Andrea Avril Alexander skrifaði:
Can you print patterns from bottom up as well as top down?? I do a lot of knitting an prefer bottom up
07.02.2025 - 13:06DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Alexander, this pattern is only available worked top down, find our patterns for jumpers worked bottom up here - feel free to add more filters. Happy knitting!
07.02.2025 - 15:58
Sweet Bell#sweetbellsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-6 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. TVEIR ÞRÆÐIR: Þegar skipt er um dokku, prófið að skipta um þræði á mismunandi stöðum þannig að þegar endar eru festir þá verður það ekki eins sýnilegt. Þegar prjónað er með 2 þráðum og einungis 1 dokka er eftir, er hægt að notað þráðinn bæði innan í og utan með dokkunni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-104-108-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk – lesið TVEIR ÞRÆÐIR í útskýringu að ofan. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 29-30-31-33-34-35 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaða fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 28-30-32-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 28-30-32-36-38-40 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan – þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri) – ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 10-10-13-17-16-13 sinnum (= 20-20-26-34-32-26 umferðir prjónaðar) = 168-172-200-240-236-216 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalínu (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki - lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 6-7-6-5-7-10 sinnum (= 24-28-24-20-28-40 umferðir prjónaðar = 6-7-6-5-7-10 sinnum útaukningar á ermum og 12-14-12-10-14-20 sinnum útaukningar á framstykki / bakstykki) = 240-256-272-300-320-336 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 22-24-25-27-30-33 sinnum á framstykki / bakstykki og alls 16-17-19-22-23-23 sinnum á ermum. Nú er prjónað í sléttprjóni yfir allar lykkjur án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-22-23-25-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 46-48-52-58-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-108 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-52-58-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 73-79-83-91-99-107 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-188-200-220-240-260 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 12-14-16-18-20-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram að fyrsta merkiþræði, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 5. hverjum cm alls 3 sinnum í öllum stærðum = 160-176-188-208-228-248 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 38-40-42-43-45-47 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú á að auka út lykkjum fyrir pífu, prjónað er þannig: Prjónið A.1 alls 40-44-47-52-57-62 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 280-308-329-364-399-434 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-1-0-1-0 lykkjur í umferð = 280-308-330-364-400-434 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-52-58-60-60 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-14-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 12-9-6-4-3-3 cm alls 4-5-7-10-11-11 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-42-41-39-37 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 2 umferðir slétt. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 45-44-43-42-40-38 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetbellsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.