DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af mjúku merino garni!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13266.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2526

Winter Sketch Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl og köðlum. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 264-1

#wintersketchsweater

DROPS Design: Mynstur ai-525
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-450-500-550-600-650-750 gr litur 02, Hveiti

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
12 lykkjur á breidd með mynstri A.2 á prjóna nr 5 = ca 5,3 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13266.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Byrjið við tilgreinda ör fyrir rétta stærð (á við um A.1 og A.3).
Ef ekki eru til nægilega margar lykkjur í kaðal, prjónið lykkjurnar í sléttprjóni.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum.
Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni.
Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring neðan frá og upp, í lokin eru ermarnar prjónaðar fram og til baka til að forma ermakúpu.
Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 34-34-34-34-34-34-34 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air.
Prjónið fyrstu umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-10-6-6-10-6-10 lykkjur jafnt yfir = 40-44-40-40-44-40-44 lykkjur.
Síðan er prjónað MYNSTUR – byrjið við tilgreinda ör fyrir valda stærð í mynsturteikningu A.1 og A.3:
UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið A.1, prjónið A.2 alls 2-1-2-2-1-2-1 sinnum (= 24-12-24-24-12-24-12 lykkjur), prjónið A.3.
UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Aukið er út þannig að lykkjurnar passi við mynstur sem hefur nú þegar verið prjónað innan við 3 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-8-12-12-8-12-8 sinnum (= 24-16-24-24-16-24-16 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 88-76-88-88-76-88-76 lykkjur í umferð.

Prjónið síðan þannig – allar stærðir byrja nú í umferð 1 í mynsturteikningu:
UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið A.1, prjónið A.2 6-5-6-6-5-6-5 sinnum (= 72-60-72-72-60-72-60 lykkjur), prjónið A.3.
UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-9-9-9-12-12-12 sinnum (= 6-18-18-18-24-24-24 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 100-112-124-124-124-136-124 lykkjur í umferð.

Í stærð XS, S, M og L er útaukningu lokið og mynstur byrjað – prjónið síðan frá næsta kafla. Í stærð XL, XXL og XXXL er síðan prjónað þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið A.1, prjónið A.2 0-0-0-0-5-6-5 sinnum (= 0-0-0-60-72-60 lykkjur), prjónið A.3.
UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-0-0-3-3-9 sinnum (= 0-0-0-0-6-6-18 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 100-112-124-124-136-148-160 lykkjur í umferð.
Mynstur er byrjað, frá réttu endar mynstrið með 10 fyrstu lykkjum í A.2 innan við 3 lykkjur sléttprjón.

Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið síðan með mynstur A.2 eins og áður með 3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið – Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 6-6-5-6-6-5-6 cm mælt frá merki yst meðfram handveg – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – nýjar lykkjur er prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.2.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.2.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum = 108-120-132-132-144-156-168 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist 10-10-9-10-10-9-10 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi – Athugið hvaða umferð er síðasta umferðin sem prjónuð var í A.2, síðar er mikilvægt að mynstrið á fram- og bakstykkinu sé í sömu umferð áður en stykkin eru sett saman til að mynda fram- og bakstykki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 30-34-42-42-46-54-58 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl = 31-35-43-43-47-55-59 lykkjur
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig:
3 lykkjur brugðið, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt / 6 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) út umferðina – mynstrið spegla ystu lykkjur á bakstykki.
Prjónið síðan mynstur fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 0-4-0-0-4-0-4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið A.4 þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

Prjónið þar til stykkið mælist 6-7-8-9-10-11-12 cm – stillið af að síðasta umferð sem prjónuð er sé frá röngu og athugið hvaða umferð er síðasta umferð sem prjónuð var í A.4, síðar á að prjóna mynstur á hægra framstykki jafn langt áður en aukið er út fyrir hálsmáli.
Nú eru lykkjur auknar út fyrir hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.4.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 35-39-47-47-51-59-63 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá röngu).
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkjur kantlykkju alveg yst á öxl, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 30-34-42-42-46-54-58 lykkjur) = 31-35-43-43-47-55-59 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig:
Prjónið 2-6-2-2-6-2-6 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt / 6 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur brugðið - mynstrið spegla ystu lykkjur á bakstykki.
Prjónið síðan mynstur fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

Prjónið þar til stykkið mælist 6-7-8-9-10-11-12 cm – passið uppá að mynstrið sé prjónað jafn langt og á vinstra framstykki áður en aukið er út fyrir hálsmáli.
Nú eru lykkjur auknar út fyrir hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, endið með 2 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.2.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 35-39-47-47-51-59-63 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu).
Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan – passið því uppá að mynstrið sé prjónað jafn langt á báðum framstykkjum.

FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman):
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir afgang af framstykki, fitjið upp 30-34-30-30-34-30-34 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið yfir vinstra framstykki með mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt = 100-112-124-124-136-148-160 lykkjur. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hálsmáli ganga jafnt upp með mynstri A.2 – passið því uppá að þær séu prjónaðar inn í mynstur í næstu umferð frá röngu.
Frá réttu endar mynstrið með 10 fyrstu lykkjum í A.2 innan við 3 lykkjur sléttprjón.
Prjónið mynstur A.2 fram og til baka með 3 lykkjur slétt í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist ca 24-26-29-30-32-35-36 cm – passið uppá að mynstrið sé prjónað jafn langt og á bakstykki áður en aukið er út fyrir handveg. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur A.2 eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 108-120-132-132-144-156-168 lykkjur í umferð.
Framstykkið mælist ca 28-30-33-34-36-39-40 cm. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu og prjónað er jafn langt í mynstri eins og á bakstykki.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 108-120-132-132-144-156-168 lykkjur frá framstykki með mynstri eins og áður, prjónið yfir bakstykkið með mynstri eins og áður, prjónið fyrstu 3 lykkjur frá framstykki eins og áður, setjið 1 merki í umferð (= byrjun umferðar) = 216-240-264-264-288-312-336 lykkjur. Stykkið er nú mælt héðan!
Síðan er prjónað í hring með mynstri eins og áður, mynstrið gengur jafnt upp undir ermi – passið uppá að kaðlisnúið í sömu umferð hringinn alla umferðina.
Prjónið hringinn þar til stykkið mælist 26-26-25-26-25-24-25 cm frá handvegi.
Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – stroffið passar í mynstrið. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66-68 cm, mælt innst við hálsmál, framstykkið er ca 2 cm lengra en tilgreint mál þar sem lykkjur voru prjónaðar upp eru ekki fyrir miðju ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykkið.

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 72-84-84-84-96-96-96 lykkjur á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið A.4 alls 6-7-7-7-8-8-8 sinnum umferðina hringinn. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, það á að nota merkiþráðinn þegar auka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
Haldið áfram með mynstur hringinn þar til ermin mælist 20 cm.
Nú á að auka út lykkjur í brugðnar lykkjur í hvorri hlið í byrjun umferðar þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur eins og áður (= kaðallinn situr í miðju á þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri) – útauknar lykkjur eru prjónaðar sem brugðnar lykkjur hvoru megin við kaðal í 2 lykkjur. Aukið svona út í hverjum 10-0-10-8-10-10-5 cm alls 3-0-2-4-2-3-5 sinnum = 78-84-88-92-100-102-106 lykkjur.
Þegar ermin mælist 47-45-45-46-45-43-42 cm, prjónið ermakúpuna eins og útskýrt er að neðan – næsta umferð er umferð með oddatölu í A.4 þannig að kaðli sé áfram snúið frá réttu.

ERMAKÚPA:
Í næstu umferð eru felldar af 16 lykkjur fyrir miðju undir ermi, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn þá byrjar umferðin 7 lykkjur á undan merkiþræði fyrir miðju undir ermi, fellið af 16 lykkjur (= kaðall með 2 lykkjur situr í miðju á þessum 16 lykkjum) og prjónið síðan eins og áður út umferðina = 62-68-72-76-84-86-90 lykkjur.
Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka með mynstri eins og áður JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af í byrjun hverrar umferðar þannig: Fellið af 4-4-4-4-5-5-6 lykkjur 2 sinnum í hvorri hlið, 3-3-3-3-4-4-4 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 40-46-50-54-56-58-58 lykkjur eftir, síðan eru felldar af 4-4-4-4-5-5-6 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 52-50-49-50-48-46-45 cm.
Fellið af þær lykkjur sem eftir eru jafnframt því sem allar lykkjur slétt eru prjónaðar 2 og 2 slétt saman.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp 96-100-100-104-104-108-108 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af aðeins laust.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar við handveg innan við 1 lykkju.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Aukið út 1 lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = Aukið út 1 lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2
Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt = Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
Diagram for DROPS 264-1
Diagram for DROPS 264-1
Diagram for DROPS 264-1
Diagram for DROPS 264-1

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintersketchsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (2)

country flag Cindy skrifaði:

Mooie trui voor kerst❤️😊. Zelfde vraag als onderstaand bericht. Wacht wel op wel het antwoord. Groetjes

09.09.2025 - 12:50

country flag Sandra skrifaði:

Is it possible to knit this sweater with Drops Puna when I make a swatch before knitting? I have a lot of this yarn left :-)

09.09.2025 - 11:11