DROPS Super Sale - 6 vinsælar garntegundir á afslætti allan mánuðinn!
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 902.00 kr /25g
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 755.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16717.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2526

Autumn Walk Dress

Prjónaður kjóll úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, klauf í hliðum, rúllukanti og i-cord. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 262-4

#autumnwalkdress

DROPS Design: Mynstur as-206
Garnflokkur C + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL – XXXL
Vegna þyngdar á garninu þá kemur flíkin til með að verða nokkrum cm lengri / síðari við notkun í samanburði með mál á teikningu.

GARN:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
275-300-325-350-400-425-500 gr litur 05, Beige
Og notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
450-500-550-600-650-700-800 gr litur 607, Brúnn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 902.00 kr /25g
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 755.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16717.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STROFF MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kantinn þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kantinn þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5.
1
BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl.
2
FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að uppgefnu máli.
3
BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig:
Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram annarri hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur.
4.
ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum.
5
FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að óskuðu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 30-30-32-34-36-38-40 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Alpaca (= 2 þræðir).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-9-9-9-9-10-10 sinnum (= 18-18-18-18-18-20-20 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 66-66-68-70-72-78-80 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.

VINSTRI ÖXL:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 18-18-18-18-18-20-20 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja) = 19-19-19-19-19-21-21 lykkjur fyrir öxl.
Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 6-7-7-8-10-10-10 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-5-6-6 sinnum (= 8-8-10-10-10-12-12 umferðir prjónaðar) = 23-23-24-24-24-27-27 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-10-11-12-14-15-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 7-8-9-9-10-11-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-2-3-4-4-4 cm. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram hægri bakstykkis skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL:
Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxl (= kantlykkja), síðan er prjónuð upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 18-18-18-18-18-20-20 lykkjur) = 19-19-19-19-19-21-21 lykkjur fyrir öxl.
Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 6-7-7-8-10-10-10 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-5-6-6 sinnum = (8-8-10-10-10-12-12 umferðir prjónaðar) = 23-23-24-24-24-27-27 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-10-11-12-14-15-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 7-8-9-9-10-11-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-2-3-4-4-4 cm

FRAMSTYKKI:
Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig:
Prjónið slétt yfir 23-23-24-24-24-27-27 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 20-20-20-22-24-24-26 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 23-23-24-24-24-27-27 lykkjur frá vinstri öxl = 66-66-68-70-72-78-80 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 11-11-12-13-16-16-16 cm frá merki – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu.
Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan.
UMFERÐ 1: Prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20-20-22-24-28-28-28 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20-20-22-24-28-28-28 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki = 168-168-176-184-196-208-212 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Síðan er stykkið prjónað í hring.
UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur = 22-22-24-26-30-30-30 lykkjur á hvorri ermi og 64-64-66-68-70-76-78 lykkjur á framstykki / bakstykki = 172-172-180-188-200-212-216 lykkjur.

Síðan er prjónað í hring þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-11-8-8-7-6-3 sinnum (= 24-22-16-16-14-12-6 umferðir prjónaðar. Það hefur verið aukið út alls 13-12-9-9-8-7-4 sinnum á ermum = 46-44-40-42-44-42-36 lykkjur á hvorri ermi og 64-64-66-68-70-76-78 lykkjur á framstykki / bakstykki) = 220-216-212-220-228-236-228 lykkjur.

Næsta umferð er prjónuð þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma).
UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-5-8-10-12-14-18 sinnum (= 6-10-16-20-24-28-36 umferðir prjónaðar. Það hefur verið aukið út alls 16-17-17-19-20-21-22 sinnum á ermum og 3-5-8-10-12-14-18 sinnum á fram- og bakstykki = 52-54-56-62-68-70-72 lykkjur á hvorri ermi og 70-74-82-88-94-104-114 lykkjur á framstykki / bakstykki) = 244-256-276-300-324-348-372 lykkjur.

Ermin mælist ca 13-14-14-15-16-17-18 cm – ATH: Þegar kjóllinn er brotinn saman tvöfaldur við öxl, á stykkið að mælast ca 19-20-21-25-24-27-29 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handveg.
Ef stykkið mælist minna en þetta, er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 70-74-82-88-94-104-114 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 52-54-56-62-68-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 70-74-82-88-94-104-114 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 52-54-56-62-68-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 152-164-180-196-212-232-256 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 6-8-8-10-12-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðar þegar stykkið skiptist upp í klauf í hvorri hlið. Prjónið fram að fyrri merkiþræðinum, umferðin byrjar hér.
Nú eru sett 4 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þessi merki eru notuð þegar auka á út lykkjur í fram- og bakstykki.
Byrjið við merkiþráðinn / umferðin byrjar hér, teljið 10-10-11-11-12-12-13 lykkjur, setjið 1. merki á undan næstu lykkju,
teljið 56-62-68-76-82-92-102 lykkjur (= bakstykki), setjið 2. merki á undan næstu lykkju,
teljið 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur (= merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum lykkjum), setjið 3. merki á undan næstu lykkju,
teljið 56-62-68-76-82-92-102 lykkjur (= framstykki), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru 10-10-11-11-12-12-13 lykkjur eftir í umferð.
Síðan á að auka út lykkjur og stykkið skiptist upp fyrir klauf í hvorri hlið – lestu báða kaflana að neðan áður en þú prjónar áfram.

ÚTAUKNING:
Þegar stykkið mælist ca 7-9-10-11-11-12-13 cm frá skiptingunni er aukið út um 1 lykkju til vinstri eftir 1. og 3. merki og aukið er út um 1 lykkju til hægri á undan 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út í hverjum 2½-2½-2½-2½-2½-2½-2½ cm alls 8-8-8-10-10-10-10 sinnum og síðan í hverjum 4½-4½-4½-4½-4½-4½-4½ cm alls 8-8-8-7-7-7-7 sinnum (= alls 16-16-16-17-17-17-17 sinnum útaukningar við hvert merki) – lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki eykst, lykkjufjöldinn í hliðum undir ermum verður sá sami (= 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur).

KLAUF Í HVORRI HLIÐ:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-38-39-40 cm frá skiptingunni, prjónið A.1 yfir miðju 12 lykkjur í hvorri hlið (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 12 lykkjum), aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjón eins og áður.
Endurtakið þessar fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 46-47-48-49-49-50-51 cm frá skiptingunni, nú er síðasta umferð í A.1 prjónuð, þ.e.a.s. það er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið, skiptið stykkinu við merkiþræðina, þ.e.a.s. fyrir miðju í A.1.
Setjið lykkjur frá framstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið fram og til baka yfir lykkjur frá bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 lykkjur STROFF MEÐ I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan (munið eftir að halda áfram með útaukningu).
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 110-116-124-134-142-152-164 lykkjur í umferð.
Prjónið þar til stykkið mælist 106-108-110-111-113-114-116 cm frá skiptingunni – nú eru eftir ca 4-4-4-5-5-6-6 cm að loka máli – mátið e.t.v. kjólinn og prjónið að óskaðri lengd / sídd fyrir stroff.
Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 13-13-15-15-17-17-19 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið) = 123-129-139-149-159-169-183 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 7 lykkjur stroff með i-cord eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 lykkjur stroff með i-cord eins og áður.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – fellið e.t.v. af með ítalskri affellingu.
Kjóllinn mælist ca 110-112-114-116-118-120-122 cm mælt frá toppi á öxl.

FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði / hjálparprjóni á prjón 4 og prjónið framstykkið á sama hátt og bakstykkið.

ERMAR:
Setjið 52-54-56-62-68-70-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-64-72-80-82-86 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-2-2 cm alls 4-4-3-3-3-2-2 sinnum = 50-54-58-66-74-78-82 lykkjur í umferð.

Prjónið síðan þar til ermin mælist 14-14-13-13-12-12-11 frá skiptingunni. Nú er lykkjum aukið út fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverjum 6-6-6-5-5-5-5 cm alls 2-2-2-2-2-2-2 sinnum = 54-58-62-70-78-82-86 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-38-39-37-37-34-34 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem fækkað er um 4-4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-54-58-66-74-78-82 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-6-6 cm prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum.
Ermin mælist ca 41-42-43-42-42-40-40 cm frá skiptingunni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 74-76-82-86-94-100-102 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir þar til 106-110-118-124-134-142-148 lykkjur eru á prjóni – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 14-14-14-15-15-16-16 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – fellið e.t.v. af með ítalskri affellingu.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu<br />
<br />
= Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í lykkjuna af kaðlaprjóni (= 1 lykkja fleiri) = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í lykkjuna af kaðlaprjóni (= 1 lykkja fleiri)
Endurtakið = Endurtakið
Diagram for DROPS 262-4

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnwalkdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.