Vanille skrifaði:
Bonjour Je tricote la taille 3/4 ans. Je ne comprends pas vos calculs pour les manches. 54 mailles après avoir relevé 6 mailles =OK. Diminutions 11fois 2mailles = 22 mailles. 54 -22 = 32 mailles et non 42 . 2cm + 11 × 4cm ( une diminution tous les 4 cm) = 46 cm ! La manche avant les côtes doit mesurer 24 cm avant la division . Comment est ce possible ?
30.08.2025 - 10:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Vanille, il faut en fait diminuer 6 fois dans toutes les tailles, ainsi vous aurez bien vos 54 mailles - 2x6 = 42 mailles. Merci pour votre retour, la correction a été faite. Bonne continuation!
01.09.2025 - 16:22
Megan VM skrifaði:
For the yoke it says “ Continue with stockinette stitch without further increases until the yoke measures … from the marker mid-front.” I don’t understand what “marker mid-front” is. Where should I be measuring from? Thanks in advance!
24.08.2025 - 13:29DROPS Design svaraði:
Hi Megan VM: we have placed marker when we done the neck - see: "NECK:...Insert 1 marker after the first 29-31-31-31-33-33-33 stitches (approx. mid-front); the piece is now measured from here." So this is the point for yoke to be measured from :-) Happy knitting!
24.08.2025 - 17:53
Natka skrifaði:
Czy tu nie ma błędu w momencie: Dalej przerabiać dżersejem, bez dodawania oczek, aż długość karczku wynosi 14-15-16-17-18-19? Na rysunku jest 13-14-15- itd.
18.08.2025 - 12:59DROPS Design svaraði:
Witaj Natalio, brakuje jednej cyfry czyli 13 na początku ciągu cyfr w opisie we wzorze. Na rysunku wszystko jest ok. Dziękujemy za informację o błędzie. Pozdrawiamy!
18.08.2025 - 13:27
Sage Bud Sweater#sagebudsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 49-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-88-88-88-96-96-96 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 29-31-31-31-33-33-33 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Prjónið 1 lykkju slétt, umferðin byrjar á milli 2 lykkja slétt frá stroffi. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjónað lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur. Setjið 1. merki á undan fyrstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-28-28-28-32-32-32 (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru eftir 24-28-28-28-32-32-32 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjur alls 16-17-18-19-20-21-21 sinnum = 208-224-232-240-256-264-264 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 2-1-2-3-2-3-4 sinnum til viðbótar = 216-228-240-252-264-276-280 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18-19 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju (= tilheyrir bakstykki, setjið næstu 46-48-50-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-6-6-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 62-66-70-74-78-82-84 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-6-6-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 61-65-69-73-77-81-83 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176-184 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 27-30-34-38-41-43-45 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 24-28-28-32-32-36-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 160-172-180-192-200-212-220 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 30-33-37-41-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-50-52-54-56-56 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 52-54-56-58-60-62-64 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-6-6-6-6-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 3-4-4½-5½-6-7-7½ cm alls 6 sinnum = 40-42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar ermin mælist 20-24-28-32-34-38-42 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-2-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-27-31-35-38-42-46 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sagebudsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.