Eeva skrifaði:
Ik volg maat M. Als ik meerder bij de hals heb ik volgens patroon 143 steken. Wanneer ik ga markeren hou ik 4 steken over. Ik moet markeren na 28. 21.41.21.28 steken dan kom ik op een totaal van 139 steken ik hou er dus 4 over. Hoe los ik dit op? Hoe moet ik dan markeren?
02.05.2025 - 08:57DROPS Design svaraði:
Dag Eeva,
Heb je de markeerdraden in de steken geplaatst? En niet tussen de steken? Ik denk dat dit het verschil van 4 steken veroorzaakt.
04.05.2025 - 09:13
Deborah skrifaði:
What does “I cord” mean ?
22.12.2024 - 21:18DROPS Design svaraði:
Dear Deborah, it's a type of edge, you can see how it's worked in the pattern instructions in the BANDS WITH I-CORD section. You can also watch this video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1805&lang=en. Happy knitting!
22.12.2024 - 22:47
Beata skrifaði:
Wydaje mi się, że coś nie zgadza się w objaśnieniach do schematów A2 i A3. Z opisu wychodzi mi ścieg fantazyjny dżersejem. Sweterek na modelce ma paski zrobione inaczej (ścieg francuski?). Jak mam zrobić paski takie jak w swetrze na zdjęciu?
07.11.2024 - 23:36DROPS Design svaraði:
Witaj Beato, paski są wykonane dżersejem, 2 kolorami, za to 2 rzędy przed wprowadzeniem koloru do żakardu, mamy sekwencję 1 oczko lewe, 3 oczka prawe i tak dalej przez całe okrążenie, taki mały wizualny akcent. Pozdrawiamy!
12.11.2024 - 09:49
Carina H skrifaði:
I stycket som handlar om raglanökningarna står slutligen står det ..det har ökats 32-32 -36- etc gånger på framstyckena etc och 18-20-24-etc gånger på ärmarna. Det vore tydligare om det istället för gånger stod maskor. Jag tolkade det först som att det ökats 32x8 maskor på framstyckena osv. Fick då inte maskantalet att stämma alls.
02.11.2024 - 11:32
Moon Phase Cardigan#moonphasecardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tveggja lita mynstri í röndum, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-25 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR: * Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2/A.3 (= 6 umferðir), síðan eru prjónaðar 14 umferðir í sléttprjóni með litnum ljós grár *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum á hæðina, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2/A.3 eins og áður, síðan er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár að loka máli. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að taka upp lykkjuna frá umferðinni að neðan, þ.e.a.s. takið upp lykkjuna sem liggur utan um ystu lykkjuna á vinstri prjóni og prjónið þessa lykkju slétt. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkju slétt (merkið situr í þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og síðan A.1 (= 6 lykkjur). Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 (= 6 lykkjur), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja A.1, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5 næstu hnappagötum með ca 8½-8½-8½-9-9-9 cm á milli hverra hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 127-131-135-143-147-155 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós grár í DROPS Karisma. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 8 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 8 kantlykkjur að framan með I-cord – munið eftir útskýringu að ofan. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og prjónið kant að framan eins og áður. Á EFTIR UMFERÐ 5: Síðan er prjónað sléttprjón og kant að framan þar til kantur í hálsmáli mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá uppfitjunarkanti jafnframt því sem aukið er út um 0-12-8-16-20-36 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá réttu – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 127-143-143-159-167-191 lykkjur – endið eftir umferð frá röngu. Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú er sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni með litnum ljós grár. Teljið 24-28-28-30-32-38 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 21-21-21-25-25-25 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 33-41-41-45-49-61 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 21-21-21-25-25-25 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju. Það eru 24-28-28-30-32-38 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Nú á að auka út fyrir LASKALÍNA og prjóna RENDUR og MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og lesið báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan- lesið útskýringu að ofan. LASKALÍNA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kant að framan og aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverri lykkju með merki í (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er að ofan). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-8-12-8-8-12 sinnum (= 8-16-24-16-16-24 prjónaðar umferðir) = 159-207-239-223-231-287 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni / mynstri og kant að framan eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftirr hverri lykkju með merki í (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni / inn í mynstur. UMFERÐ 3 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. lykkju með merki í, á eftir 2. lykkju með merki í, á undan 3. lykkju með merki í og á eftir 4. lykkju með merki í, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni / inn í mynstur. Prjónið umferð 1 til 4 alls 14-12-12-14-16-14 sinnum (= 56-48-48-56-64-56 prjónaðar umferðir). Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 32-32-36-36-40-40 sinnum á framstykkjum og bakstykki og 18-20-24-22-24-26 sinnum á ermum = 327-351-383-391-423-455 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-23-26-26-29-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. RENDUR Í MYNSTRI: Þegar prjónaðar hafa verið 16 umferðir með litnum ljós grár á eftir kanti í hálsmáli og næsta umferð er prjónuð frá réttu, prjónið RENDUR og MYNSTUR eins og útskýrt er að ofan og í hvert skipti sem prjóna á A.2/A.3, prjónið frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.2 fram að 1. merki, aukið út á undan/á eftir lykkju með merki (lykkja með merki er prjónuð með litnum ljós grár), prjónið A.3 fram að 2. merki (A.3 á að byrja á sama hátt og A.2 endaði á undan merki), aukið út á unda/á eftir lykkju með merki (lykkja með merki er prjónuð með litnum ljós grár), prjónið A.3 fram að 3. merki (A.3 á að byrja á sama hátt og A.3 endaði á undan merki), aukið út á undan/á eftir lykkju með merki (lykkja með merki er prjónuð með litnum ljós grár), prjónið A.3 fram að 4. merki (A.3 á að byrja á sama hátt og A.3 endaði á undan merki), aukið út á undan/á eftir lykkju með merki (lykkja með merki er prjónuð með litnum ljós grár), prjónið A.3 fram að kanti að framan (A.3 kemur til með að enda við kant að framan svona/þannig að A.2 byrjar eftir kant að framan í byrjun umferðar), prjónið kant að framan eins og áður. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 56-60-64-66-72-78 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 59-63-71-71-75-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-15-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 97-105-113-117-129-141 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 59-63-71-71-75-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-15-15-15 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 56-60-64-66-72-78 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 223-239-255-279-303-327 lykkjur. Prjónið sléttprjón, rendur og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 46-48-50-50-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan (eftir að síðasta röndin í A.2/A.3 hefur verið prjónuð er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár). Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 40-46-50-56-58-64 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 263-285-305-335-361-391 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm er fellt af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 59-63-71-71-75-79 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-15-15-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í miðjulykkju undir ermi, merkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Nú er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi JAFNFRAMT sem mynstrið er prjónað – lestu því ÚRTAKA og MYNSTUR að neðan áður en ermin er prjónuð áfram. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-1½-1-1-1 cm alls 5-6-9-12-12-13 sinnum = 56-58-60-62-66-68 lykkjur. MYNSTUR: Munið eftir úrtöku að ofan áður en prjónað er áfram. Byrjið umferð við merki fyrir miðju undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki – A.3 kemur ekki til með að ganga jafnt upp fyrir miðju undir ermi. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-43-41-42-40-40 cm frá skiptingunni (á eftir síðustu rönd er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Síðan eru prjónaðar 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og fellið af með garðaprjóni. Ermin mælist ca 45-45-43-44-42-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonphasecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.