Jytte Dein skrifaði:
Jeg syns det virker litt rart at man begynner på ermehull etter bare 25 cm på for og bakstykke. Da på diagrammet ser tegningen under ermehullene større enn der hvor ermet er satt på til man begynner på hals. Hhv 25 cm og 27 cm. Jeg skjønner ikke at for og bakstykke ikke skal være længre...
29.03.2025 - 12:51
Wispy Dandelion#wispydandelionsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með stuttum ermum út 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með axlasæti, rúllukanti og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 258-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku á ermum og úrtöku á axlarsæti): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Á UNDAN MERKI: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Á EFTIR MERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuarnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku á ermum): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Á UNDAN MERKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Á EFTIR MERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrst er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig upp að handvegi þannig að það verður klauf í hvorri hlið, við handveg er stykkið geymt. Ermar eru prjónaðar í hring upp að handveg, síðan eru stykkin sett inn á sama hringprjón. Á berustykkinu er lykkjum fækkað fyrir ermar og axlarsæti. Prjónaður er kantur í hálsmáli. Í lokin er stykkið saumað saman í hliðum eins og útskýrt er í mynstri. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Fitjið upp 106-118-126-134-150-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 30-34-36-36-42-46 lykkjur jafnt yfir – lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur = 76-84-90-98-108-116 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þar til stykkið mælist 25 cm, stillið af að næsta umferð sem prjónuð er sé frá réttu og fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 70-78-82-90-98-106 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 46-50-56-62-66-68 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir slétt (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar (= fyrir miðju undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út fyrir miðju undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og endurtakið útaukningu í hverjum 4-2½-2½-2½-2-1½ cm alls 4 sinnum = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 17-14-14-14-13-11 cm. Fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn) = 48-52-56-62-64-66 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. BERUSTYKKI: Nú er framstykkið, bakstykkið og ermar sett inn á sama hringprjón og síðan er prjónað í sléttprjóni jafnframt því sem í fyrstu umferð eru sett 4 merki í stykkið, merkin eru sett á milli 2 lykkja og merkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir ermar og axlarsæti – látið merkin fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið þannig: Prjónið að miðju á bakstykki, prjónið næstu 39-41-43-44-45-47 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú bakstykki), setjið 1. merkið hér, prjónið 40-48-52-64-72-78 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú ermi), setjið 2. merki hér, prjónið 78-82-86-88-90-94 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú framstykki), setjið 3. merki hér, prjónið 40-48-52-64-72-78 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú ermi), setjið 4. merki hér, prjónið síðan fram að 1. merki (þessar lykkjur tilheyra nú bakstykki). Það eru 40-48-52-64-72-78 lykkjur á milli 1. og 2. merkis og á milli 3. og 4. merkis (= ermar) og það eru 78-82-86-88-90-94 lykkjur á milli 2. og 3. merkis og á milli 4. og 1. merkis (= framstykki/bakstykki) og 236-260-276-304-324-344 lykkjur í umferð. Byrjið umferð strax eftir 1. merki og prjónið sléttprjón hringinn í 1-0-0-1-0-0 cm, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar úrtaka eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA ERMI-1: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur á ermum eins og útskýrt er að neðan. Fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 1. og 3. merki og fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Lykkjum er einungis fækkað á ermum (fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 0-1-2-7-8-9 sinnum = 236-252-260-248-260-272 lykkjur. ÚRTAKA ERMI-2: Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. Fækkið um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. merki og fækkið um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Lykkjum er einungis fækkað á ermum (fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 13-15-15-10-12-13 sinnum = 184-192-200-208-212-220 lykkjur (það eru 14-14-14-16-16-16 lykkjur eftir á ermi). Eftir alla úrtöku fyrir ermar mælist stykkið ca 14-16-17-18-20-22 cm från frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg. Síðan er lykkjum fækkað fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. AXLARSÆTI-1: Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. merki og fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Lykkjum er einungis fækkað á framstykki og bakstykki (fjöldi lykkja á ermum verður sá sami). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-5-5 sinnum = 152-160-160-168-172-180 lykkjur. Stykkið mælist ca 44-46-47-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Passið uppá að næsta umferð sem er prjónuð sé umferð þar sem lykkjum er ekki fækkað. Prjónið 1 umferð slétt og fellið af 18-22-22-24-26-30 miðju lykkjur á framstykki fyrir hálsmáli – ATH! Prjónið út umferðina eins og áður og klippið þráðinn hér. Nú á að prjóna stykkið fram og til baka frá miðju að framan og fyrsta umferð sem er prjónuð er frá réttu, JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað fyrir axlarsæti og hálsmáli, lestu því næstu 2 kafla áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 3 sinnum. AXLARSÆTI-2: Haldið áfram að fækka um 8 lykkjur fyrir axlarsæti eins og áður í hverri umferð frá réttu 7-7-7-7-7-7 sinnum til viðbóta, lykkjum hefur verið fækkað alls 11-11-12-12-12-12 sinnum fyrir axlarsæti og síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Á EFTIR SÍÐUSTU ÚRTÖKU: Það eru 62-66-66-72-74-78 lykkjur í umferð (14-14-14-16-16-16 lykkjur á hvorri ermi, engar lykkjur á framstykki og 34-38-38-40-42-46 lykkjur á bakstykki). Berustykkið mælist ca 25-27-29-30-32-34 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg og peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Nú á að færa byrjun umferðar aftan við hnakka, færið lykkjur sem voru núna prjónaðar af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þar til hægt er að prjóna frá ca miðju að aftan. Notið hringprjón 3,5 og prjónið sléttprjón fram að þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli, prjónið upp ca 34-38-38-40-42-46 lykkjur meðfram affellingu fyrir hálsmáli og prjónið sléttprjón aftur fram að miðju að aftan = ca 96-104-104-112-116-124 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) jafnframt sem í fyrstu umferð er fækkað um 12-12-12-12-12-20 lykkjur jafnt yfir = 84-92-92-100-104-104 lykkjur. Prjónið 3 umferðir stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Prjónið 4 umferðir slétt (= rúllukantur) og fellið af með hringprjón 5,5. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma – byrjið efst við handveg og saumið í ysta lykkjubogann á ystu lykkju þannig að saumurinn verði flatur, að óskaðri lengd á klauf í hvorri hlið (það verður sýnilegur kantur með 8 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki). Saumið opið undir ermum við fram- og bakstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wispydandelionsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.