Wispy Dandelion Cardigan#wispydandelioncardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með stuttum ermum út 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með axlasæti, klauf í hliðum, i-cord og rúllukanti. Stærð XS - XXL.
DROPS 258-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, fellið af frá réttu (kantur að framan = 8 lykkjur): UMFERÐ 1: Prjónið fyrstu 3 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 4. Og 5. Kantlykkju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan mælist 9-9-10-8-10-9½ cm, síðan er fellt af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 17½-26-34½-43 cm. S: 18-27-36-45 cm. M: 18½-28-37½-47 cm. L: 16-24-32-40-48 cm. XL: 18-26-34-42-50 cm. XXL: 18-26½-35-43½-52 cm. (= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í fyrstu umferð frá kanti í hálsmáli). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku á ermum og úrtöku á axlarsæti): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Á UNDAN MERKI: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Á EFTIR MERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuarnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku á ermum): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Á UNDAN MERKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Á EFTIR MERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrst eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig upp að handvegi þannig að það verður klauf í hvorri hlið, við handveg er stykkið geymt. Ermar eru prjónaðar í hring upp að handveg, síðan eru stykkin sett inn á sama hringprjón. Á berustykkinu er lykkjum fækkað fyrir ermar og axlarsæti. Prjónaður er kantur í hálsmáli. Í lokin er stykkið saumað saman í hliðum eins og útskýrt er í mynstri. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 62-66-70-78-82-86 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 17-17-18-22-21-21 lykkjur jafnt yfir – lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan og kantlykkjur = 45-49-52-56-61-65 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og 8 kantlykkjur að við miðju að framan eins og áður. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þar til stykkið mælist 25 cm, stillið af að næsta umferð sem prjónuð er sé frá röngu og fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg = 42-46-48-52-56-60 lykkjur. Prjónið út umferðina eins og áður. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 62-66-70-78-82-86 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 17-17-18-22-21-21 lykkjur jafnt yfir – lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan og kantlykkjur = 45-49-52-56-61-65 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og 8 kantlykkjur að við miðju að framan eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 25 cm, í næstu umferð frá röngu eru felldar af síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg = 42-46-48-52-56-60 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. BAKSTYKKI: Fitjið upp 106-118-126-134-150-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 30-34-36-36-42-46 lykkjur jafnt yfir – lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur = 76-84-90-98-108-116 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 25 cm, stillið af að næsta umferð sem prjónuð er sé frá réttu og fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 70-78-82-90-98-106 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 46-50-56-62-66-68 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir slétt (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar (= fyrir miðju undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út fyrir miðju undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og endurtakið útaukningu í hverjum 4-2½-2½-2½-2-1½ cm alls 4 sinnum = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 17-14-14-14-13-11 cm. Fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn) = 48-52-56-62-64-66 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. BERUSTYKKI: Nú er prjónað áfram í sléttprjóni (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) jafnframt sem í fyrstu umferð eru sett 4 merki í stykkið, merkin eru sett á milli 2 lykkja og merkin eru notuð þegar lykkjum er fækkað fyrir ermar og axlarsæti. Byrjið frá réttu á hægra framstykki, síðan er ermin prjónuð, bakstykkið, ermi og vinstra framstykki. Prjónið þannig: Prjónið 46-48-50-51-52-54 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú framstykki), setjið 1. merkið hér, prjónið 40-48-52-64-72-78 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú ermi), setjið 2. merki hér, prjónið 78-82-86-88-90-94 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú bakstykki), setjið 3. merki hér, prjónið 40-48-52-64-72-78 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú ermi), setjið 4. merki hér og prjónið 46-48-50-51-52-54 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú vinstra framstykki) = 250-274-290-318-338-358 lykkjur. Látið þessi 4 merki fylgja áfram með, það á að fækka lykkjum við hvert og eitt af þessum merkjum. Prjónið 1-0-0-1-0-0 cm sléttprjón fram og til baka með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan. Nú á að prjóna úrtöku í ermum eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA ERMI-1 (á við um stærð S, M, L og XXL): Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! ATH! Lykkjum er ekki fækkað með þessum hætti í stærð XS, prjónið frá ÚRTAKA ERMI-2 í þessari stærð. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjur á ermum eins og útskýrt er að neðan. Fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 1. og 3. merki og fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Lykkjum er einungis fækkað á ermum (fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 0-1-2-7-8-9 sinnum = 250-266-274-262-274-286 lykkjur. ÚRTAKA ERMI-2: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. Fækkið um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. merki og fækkið um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Lykkjum er einungis fækkað á ermum (fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-15-15-10-12-13 sinnum = 198-206-214-222-226-234 lykkjur (það eru 14-14-14-16-16-16 lykkjur eftir á ermi). Eftir alla úrtöku fyrir ermar mælist stykkið ca 14-16-17-18-20-22 cm från frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg. Síðan er lykkjum fækkað fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. AXLARSÆTI-1: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. merki og fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Lykkjum er einungis fækkað á framstykkjum og bakstykki (fjöldi lykkja á ermum verður sá sami). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4-5-5-5-5 sinnum = 166-174-174-182-186-194 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Stykkið mælist ca 44-46-47-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn, setjið 8 kantlykkjur í hvorri hlið á þráð = 150-158-158-166-170-178 lykkjur. Nú byrjar úrtaka fyrir hálsmáli, JAFNFRAMT sem úrtaka fyrir axlarsæti heldur áfram, lestu því ÚRTAKA HÁLSMÁL og AXLARSÆTI-2 áður en þú prjónar áfram! HÁLSMÁL: Fellið af frá réttu, fellið af lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 8-10-10-11-12-14 lykkjur 1 sinni, fellið af 3 lykkjur 1 sinni, fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 3 sinnum. AXLARSÆTI-2: Haldið áfram að fækka um 8 lykkjur fyrir axlarsæti í annarri hverri umferð 7-7-7-7-7-7 sinnum til viðbóta (fækkað alls 11-11-12-12-12-12 sinnum fyrir axlarsæti) og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Á EFTIR SÍÐUSTU ÚRTÖKU: Það eru 62-66-66-72-74-78 lykkjur í umferð (14-14-14-16-16-16 lykkjur á hvorri ermi, engar lykkjur á framstykki og 34-38-38-40-42-46 lykkjur á bakstykki). Berustykkið mælist ca 25-27-29-30-32-34 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg og peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn, nú á að prjóna frá réttu í hægri kanti að framan. Byrjið frá réttu við miðju að framan. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN yfir 8 kantlykkjur að framan af þræði, prjónið upp ca 16-18-18-19-20-22 lykkjur meðfram hægri kanti í hálsmáli, prjónið slétt út umferðina, prjónið upp ca 16-18-18-19-20-22 lykkjur meðfram vinstri kanti í hálsmáli, prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN yfir 8 kantlykkjur að framan af þræði = ca 110-118-118-126-130-138 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður), jafnframt er fækkað um 8-12-12-12-12-16 lykkjur jafnt yfir lykkjur með brugðnum lykkjum = 102-106-106-114-118-122 lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 8 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið 1 umferð stroff. Prjónið 4 umferðir sléttprjón með 8 kantlykkjur að framan eins og áður. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma – byrjið efst við handveg og saumið í ysta lykkjubogann á ystu lykkju þannig að saumurinn verði flatur, að óskaðri lengd á klauf í hvorri hlið (það verður sýnilegur kantur með 8 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki). Saumið opið undir ermum við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wispydandelioncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.