Arlette Amiot skrifaði:
Je voudrais savoir si je peux avoir les patrons merci
18.01.2025 - 17:38
Monika skrifaði:
Liebes DROPS Team, ich habe folgende Frage: Bei der Passe steht geschrieben: "Glatt rechts mit der Farbe hellbeige weiterstricken und dabei gleichzeitig in der 1. Runde x Maschen gleichmäßig verteilt abnehmen". Muss es an dieser Stelle nicht eigentlich ZUNEHMEN statt ABNEHMEN heißen? Denn in der Strickschrifte erkenne ich, dass diese an dieser Stelle breiter wird, nicht schmäler. Aus meiner Sicht macht die Strickschrift Sinn, denn man strickt vom Hals in Richtung Brust. Danke
01.12.2024 - 21:10DROPS Design svaraði:
Liebe Monika, nach A.1 sind es 176-192-208-208-224-224-240 Maschen, aber nach A.1 muss man abnehmen damit die Arbeit nicht zu breit wird, so wird man zu 172-184-196-200-212-220-232 abnehmen, und weiter glattrechts stricken vor der Verteilung. Viel Spaß beim Stricken!
02.12.2024 - 10:42
Tanja Bjørn Puggaard skrifaði:
Ville være dejligt at få opskriften i voksenstørrelse ;o)
25.11.2024 - 17:53
Sabine skrifaði:
Hallo, gibt es diese Anleitung auch in Erwachsenengröße?😊
08.11.2024 - 08:39DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, genau dieses haben wir nicht für Erwachsene, aber hier finden Sie alle Weihnachtspullover, einschl. einige mit Reintieren. Viel Spaß beim Stricken!
08.11.2024 - 12:38
Elena skrifaði:
Love them all - so beautiful... Thank you for the early glimpse of Christmas and looking forward to your new Advent Calendar :)
01.11.2024 - 09:33
Rudolph's Parade#rudolphsparadesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki, hreindýrum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 – 14 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 48-15 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka eigi út jafnt yfir í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 6,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt yfir í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 208 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 17,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 16. og 17. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-68-72-76-76-80 lykkjur á hringprjón 5 með litnum ljós beige í DROPS Air. Skiptið yfir á sokkaprjóna / hringprjóna 3,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 7-7-7-9-9-9-9 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 3-3-3-4-4-4-4 cm. Byrjið umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 21-23-23-24-25-25-27 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-4-10-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan A.1 alls 11-12-13-13-14-14-15 sinnum hringinn á berustykki – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 15-15-15-15-18-18-18 cm frá merki = 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós beige jafnframt því sem í umferð 1 er fækkað um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 172-184-196-200-212-220-232. Þegar berustykkið mælist 15-15-16-17-18-19-20 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-120-128-132-140-144-148 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar héðan og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 15-19-22-24-27-28-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-20-24-24-24-24-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 132-140-152-156-164-168-176 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-54-56 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur frá ermi af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós beige – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-5-6-7-8-9-8 cm alls 4-4-4-4-4-4-5 sinnum = 34-36-38-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 16-21-25-27-31-35-39 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-6-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 40-44-44-44-48-48-52 lykkjur. Prjónið stroff í 4-4-4-5-5-5-5 cm. Fellið af með litnum akarn. Ermin mælist ca 20-25-29-32-36-40-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rudolphsparadesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.