Rain Trail Sweater#raintrailsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og litlum köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-7 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð sem auka út yfir (t.d. 90 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 124-124-132-132-140-148-148 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff og MYNSTUR í kanti í hálsmáli – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 30-30-34-34-38-42-42 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 30-30-34-34-38-42-42 lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna stroff og mynstur svona þar til kantur í hálsmáli mælist 8-9-9-10-10-11-11 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, A.1, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, A.1, prjónið slétt yfir næstu 30-30-34-34-38-42-42 lykkjur, A.1, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, A.1, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, A.1, prjónið slétt yfir næstu 30-30-34-34-38-42-42 lykkjur (= 8 lykkjur færri) = 116-116-124-124-132-140-140 lykkjur. Kantur í hálsmáli hefur nú verið prjónaður til loka. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 43-43-45-45-47-49-49 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 8 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett hvoru megin við 4 lykkjur (= A.1), þessar 4 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í byrjun umferðar, teljið 4 lykkjur (= A.1 = laskalykkjur), Setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-20-20-20-20 lykkjur (= ermi), Setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= A.1 = laskalykkjur), Setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 30-30-34-34-38-42-42 lykkjur (= framstykki), Setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= A.1 = laskalykkjur), Setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-20-20-20-20 lykkjur (= ermi), Setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= A.1 = laskalykkjur), Setjið 8. merki á undan næstu lykkju, það eru eftir 30-30-34-34-38-42-42 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – sjá útskýringu að ofan með leiðbeiningum með hvernig auka á út og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með A.1 eins og áður (þ.e.a.s. meðfram hverri laskalínu og miðju ofan á báðum ermum) – að auki er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir 2. merki og í lok umferðar er aukið út á undan 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í laskalínu). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-6-8-11-16-13-9 sinnum (= 20-12-16-22-32-26-18 prjónaðar umferðir) = 196-164-188-212-260-244-212 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 4. og 8. merki og á undan 5. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-12-12-12-11-14-17 sinnum (= 40-48-48-48-44-56-68 prjónaðar umferðir = 10-12-12-12-11-14-17 sinnum útaukning á ermum og 20-24-24-24-22-28-34 sinnum útaukning á framstykki / bakstykki) = 316-308-332-356-392-412-416 lykkjur. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 20-18-20-23-27-27-26 sinnum á ermum og 30-30-32-35-38-41-43 sinnum á framstykki / bakstykki. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-21-23-25-27-29-31 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir fyrstu 4 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 60-56-60-66-74-74-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-16-16-18-18-22-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 98-98-106-112-122-132-136 lykkjur í sléttprjóni og mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-56-60-66-74-74-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-16-16-18-18-22-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 94-94-102-108-118-128-132 lykkjur í sléttprjóni og mynstur eins og áður (= afgangur af bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-228-244-260-280-308-328 lykkjur. Umferðin heldur áfram á undan 1. merki frá berustykki. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. A.1 eins og áður þar sem laskalykkjur halda áfram á fram- og bakstykki – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 39-41-43-44-46-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroffprjón JAFNFRAMT sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir í umferð 1 þannig: UMFERÐ 1: Prjónið A.1 eins og áður, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8-16-16-18-8-22-28 lykkjur og aukið jafnframt út 2-6-6-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 10-22-22-22-22-26-34 lykkjur stroffprjón), prjónið A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 90-90-98-104-114-124-128 lykkjur og aukið jafnframt út 24-24-24-26-32-34-34 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 114-114-122-130-146-158-162 lykkjur stroffprjón), prjónið A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8-16-16-18-18-22-28 lykkjur og aukið jafnframt út 2-6-6-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 10-22-22-22-22-26-34 lykkjur stroffprjón), prjónið A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 90-90-98-104-114-124-128 lykkjur og aukið jafnframt út 24-24-24-26-32-34-34 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 114-114-122-130-146-158-162 lykkjur stroffprjón) = 264-288-304-320-352-384-408 lykkjur í umferð. Prjónið stroffprjón og mynstur hringinn þar til stroffið mælist 8-8-8-9-9-10-10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-56-60-66-74-74-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-16-16-18-18-22-28 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-72-76-84-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-16-16-18-18-22-28 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með A.1 fyrir miðju ofan á ermi – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig. Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 0-0-1-3-4-5-5 sinnum = 64-68-70-74-78-80-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-38-36-34-32-29-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-22-20-24-24-22-26 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 82-90-90-98-102-102-110 lykkjur – ATH: Lykkjum er ekki aukið út yfir A.1 og útaukningu er stillt af þannig að stroffið gangi rétt upp með 2 lykkjur brugðið hvoru megin við A.1 (þ.e.a.s. A.1 heldur áfram í stroffprjóni). Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-10-10 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-46-44-43-41-39-38 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raintrailsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.