Freshwater Bay Cardigan#freshwaterbaycardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og pífu. Stærð XS – XXL.
DROPS 259-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 179 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8½-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 101-103-109-111-117-119 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-3½-3½-3½ cm – síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hlið á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 20-20-22-22-24-24 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 27-29-31-33-35-37 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju. Það eru 20-20-22-22-24-24 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, prjónið 14-14-16-16-18-18 lykkjur brugðið jafnframt því sem aukið er út um 0-0-0-1-3-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið laskalykkju brugðið (= hægra framstykki), prjónið 15 lykkjur brugðið (= ermi), prjónið laskalykkju brugðið, prjónið 27-29-31-33-35-37 lykkjur brugðið JAFNFRAMT því sem aukið er út um 0-0-0-2-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið laskalykkju brugðið (= bakstykki), prjónið 15 lykkjur brugðið (= ermi), prjónið laskalykkju brugðið, prjónið 14-14-16-16-18-18 lykkjur brugðið JAFNFRAMT sem aukið er út um 0-0-0-1-3-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 6 kantlykkjum að framan (= vinstra framstykki) = 101-103-109-115-129-131 lykkjur í umferð. Nú er prjónað sléttprjón og kant að framan jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig – ATH: Fellt er af fyrir hnappagötum í fyrstu umferð – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-12-14-17-18-18 sinnum (= 22-24-28-34-36-36 umferðir prjónaðar) = 189-199-221-251-273-275 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu! Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-6-6-5-5-6 sinnum (= 24-24-24-20-20-24 prjónaðar umferðir = 12-12-12-10-10-12 sinnum útaukning á framstykkjum / bakstykki og 6-6-6-5-5-6 sinnum útaukning á ermum) = 261-271-293-311-333-347 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-24-26-27-28-30 sinnum á framstykkjum og bakstykki 17-18-20-22-23-24 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-22-24-25-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-45-49-51-56-58 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 49-51-55-59-61-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-79-85-91-99-105 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 49-51-55-59-61-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-45-49-51-56-58 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 179-189-207-221-243-257 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-50-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-32-34-40-42-44 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 209-221-241-261-285-301 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5 cm fellið aðeins laust af. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 49-51-55-59-61-63 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-61-67-73-77-81 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið 2 lykkjur í hverjum 3½-3½-2½-2-2-1½ cm alls 10-10-13-14-16-18 sinnum = 37-41-41-45-45-45 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-37-35-34-34-32 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 32-36-36-40-40-40 lykkjur. Nú er aukið út fyrir pífu, prjónið þannig: Prjónið A.1 alls 8-9-9-10-10-10 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 56-63-63-70-70-70 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 45-45-43-42-42-40 cm frá skiptingunni – pífan mælist ca 8 cm. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið aðeins laust af. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freshwaterbaycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.