Maibritt skrifaði:
Halskant. Der står 2 ret, vrang .. Hvor mange vrang skal der strikkes? Vh Maibritt
12.10.2024 - 18:23DROPS Design svaraði:
Hej Maibritt. Det ska vara 2 ret, 2 vrang. Mvh DROPS Design
14.10.2024 - 14:03
Monika skrifaði:
Witaj. Bardzo chciałabym skorzystać z tego wzoru ale niestety ta jedna włóczka z alpaki (drops alpaca) bardzo mnie gryzie. Czy możesz zaproponować mi włóczkę, którą mogę użyć razem z brushed alpaka silk ale która nie będzie gryzła aż tak bardzo? Z góry dziękuję za podpowiedzi. Pozdrawiam.
16.09.2024 - 10:24DROPS Design svaraði:
Witaj Moniko, w zastępstwie proponuję Drops Nord albo Drops Baby Merino. Pozdrawiam!
16.09.2024 - 13:45
Novella skrifaði:
Pervinca
11.08.2024 - 23:17
Virpi skrifaði:
Yksinkertaisen tyylikäs!
09.08.2024 - 09:20
Patricia skrifaði:
Cielo
08.08.2024 - 17:38
Paulina skrifaði:
Blue Braid
08.08.2024 - 16:37
Skyfall Road#skyfallroadsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, kaðli og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-10 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LASKALÍNA: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón frá bakhlið að framhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn frá framhlið að bakhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). I-CORD AFFELLING: Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftir þessum 3 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-80-80-80-89-89 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 5-6-6-6-6-6 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið MYNSTUR A.1 – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið prjónað á hæðina – ATH: Eftir 3. umferð eru 79-87-87-87-98-98 lykkjur í umferð. Prjónið síðan stroff eins og áður, en nú er prjónað A.2 yfir lykkjur í A.1. Haldið svona áfram þar til kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-6-7-7 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 26-30-30-30-32-32 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja - þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni (aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við þessar laskalykkjur). Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, teljið 16-20-20-20-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 27-27-27-27-38-38 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-20-20-20-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru eftir 20-20-20-20-28-28 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Nú er prjónað MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Skiptið yfir á hringprjón 5,5, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalykkja), aukið út fyrir LASKALÍNA eftir þessa laskalínu – lesið útskýringu að ofan, prjónið 14-18-18-18-14-14 lykkjur slétt yfir ermi, aukið út fyrir laskalína hvoru megin við laskalykkjur (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 laskalykkjum), prjónið 4-4-4-4-8-8 lykkjur slétt og aukið jafnframt út 1-1-2-3-0-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, haldið áfram með A.2 yfir næstu 17-17-17-17-20-20 lykkjur, prjónið 4-4-4-4-8-8 lykkjur slétt og aukið jafnframt út 1-1-2-3-0-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið 14-18-18-18-14-14 lykkjur slétt yfir ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið 18-18-18-18-26-26 lykkjur slétt og aukið jafnframt út 2-2-4-6-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, aukið út fyrir laskalínu á undan síðustu laskalykkju og prjónið laskalykkju slétt = 91-99-103-107-106-110 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 6-2-5-7-9-8 sinnum (= 12-4-10-14-18-16 prjónaðar umferðir) = 139-115-143-163-178-174 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Síðan er prjónað og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður og aukið út fyrir laskalínu Á EFTIR 2. og 4. merkiþræði og á UNDAN 3. og 1. merkiþræði (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 og 4 alls 7-10-9-9-9-11 sinnum (= 28-40-36-36-36-44 prjónaðar umferðir). Prjónið síðan UMFERÐ 1 einu sinni til viðbótar. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 21-23-24-26-28-31 sinnum á framstykki og bakstykki og 14-13-15-17-19-20 sinnum á ermum = 223-235-251-271-286-306 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-24-26-28-31 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 42-44-48-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 73-77-81-87-96-104 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-44-48-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 65-69-73-79-85-93 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 151-163-175-191-210-230 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= mitt í þær 6-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón og A.2 þar til stykkið mælist 45-46-48-50-53-55 cm frá merki mitt að framan – stillið af að prjónaðar séu minnst 3 umferðir á eftir umferð með snúning í kaðli. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – stillið útaukningu þannig að stroffið byrji og endið með 2 lykkjur slétt hvoru megin við A.2 mitt að framan og prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2 = 171-183-199-215-238-258 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með I-CORD AFFELLING – lesið útskýringu að ofan. Peysan mælist 47-48-50-52-55-57 cm frá merki mitt að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 42-44-48-52-52-54 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-58-64-66-70 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-7-4-3-3-2½ cm alls 4-5-8-10-10-12 sinnum = 40-42-42-44-46-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-42-42-41-38-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 44-48-48-48-52-52 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með I-CORD AFFELLING – lesið útskýringu að ofan. Ermin mælist ca 46-44-44-43-40-38 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skyfallroadsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.