Hedvika skrifaði:
Hi! Any suggestion about mix of different colours? I’m scared I would choose wrong mix of colours- maybe some green or blue mix? Thank you for your help!
11.08.2026 - 17:24DROPS Design svaraði:
Dear Hedvika, feel free to contact your DROPS store, even per mail or telephone, you will get helped choosing the best colors matching your wishes. Happy knitting!
12.08.2026 - 07:10
Imi skrifaði:
In maat xxl wil ik deze trui breien. Ik zag op jullie social media account een leuke combinatie van drops melody 14 vanilla en 17 hot pink. Ik vraag me af als ik die 2 draden wil gebruiken ipv drops air in dit patroon, hoeveel bollen of gram ik nodig heb per kleur… Ik kom er maar niet uit. Alvast bedankt ☺️
24.02.2026 - 12:21DROPS Design svaraði:
Dag Imi,
Met de garenvervanger, waarvan een link staat onder de materialenlijst bij ieder patroon, kun je vervangend garen vinden voor je project. De benodigde hoeveelheid wordt dan ook gelijk aangegeven.
Verder hebben we een artikel op de site staan waarin uitgelegd is hoe je garen kunt vervangen door een ander garen en hoe je dit uitrekent. Zie hier.
24.02.2026 - 21:49
Sha skrifaði:
I am working on the largest size of this pattern and have noticed that for the marking of the sleeves and front, it only accounts for 44 stitches rather than the 48 that I was told to cast on. Am I missing a decrease of the 4 stitches somewhere, or did I do something else wrong?
18.10.2025 - 00:18DROPS Design svaraði:
Hi Sha, The markers are inserted into stitches. The first stitch is a marker-stitch, then count 7 stitches and insert the next marker into the next stitch which is stitch 9, count 15 stitches and insert the next marker into stitch 25 etc. The stitch count should then be correct. Regards, Drops team.
20.10.2025 - 06:58
Fruit Cocktail#fruitcocktailsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og sléttprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 257-22 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALÍNU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjónið og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALÍNU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. RÚNAÐUR AFFELLINGARKANTUR – (lykkjurnar eru teknar upp frá röngu og affellingin gefur hringlaga kant frá réttu þannig að stykkið kemur ekki til með að rúllast upp): Affellingsumferð: Finnið lykkjuna sem liggur 2 umferðum beint fyrir neðan næstu lykkju á prjóni. Takið þessa lykkju upp í efsta lykkjubogann frá röngu og lyftið henni upp á vinstri prjón. Prjónið lykkjubogann og fyrstu lykkju slétt saman. * Takið upp næstu lykkju í lykkjubogann á sama hátt og prjónið hana saman með næstu lykkju á prjóni. Fellið af með því að steypa 1. lykkju yfir 2. lykkju *, endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. Klippið og festið þráðinn í byrjun á affellingunni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Til að úrtakan komi til skiptis hægra og vinstra megin við merkiþráðinn er lykkjum fækkað til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem úrtakan er gerð. Fækkið lykkjum í byrjun umferðar með því að lyfta fyrstu lykkju í umferð af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar með því að prjóna síðustu 2 lykkjur í umferð slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 36-40-40-44-44-48 lykkjur á hringprjón 12 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Air (= 4 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 14-15-15-16-16-17 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 9-11-11-13-13-15 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 9-11-11-13-13-15 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við 4 laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 10-11-12-13-14-14 sinnum = 116-128-136-148-156-160 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt (= tilheyra bakstykki), setjið næstu 23-25-27-29-31-31 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-6-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 35-39-41-45-47-49 lykkjur í sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 23-25-27-29-31-31 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-6-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 32-36-38-42-44-46 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 78-86-94-102-106-114 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 4-4-6-6-6-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan. Prjónið RÚNAÐUR AFFELLINGARKANTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 23-25-27-29-31-31 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 12 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 27-29-33-35-37-39 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-4-6-6-6-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar þannig: Fækkið um 1 lykkju í hverjum 10-10-6-4-3½-3½ cm alls 4-4-6-8-8-8 sinnum (= 2-2-3-4-4-4 sinnum í hvorri hlið) = 23-25-27-27-29-31 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-42-41-38-37-37 cm frá skiptingunni og fellið af með rúnuðum affellingarkanti. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fruitcocktailsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.