DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

City Confidential

Prjónað hálsskjól úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk eða DROPS Karisma og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og köðlum.

Velja stærð:
DROPS 253-4

#cityconfidentialneckwarmer

DROPS Design: Mynstur me-287
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Lengd frá efst á öxl: Ca 32-32 cm
Breidd: Ca 40-43 cm

GARN:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150 gr litur 39, ísblár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 gr litur 07, ljós himinblár

Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150 gr litur 89, morgunþoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 gr litur 07, ljós himinblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 21 umferð á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 5,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

I-CORD:
FYRSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
SÍÐUSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá aftan á öxl, ofan frá og niður.
Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki sem er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-96 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Karisma og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og prjónið hringinn í stroffprjóni og MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan:
* Prjónið A.1, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar.
Haldið svona áfram með stroffprjón hringinn í 7 cm.
Setjið 1 merki í stykkið hér, berustykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið A.1, 2 lykkjur slétt, A.1 eins og áður (= 22 axlalykkjur), setjið 1. merki hér.
Prjónið sléttprjón yfir næstu 22-26 lykkjur (= framstykki), setjið 2. merki hér.
Prjónið A.1, 2 lykkjur slétt, A.1 eins og áður (= 22 axlalykkjur), setjið 3. merki hér.
Prjónið sléttprjón yfir næstu 22-26 lykkjur (= bakstykki), setjið 4. merki hér (= byrjun umferðar).

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið mynstur yfir axlalykkjur eins og áður og sléttprjón yfir framstykki og bakstykki, jafnframt er aukið út um 4 lykkjur í umferð þannig:
Aukið er út á EFTIR 1. og 3. merki og á UNDAN 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING.
Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Aukið svona út í hverri umferð alls 18 sinnum = 160-168 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 9 cm frá merki í hálsmáli.
Í næstu umferð (= síðustu umferð þar sem prjónað er í hring) eru lykkjur felldar af fyrir axlir, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka.
Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, fellið af næstu 14 lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur JAFNFRAMT er slegið 1 sinni uppá prjóninn mitt í hverri brugðinn einingu (þetta gerir kantinn teygjalegan – uppslátturinn er felldur af eins og vanalega eins og hann væri 1 lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið 58-62 lykkjur sléttprjón, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt (= 66-70 lykkjur fyrir framstykki), fellið af næstu 14 lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur JAFNFRAMT sem slegið er 1 sinni uppá prjóninn mitt í hverri brugðinni einingu, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið 58-62 lykkjur sléttprjón, endið með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt (= 66-70 lykkjur fyrir bakstykki).
Prjónið síðan framstykkið og bakstykkið fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 66-70 lykkjur.
Prjónið umferð 1 frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni og endið með 2 lykkjur í i-cord.
Prjónið svona fram og til baka í 1 cm, í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið innan við kant að framan og 1 lykkju sléttprjón þannig. Prjónið i-cord, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, endið með i-cord.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum í hvorri hlið = 50-54 lykkjur.
Stykkið mælist ca 24 cm frá merki í hálsmáli.
Þegar úrtöku er lokið, prjónið síðustu umferð frá röngu.
Nú á að prjóna stroff. Skiptið yfir á prjón 4 og prjónið 1. umferð frá réttu þannig:
Prjónið i-cord, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkju jafnt yfir þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni og i-cord = 58-62 lykkjur.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) með kantlykkjum og garðaprjóni eins og áður í hvorri hlið þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Stykkið mælist ca 31 cm frá efst á öxl í báðum stærðum.

FRAMSTYKKI:
Setjið lykkjur fyrir framstykki á hringprjón 5,5. Prjónið á sama hátt og bakstykki.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt,  prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 253-4

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cityconfidentialneckwarmer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Jesper skrifaði:

Når man strikker i-cord i for- og bagstykke, skal man så strikke hver anden pind omvendt? Altså: Pind 1: “Tag 1 maske løst af pinden som om den skulle strikkes VRANG med tråden foran arbejdet, strik 1 maske RET.” Pind 2: “Tag 1 maske løst af pinden som om den skulle strikkes RET med tråden bag arbejdet, strik 1 maske VRANG” Eller skal de strikkes ens hver måde? Altså at den løse maske altid skal være “vrang”?

14.11.2024 - 22:23

DROPS Design svaraði:

Hej, ja de strikkes ens, se også gerne vores video, øverst i opskriften "Videoer" :)

19.11.2024 - 11:09

country flag Emmanuelle skrifaði:

Bonjour, n'y a t'il pas une erreur au niveau des explications du col? vous parlez des 20/24 mailles entre 2 motifs A1, mais cela fait un total de 94 mailles et non 96. L'erreur semble rétablie dans l'empiècement où on passe bien à 26 mailles entre 2 motifs A1. Merci

27.10.2024 - 15:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Emmanuelle, je trouve bien 96 mailles: (10 de A.1 + 2 m endroit + 10 m de A.1 + 24 m en côtes + 2 m endroit) = 10+2+10+24+2=48 m et on répète de (à) encore 1 fois soit 48x2=96 mailles. Pour l'empiècement vous avez ensuite: 10 m de A.1, 2 m end, 10 m de A.1 (= 22 m), puis 26 m jersey (les 24 m en côtes + les 2 m endroit) puis encore une fois ces 48 mailles. Bon tricot!

28.10.2024 - 09:36

country flag Leticia Antonio skrifaði:

Diagram is missing

02.10.2024 - 18:09

DROPS Design svaraði:

Thanks for your feedback, it has now been added. Happy knitting!

03.10.2024 - 09:19

country flag Anette Olofsson skrifaði:

Pretty!!!

08.08.2024 - 17:20

country flag Cathy skrifaði:

Snuggly neckwarmer

08.08.2024 - 13:53