DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Daisy yarn
DROPS Daisy
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Under the Oak

Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 255-21

#undertheoaksweater

DROPS Design: Mynstur da-027
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 gr litur 13, mandla

Eða notið:
DROPS FIESTA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 gr litur 08, kastanía

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan.
Á UNDAN A.2:
Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.
Á EFTIR A.2:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-116-124-132-132-140 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Fiesta.
Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20 lykkjur, 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-16-20-24-24-28 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 (= framstykki), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20 lykkjur, 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur bruðgið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-16-20-24-24-28 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 (= bakstykki). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið síðan með A.2 yfir lykkjur í A.1. Prjónið stroff í alls 7 cm.
Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 40-40-42-44-44-46 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Prjónið síðan með hringprjón 4. Haldið áfram með A.2 eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. AUKIÐ út þannig:
UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið umferð 1 og 2 alls 7-6-10-15-11-10 sinnum (= 14-12-20-30-22-20 prjónaðar umferðir) = 172-164-204-252-220-220 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.

Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig:
UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er að ofan).
UMFERÐ 3: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. mynstureiningu af A.2, á undan 2. mynstureiningu af A.2, á eftir 3. mynstureiningu af A.2 og á undan 4. mynstureiningu af A.2, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út yfir ermar (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið umferð 1 til 4 alls 13-16-14-13-17-20 sinnum (= 52-64-56-52-68-80 prjónaðar umferðir) = 328-356-372-408-424-460 lykkjur í umferð.

Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 33-38-38-41-45-50 sinnum á framstykki/bakstykki og 20-22-24-28-28-30 sinnum á ermum. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.2 eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 24-28-30-30-32-36 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 62-66-70-78-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 102-112-116-126-134-148 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-66-70-78-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 102-112-116-126-134-148 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 216-236-252-272-296-324 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður, þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm frá merki mitt að framan.
Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – ATH: Prjónið A.1 yfir lykkjur í A.2) JAFNFRAMT er aukið út um 20-24-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – ATH! Passið uppá að stroffið gangi jafnt upp á milli A.1, aukið út 10-12-12-14-14-16 lykkjur á milli hverra A.1 á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út yfir 6-6-10-10-14-14 lykkjur á milli hverra A.1 í hliðum = 236-260-276-300-324-356 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af.
Peysan mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 62-66-70-78-78-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-10-10-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6½-5-3½-2½-2-1½ cm alls 5-6-8-11-12-13 sinnum = 58-60-64-66-68-70 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-34-33-32-31-28 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-68-68-72-72-76 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af. Ermin mælist ca 43-40-39-38-37-34 cm frá skiptingunni.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 255-21

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Frau Butsch skrifaði:

Hallo liebes Drops Team, ich bin jetzt am Teilen der Arbeit für Ärmel, Vorder- und Rückenteil. Was ich nicht verstehe sind die Maschen, die ich nach dem Arm zunehmen soll. Wie muß ich danach weiter stricken? Sind die zugenommen Maschen für den Arm gedacht oder gehören die zwischen die A2-Maschen im Rumpf? \r\nVielen Dank \r\nFür die Info.\r\nS. Butsch

01.04.2025 - 11:25

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Butsch, bei der Aufteilung gehören die Maschen A.2 zum Rumfpteil, die neuen Maschen dazwischen werden glattrechts gestrickt. Kann Ihnen diese Lektion helfen? Wir zeigen die Aufteilung ab Bild 9 - dann ab Bild 18 wie man die Ärmel strickt. Viel Spaß beim Stricken!

01.04.2025 - 13:41

country flag Isabelle skrifaði:

Bonjour, je suis arrivée a la division des manches, je dois monter 6 nouvelles mailles pour les manches. Il faut monter 6 mailles au niveau du devant à droite et 6 au niveau du dos à gauche, ça ne va pas déséquilibrer le pull? Il ne faudrait pas faire toutes les nouvelles mailles sur le devant ou toutes sur le dos? Merci

08.01.2025 - 08:11

DROPS Design svaraði:

Bonjour Isabelle, ces 6 mailles vont remplacer les mailles des manches et vont se trouver ensuite sur les côtés du pull - retrouvez cette étape dans cette leçon, à partir de la photo 9). Bon tricot!

08.01.2025 - 15:56

country flag Audrey De Roquefeuil skrifaði:

Bonjour, pour le col : - tricoter 20 mailles en côtes - on finit donc avec 2 mailles envers - 2 mailles endroits - 16 mailles en côtes --> il faut commencer endroit ou envers ? car si endroit, ça fait 4 mailles endroit côte à côte - puis on refait la même chose sauf que 20+2+16+2+20+2+16+2=78 mailles au lieu de 116 --> pouvez vous m'expliquer ? Que signifie tricoter A2 au dessus de A1 ? Comment lire le diagramme ? Merci d'avance!

07.01.2025 - 10:56

country flag Eleni skrifaði:

Liebes DROPS Design Team, Ich stricke diesen Pullover in Größe M. Habe die 6 und 16 Reihen Passe gestrickt und habe jetzt jeweils 98 Maschen vorne und hinten, 62 Maschen an den Schultern und 4x9 Maschen für das A2. In der Summe 356 Maschen, wie es in der Anleitung steht. Nun soll ich aber 66 Maschen für die Ärmel stilllegen ich habe aber 62. Außerdem soll der Rumpfteil mit 112 Maschen weitergeschickt werden und bei mir wären es (9+98+9=)116 Maschen. Wo ist mein Fehler?

21.11.2024 - 10:48

DROPS Design svaraði:

Liebe Eleni, bei der Verteilung gehörten der Maschen von A.2 zum Vorder und Rückenteil, und nicht zu den Ärmeln, so hatten Sie am Anfang 22 M für die Ärmel + (6x2) + (16x2)= 66 Maschen für jeden Ärmel - beim Rumpf hatten Sie 18 M + (6x2) + (32x2) (insgesamt 38 Mal) = 94+ (2x9M A.2) = 112 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!

21.11.2024 - 15:48

country flag Sarah Eidelloth skrifaði:

Hallo liebes Team! Danke für diese tolle Steickanleitung, soweit macht es wirklich Spaß den Pullover zu stricken. Ich bin mit der Passe schon zur Hälfte fertig, mir hat sich bislang nur noch nicht erschlossen, weshalb man zu Beginn einen Maschenmarkierer nach 40 Maschen (Größe) M anbringen sollte... Ich habe mich bisher am Anfangsfaden orientiert und mitgezählt. Hat der Markierer nach 40 Maschen eine besondere Funktion? (Bin Anfänger :-))

22.10.2024 - 21:24

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Eidelloth, die Markierung nach 40 M am Ende der Halsblende wird benutzt, wenn man die Arbeit messen sol. So soll die Passe in M 28 cm ab dieser Markierung messen, bevor man die Maschen für Rumpfteil/Ärmel verteilt. Viel Spaß beim Stricken!

23.10.2024 - 08:44

country flag Francine Mascart skrifaði:

Le modèle ne parle pas de creuser l encolure en rang raccourci je suppose que l on peut inclure cette encolure

14.10.2024 - 10:55

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Mascart, effectivement, dans ce modèle, l'encolure devant et dos sont identiques, vous pouvez ajouter des rangs raccourcis si besoin pour que l'encolure dos soit plus haute que l'encolure devant; on procède de cette façon dans cette vidéo qui devrait pouvoir vous aider. Bon tricot!

16.10.2024 - 09:35

country flag Åsa Palm skrifaði:

Hej, är mönstret gjort så det är högre i bak? Ser så ut på bilden men framgår inte obeskrivlig gen. Jag vill ha förhöjt i nacken för då sitter tröjor bättre. Hur gör man en sån förhöjning i så fall?

13.10.2024 - 13:18

DROPS Design svaraði:

Hej Åsa. Nej, detta mönster har ingen förhöjning bak i nacken. Vill du ha det så får du sticka några förkortade varv på bakstycket (som t.ex. i detta mönster). Mvh DROPS Design

14.10.2024 - 10:29

country flag Angelika Schadt skrifaði:

Liebes Team, warum muss ich bei Größe L 124 Maschen aufnehmen, und dann in der ersten Rippenreihe für die Halsblende nur 88 Maschen zu Stricken sind. Ich komme an dieser Stelle nicht weiter. Wäre schön wenn ich da eine Erklärung hätte! Mit freundlichen Grüßen Angelika Schadt

09.10.2024 - 20:31

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Schadt, vergessen Sie die 9 Maschen von jedem A.1 nicht, dh so stricken Sie die 124 Maschen: * 2 M rechts, 2 Mlinks *, von *-* über insgesamt 20 M arbeiten, 2 M rechts, A.1 (9 M), * 2 M rechts, 2 M links *, von *-* über insgesamt 20 M arbeiten, 2 M rechts, A.1 (9 M), * 2 M rechts, 2 M links *, von *-* über insgesamt 20 M arbeiten, 2 M rechts, A.1 (9M), * 2 M rechts, 2 M links *, von *-* über insgesamt 20 M arbeiten, 2 M rechts, A.1 (9 M) =20+2+9+20+2+9+20+2+9++20+2+9=124 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!

10.10.2024 - 09:08

country flag Magpie skrifaði:

Armchair by the fireplace

12.08.2024 - 11:01

country flag Hanne Lise skrifaði:

Myst havet it!

10.08.2024 - 19:03