Misty Horizon Cardigan#mistyhorizoncardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca eða 1 þræði DROPS BabyMerino og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, rúllukanti og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til vinstri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til hægri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU (= ný lykkja snýr til vinstri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU (= ný lykkja snýr til hægri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar framstykkið mælist ca 1 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 6½-7-7-7½-6½-6½-6½cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á öðru framstykkinu og prjónið lykkjur frá seinna framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir ermar og síðar fyrir fram- og bakstykki. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-32-34-36-38-40-40 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Baby Merino og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-10-10-10-10-11-11 sinnum (= 20-20-20-20-20-22-22 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 72-72-74-76-78-84-84 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-20-20-20-20-22-22 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-8-9 cm frá merki, aukið út lykkjur inn við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-5-5-5-5 sinnum (= 10-10-10-10-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 25-25-25-25-25-27-27 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 18-18-19-20-21-22-22 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 43-43-44-45-46-49-49 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið út umferðina. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist 11-11-12-12-12-13-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-9-9-9-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-3-3-3-3-3 cm. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónuð vinstri öxl meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 20-20-20-20-20-22-22 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-8-9 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-5-5-5-5 sinnum (= 10-10-10-10-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 25-25-25-25-25-27-27 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 18-18-19-20-21-22-22 nýjar lykkjur í lok umferðar, ekki klippa þráðinn = 43-43-44-45-46-49-49 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-12-13-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-9-9-9-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-3-3-3-3-3 cm. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt yfir lykkjur frá hægra framstykki þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 7 kantlykkjum að framan með I-cord = 194-194-202-206-214-226-230 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan og brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 198-198-206-210-218-230-234 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan og slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina, fellið af fyrir HNAPPAGAT í lok umferðar – lesið leiðbeiningar að ofan = 202-202-210-214-222-234-238 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kant að framan og brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 206-206-214-218-226-238-242 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið kant að framan og slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merki yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 210-210-218-222-230-242-246 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið með kant að framan í hvorri hlið eins og áður, án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 6: Prjónið umferð 5 og 6 alls 8-6-6-7-4-3-1 sinnum til viðbótar (= 16-12-12-14-8-6-2 umferðir prjónaðar). Það hefur verið aukið út alls 12-10-10-11-8-7-5 sinnum fyrir ermar = 44-40-42-44-40-38-36 lykkjur á hvorri ermi, 42-42-43-44-45-48-48 lykkjur á hvoru framstykki og 70-70-72-74-76-82-82 lykkjur á bakstykki = 242-234-242-250-246-254-250 lykkjur. Síðan eru lykkjur auknar út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjur á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukningu fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan og sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina eins og áður (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með kant að framan í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 6-10-11-13-16-19-22 sinnum á fram- og bakstykki og ermum. Aukið hefur verið út alls 18-20-21-24-24-26-27 sinnum á ermum = 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á hvorri ermi, 48-52-54-57-61-67-70 lykkjur á hvoru framstykki og 82-90-94-100-108-120-126 lykkjur á bakstykki = 290-314-330-354-374-406-426 lykkjur. Ermin mælist ca 13-15-16-18-18-20-20 cm – ATH: Þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 19-21-22-24-24-27-27 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram að tilgreindu máli án útaukninga. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-52-54-57-61-67-70 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 82-90-94-100-108-120-126 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 48-52-54-57-61-67-70 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-206-218-234-254-278-294 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 26-26-27-27-28-27-29 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 25-29-37-37-37-39-45 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kantlykkjur), prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) (munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður = 215-235-255-271-291-317-339 lykkjur. Prjónið stroff og kant að framan í 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-66-72-80-84-88-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 0-0-3-3-3-3-3 sinnum = 62-66-66-74-78-82-88 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 12-11-10-9-8-6-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 15-14-13-12-12-10-11 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið 1 þráð í hvorri tegund, byrjið frá réttu og prjónið upp ca 107 til 133 lykkjur í kringum hálsmál á prjóna 2,5, lykkjufjöldinn verður að vera í oddatölu. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og kant að framan eins og áður. Prjónið 1 umferð stroffprjón frá réttu á sama hátt. Prjónið 3 umferðir sléttprjón og fellið af aðeins laust í næstu umferð frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistyhorizoncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 39 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.