Meg Merry skrifaði:
Can you explain A1 more fully? Once I put the yarn over and am knitting into the back of the two stitches on the left needle, is it into each of the two stitches? Which of the 2 do I knit into the back of first? Not understanding.
25.10.2024 - 23:31DROPS Design svaraði:
Dear Meg Merry, yes, you have to knit into the back of each of the two stitches. Happy knitting!
27.10.2024 - 18:18
Ilse Desmedt skrifaði:
Bij de laatste meerdering van de pas in maat xxl staat 5 steken voor en 5 steken na A2 maar dit is niet juist, zo lopen de meerderingen niet op dezelfde lijn. Het moet zoals in de kleinere maten 5 steken voor en 4 steken na A2 zijn. Vriendelijke groeten, Ilse
25.10.2024 - 20:17
Emanuela skrifaði:
I capi sono uno più bello dell' altro ma se ci fosse un video si potrebbero fare ma con solo la spiegazione non sono in grado di riprodurli. Peccato
14.10.2024 - 13:50DROPS Design svaraði:
Buonasera Emanuela, non abbiamo dei tutorial per ogni modello, ma ci sono dei video esplicativi delle tecniche utilizzate in ogni modello. Se dovesse aver bisogno di aiuto può compilare i moduli presenti in fondo alla pagina di ogni modello. Buon lavoro!
02.11.2024 - 12:37
Emerald Embrace#emeraldembracesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-34 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur fleiri) og A.2 (= 1 lykkja fleiri). GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónast í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónast í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 11-11-12-12-13-13 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5½-5½-6-6 cm. Í næstu umferð er aukið út um 22-24-25-26-27-28 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri lykkju með brugðnum lykkjum – brugðinni einingu = 110-120-125-130-135-140 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo ekki myndist gat. Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið þar til kantur í hálsmáli mælist 12-12-13-13-14-14 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 44-48-50-52-54-56 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 0-0-5-0-5-10 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 110-120-130-130-140-150 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: * Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 154-168-182-182-196-210 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, A.1, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 198-216-234-234-252-270 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 12-13-13-15-15-16 cm frá merki. FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Síðan er prjónað eftir þinni stærð að neðan. STÆRÐ S-M-L: * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 220-240-260 lykkjur. Síðan er prjónað frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: * 4 lykkjur sléttprjón, A.1, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 286-308-330 lykkjur. Síðan er prjónað frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 16-18-18-20-20-22 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4-4-4-5-5-5 lykkjur sléttprjón, A.2, 4-4-4-4-4 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 242-264-286-312-336-360 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 18-20-20-22-22-24 cm frá merki aukið út 2-0-0-0-0-4 lykkjur jafnt yfir = 244-264-286-312-336-364 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar berustykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 46-48-55-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 76-84-88-96-106-116 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-55-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 95-105-111-119-131-143 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-196-212-236-256 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþráðinn síðan fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið fram að fyrri merkiþræðinum, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 43-45-46-47-49-51 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og prjóna lykkjur frá framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 84-92-98-106-118-128 lykkjur. Í næstu umferð (= ranga) byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 22-26-28-32-36-38 lykkjur jafnt yfir í umferð = 106-118-126-138-154-166 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 2 lykkjur I-CORD og 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt – munið eftir útaukning), þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur í i-cord. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 49-51-52-54-56-58 cm mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykkið. ERMAR: Setjið 46-48-55-60-62-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-56-65-70-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 7½-7-4-3½-3-2½ cm alls 5-5-9-10-11-12 sinnum = 44-46-47-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-37-39-37-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-9-10-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-43-45-44-43-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður efstu 5-5-5½-5½-6-6 cm á stroffi efst í hálsmáli niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #emeraldembracesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.