Anna skrifaði:
How to i secure a folded neckline after jumper is finished. Knitting mens glacier ice raglan sweater top down
25.05.2025 - 23:11DROPS Design svaraði:
Dear Anna, see in video here how to sew a folded neck. Happy assembly!
26.05.2025 - 10:30
Sofia Ch skrifaði:
I want to knit this sweater in size 4 or 5 XL What is the caston stitches and where shall i put the markers, Is there a pattern for bigger sizes?
19.04.2025 - 14:09DROPS Design svaraði:
Dear Sofia, we don't make custom patterns. You can check this lesson on how to calculate a pattern according to your gauge. Then, once you know how many initial stitches you have you can calculate through rule-of-three how to adjust the rest of the instructions. Happy knitting!
21.04.2025 - 00:06
Hailey skrifaði:
It says to make sure to keep the seam elastic, is there a specific way to sew the ribbing for the neck to make sure it stays elastic?
18.04.2025 - 23:10DROPS Design svaraði:
Hi Hailey, Here is a link to our video showing you how to avoid a tight seam when sewing the neck double to the inside: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1637&lang=en Happy Easter!
19.04.2025 - 17:13
Glacier Whisper#glacierwhispersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 251-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Alaska. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-9-11-11-11 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4-4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-32-33-34-35-36-37 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjóni 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur kallast nú laskalykkjur. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 17 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-25-27-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 17 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það er eftir 25-25-27-29-31-33-35 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið 1 umferð þannig: * Prjónið 19 lykkjur slétt, prjónið næstu 25-25-27-29-31-33-35 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 2-4-4-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 27-29-31-33-35-39-41 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 92-96-100-104-108-116-120 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalínu (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-8-10-13-13-13-11 sinnum (= 12-16-20-26-26-26-22 prjónaðar umferðir) = 140-160-180-208-212-220-208 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjum er ekki aukið út yfir á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-7-7-6-7-8-10 sinnum (= 28-28-28-24-28-32-40 prjónaðar umferðir). Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 20-22-24-25-27-29-31 sinnum á framstykki og bakstykki og 13-15-17-19-20-21-21 sinnum á ermum = 114-244-264-280-296-316-328 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-22-23-25-27-29 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið næstu umferð þannig: Setjið fyrstu 45-49-53-57-59-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 67-73-79-83-89-97-103 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 45-49-53-57-59-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 67-73-79-83-89-97-103 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-162-178-190-206-226-246 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 49-51-53-55-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 170-182-198-212-230-252-274 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8-8 cm fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 56-58-60-62-64-66-68 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 62-64-66-68-70-72-74 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-49-53-57-59-61-61 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-14-16-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið leiðbeiningar ERMI = 53-57-63-69-73-77-81 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-12-14-16-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 14-8-6-4½-4-3½-3 cm alls 4-6-8-10-11-12-13 sinnum = 45-45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 48-48-47-46-44-42-40 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 52-52-52-56-56-60-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8-8 cm er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 55-55-54-53-52-50-48 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #glacierwhispersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 251-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.