Eva Johansen skrifaði:
Jeg strikker Irish Mist Neckwarmer. Jeg forstår ikke helt hvordan jeg skal øke i A2 og A4 . Skal jeg øke på første omgang eller begynner jeg med øking på andre omgang, der hvor der faktisk er en ekstra maske i mønsteret? Mvh. Eva
18.02.2025 - 09:36DROPS Design svaraði:
Hei Eva. Når du har strikket omg med økninger under Bærestykket, skal du nå strikke Mønster og Sadelskulderøkninger. Når du strikker 1. omg av diag (A.2+A.3+A.4), økes det som beskrevet under sadelskulderøkning og det er disse økemaskene ser du på 2. omg i diag. Altså, strikk mønster (vrangbord og A.1 som før over 18-26 masker), øk 1 maske etter 1. merke (les forklaringen til Sadelskulderøkning, denne økte masken er den du ser i 2.rad i diagram A.2), strikk A.2, strikk A.3, strikk A.4, øk 1 maske før 2. merke (denne masken vises i A.4 på 2.rad). Fortsett på samme måte over neste skulder og bakstykket. mvh DROPS Design
24.02.2025 - 09:24
Hilke Mey skrifaði:
Wie Anleitung stricke ich die Zopfmuster nach den Bildern Anleitung DROPS 253-25
13.01.2025 - 12:43DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Mey, stricken Sie nach den Diagrammen - Diagramme lesen Sie rechts nach links bei den Hin-Reihen und links nach rechts bei den Rück-Reihen (und von unten nach oben). Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
13.01.2025 - 16:49
Hilke Mey skrifaði:
Irish Mist Neck Warmer Gestrickter Kragenschal in DROPS Daisy oder DROPS Karisma. Die Arbeit wird von oben nach unten mit Sattelschulter, Zopfmuster und Reliefmuster gestrickt. Wie stricke ich das zopfmuster nach den Vorlagen.
13.01.2025 - 12:37
Hilke Mey skrifaði:
Irish Mist Neck Warmer Gestrickter Kragenschal in DROPS Daisy oder DROPS Karisma. Die Arbeit wird von oben nach unten mit Sattelschulter, Zopfmuster und Reliefmuster gestrickt. Wie stricke ich das zopfmuster nach den Vorlagen.
13.01.2025 - 12:32
Margaret skrifaði:
For goodness sake why are you using gobble gook , ? are you trying to be trendy / woke , well , its not working , why try to mend something when its not broken ? bind = cast off , etc etc etc , please I love your patterns , but this is too much , sorry
15.11.2024 - 17:07
Susan skrifaði:
Who writes these patterns? Why can’t they be written in the way other patterns are written? Your patterns are too wordy, you don’t use standard abbreviations, even for the UK there are standard abbreviations. I won’t knit from your patterns and I’ve been knitting 10 years. I will never recommend your patterns because they’re too wordy and they’re confusing. Please someone learn how to write a pattern using standard abbreviations and not be so wordy.
20.10.2024 - 18:01
Irish Mist Neck Warmer#irishmistneckwarmer |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað hálsskjól úr DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, köðlum og áferðamynstri.
DROPS 253-25 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Lykkjufjöldinn í A.1 kemur til með að vera breytilegur, en er alltaf talinn sem 6 lykkjur. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, fellið af fyrir öxl og stykkið skiptist upp fyrir framstykki og bakstykki. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-120 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn þannig: Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 6-10 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 46-54 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir síðustu 40-44 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn í 8 cm – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Síðar er hægt að brjóta uppá kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 35-43 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið stroff og A.1 eins og áður yfir fyrstu 18-26 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 1. merki hér. Prjónið yfir næstu 34-34 lykkjur þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 8 lykkjur, prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum (= 6 lykkjur verða að 12 lykkjum), prjónið (2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn) yfir næstu 8 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (= 44-44 lykkjur fyrir framstykki), setjið 2. merki hér. Prjónið stroff og A.1 yfir næstu 18-26 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 3. merki hér. Prjónið yfir næstu 34-34 lykkjur þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 8 lykkjur, prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum (= 6 lykkjur verða að 12 lykkjum), prjónið (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (= 44-44 lykkjur fyrir bakstykki), setjið 4. merki hér = 124-140 lykkjur (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat). Í næstu umferð er mynstrið prjónað samtímis sem aukið er út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan – lestu því næstu 2 kafla áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Prjónið hringinn þannig: Prjónið stroff og A.1 eins og áður yfir fyrstu 18-26 lykkjur, prjónið A.2, prjónið A.3, prjónið A.4 (= framstykki), prjónið stroff og A.1 eins og áður yfir næstu 18-26 lykkjur, prjónið A.2, prjónið A.3, prjónið A.4 (= bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur. ÚTAUKNING AXLARSÆTI: Aukið út 4 lykkjur í umferð þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. merki og á UNDAN 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Einungis er aukið út á bakstykki og framstykki og fjöldi axlalykkja verður áfram sá sami. Aukið svona út í hverri umferð alls 29 sinnum = 240-256 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Á eftir síðustu útaukingu mælist berustykkið ca 10 cm frá merki og það er eftir 1 umferð í A.2 og A.4. Í næstu umferð (= síðasta umferð þar sem prjónað er í hring), fellið af axlalykkjurnar og framstykkið og bakstykkið er nú prjónað hvort fyrir sig þannig: Fellið af fyrstu 18-26 lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, prjónið A.2, A.3, A.4 (= framstykki), fellið af næstu 18-26 lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, prjónið A.2, A.3, A.4 (= bakstykki). Framstykkið og bakstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 102-102 lykkjur. Nú er prjónað mynstur fram og til baka, umferð 1 er prjónuð frá röngu: Prjónið A.5, A.3, A.6. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið A.6, A.3, A.5. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 78-78 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20 cm frá merki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið 2 lykkjur brugðið, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur brugðið, * prjónið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, endið með 2 lykkjur i-cord = 66-66 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) með i-cord í hvorri hlið í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 23-23 cm frá merki og 26-28 cm frá efst á öxl. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. FRÁGANGUR Á TVÖFÖLDUM KANTI Í HÁLSMÁLI: Hægt er að brjóta uppá stroffið svo það verði tvöfalt. Brjótið stroffið að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #irishmistneckwarmer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.