design svaraði:
Bom dia, O gráfico A,1 mostra as carreiras do avesso. Tricota a carreira 1 e 3 pelo direito, lendo o gráfico da direita para a esquerda, tricota a carreira 2 e 4pelo avesso, lendo o gráfico da esquerda para a direita, Quando unir a peça para tricotar em redondo, tricota todas as carreiras pelo direito, lendo sempre o gráfico da direita para a esquerda, Bons tricôs!
22.05.2026 - 10:13
Ophélie skrifaði:
Bonjour, je ne suis pas sûre de bien comprendre le symbole - glisser 1 maille, tricoter 2 mailles endroit, passer la maille glissée par-dessus la maille tricotée - dans le diagramme (rang 1). Selon moi, ici nous faisons une diminution de deux mailles mais ce ne doit pas être ça car après nous n'en récupérons qu'une avec le jeté. Devons nous tricoter deux mailles ensemble et ensuite glisser la maille précédente au dessus ? Si non, que devons nous faire ? Merci
14.05.2026 - 22:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Ophélie, cela devrait etre: glisser 1 maille, tricoter 2 mailles endroit, passer la maille glissée par-dessus les (2) mailles tricotées. Vous obtenez 2 mailles a partir de 3. Ensuite vous ajoutez un jete pour le compenser. Bon tricot!
15.05.2026 - 08:19
Lore Gesemann skrifaði:
Hallo ich weiß nicht wie ich in dem Diagramm eine Masche überspringen soll
05.05.2026 - 11:38DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Gesemann, bei der 1. Reihe A.1 und A.2 hatten Sie 3 Maschen und diese Maschen wurden zu 2 Maschen abgenommen (1 M abheben, 2 M stricken und die abgehobene Masche über die 2 Maschen ziehen), so bei der 2. Reihe A.1 und A.2 sind es immer nur noch 2 Maschen, und man wird einfach diese 2 Maschen stricken mit 1 Umschlag inzwischen, so sind es wieder 3 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
05.05.2026 - 16:22
Coco skrifaði:
Suite à ma question 28, je reprécise que je ne tricote pas serré puisque je n'ai besoin que de 17 mailles pour l'échantillon au lieu de 19 dans le modèle, et je n'ai que 12 cm de largeur de col en taille M, au lieu de 14 cm Et bien évidemment j'ai mis le nombre de mailles indiquées, Avez vous un conseil pour que j'obtienne largeur de col 14 cm ? Merci beaucoup
28.04.2026 - 19:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Coco, votre tension est différente: vous avez besoin de moins de mailles pour 10 cm, donc avec le même nombre de mailles vous ne pouvez pas avoir la même largeur, vous allez devoir recalculer le nombre de mailles requis avec votre tension et les largeurs souhaitées. Vous trouverez des pulls avec ces épaules et cette tension, l'un d'eux pourra peut-être vous inspirer? Bon tricot!
29.04.2026 - 08:13
Coco skrifaði:
Bjr\\r\\nJ\\\'ai commencé la taille M, le dos \\r\\nMon échantillon fait 17 mailles au lieu de 19, pourquoi mon encolure ne fait que 14 cm au lieu de 16 cm ? \\r\\nJ\\\'ai gardé la même tension et je ne tricote pas la torsade mais tout en jersey\\r\\nMerci
27.04.2026 - 14:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Coco, vous tricotez probablement un peu plus serré, car les 32 mailles en taille XS, S et M - 1 m de chaque côté (on va relever ensuite les mailles à 1 m du bord) doivent donner 16 cm (32-2)=30/1.9=16 cm environ. Bon tricot!
27.04.2026 - 16:13
Coco skrifaði:
Bjr\\r\\nJ\\\'ai commencé la taille M, le dos \\r\\nMon échantillon fait 17 mailles au lieu de 19, pourquoi mon encolure ne fait que 14 cm au lieu de 16 cm ? \\r\\nJ\\\'ai gardé la même tension et je ne tricote pas la torsade mais tout en jersey\\r\\nMerci
27.04.2026 - 14:39
Anne skrifaði:
In knitting pattern A1/A2,what does it mean when the pattern says ‘no stitch, skip this square’? What does you do with that stitch?
15.04.2026 - 03:57DROPS Design svaraði:
Dear Anne, when working first row in A.1 and A.2 you decreased 1 stitch, reason why there is no stitch on 2nd row in diagrams, so as you get only 2 sts, work 1 stitch, make 1 yarn over and work 1 stitch = there are 3 sts again. Happy knitting!
15.04.2026 - 08:10
Calm Spirit Sweater#calmspiritsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, litlum kaðli á bakstykki og rúllukanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-4 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið aðeins laust upp 32-32-32-34-36-36-42 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið síðan MYNSTUR og sléttprjón – lesið leiðbeiningar að ofan JAFNFRAMT því sem aukið er út – prjónið þannig: UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.1, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.2. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið A.2, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.1. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 14-15-17-18-19-21-22 sinnum (= 28-30-34-36-38-42-44 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 88-92-100-106-112-120-130 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni og A.1 / A.2 - Munið að fylgja prjónfestunni - þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-15-16 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú eru lykkjur auknar út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið A.1, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.2. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og A.1 og A.2. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-2-3-3-3 sinnum = 92-96-104-110-118-126-136 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-14-15-15-16-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út við handveg þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 28-30-34-36-38-42-44 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar) = 33-35-39-41-43-47-49 lykkjur, (prjónið næstu umferð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 28-30-34-36-38-42-44 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón fram og til baka (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar) = 33-35-39-41-43-47-49 lykkjur (= prjónið næstu umferð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 33-35-39-41-43-47-49 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 22-22-22-24-26-26-32 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar (passið uppá að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur), prjónið síðan 33-35-39-41-43-47-49 lykkjur frá vinstra framstykki = 88-92-100-106-112-120-130 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-26-27-29-30-31-32 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-2-3-3-3 sinnum = 92-96-104-110-118-126-136 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-28-29-31-32-33-34 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 92-96-104-110-118-126-136 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 4-6-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðan 92-96-104-110-118-126-136 lykkjur frá bakstykki eins og áður og fitjið upp 4-6-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 192-204-220-236-256-276-300 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring. Haldið áfram með A.1, A.2 og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 25-25-25-26-26-26-27 frá handvegi. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 32-34-36-36-38-46-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 224-238-256-272-294-322-348 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-7 cm niður á framstykki). Notið 2 þræði og prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 2,5 og byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 76-80-82-90-98-106-110 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fá betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10-10-10-11-12-13-14 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 10-10-10-11-12-13-14 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-4-4-4-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-4-4-4-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 12-14-14-14-14-18-18 sinnum (= 6-7-7-7-7-8-8 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-2-3-3-3-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 5-5-5-3½-3-2½-2½ cm alls 7-8-7-10-12-13-13 sinnum = 58-60-62-64-68-72-76 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-46-45-44-43-42-40 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 66-70-72-74-80-84-88 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 49-50-49-48-48-47-45 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5 og 2 þræði. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 98-106-108-116-118-126-128 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferðir slétt, 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið aðeins laust af. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #calmspiritsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.