Nelleke skrifaði:
Ah bedankt voor het voorrekenen! ik zie nu dat er verschil is tussen de looplengte op de pagina van kid-silk (210 m) en op het garenoverzicht (...yarn-groups ..., daar staat 420 m) hartelijke groeten, N.
10.11.2024 - 16:09
Nelleke skrifaði:
Hallo, ik probeer om te rekenen van fabel+kid-silk naar nepal of alaska (A+A > C), maar hoe kan het dat je van fabel 1230 meter nodig hebt en van kid-silk 2520? wat moet ik nu aanhouden voor nepal of alaska? dank jullie wel voor het antwoord. Nelleke
10.11.2024 - 12:04DROPS Design svaraði:
Dag Nelleke,
Om de hoeveelheid garen te berekenen kijk je naar de totale looplengte van een van beide garens. Van beide heb je 6 bollen nodig. De totale looplengte van Kid-Silk is dus 1260 en die van Fabel 1230. Nepal heeft een looplengte van 75 m. Dus heb je (1230 gedeeld door 75) 16,4 bollen nodig.
10.11.2024 - 13:12
Anja Hoff Petersen skrifaði:
Hvad er årsagen til, at man ved overgangen fra halskant til bærestykke skal forskyde startpunktet til et nyt sted? Hvorfor kan man ikke blot fortsætte med den oprindelige omgangsstart som målepunkt i resten af arbejdet?
05.11.2024 - 22:05DROPS Design svaraði:
Hej Anja, er starten ikke hele tiden fra højre skulder bagpå? Mærket sætter du kun så du kan måle arbejdet :)
07.11.2024 - 08:38
Marie-France skrifaði:
Bonjour, je pense qu’il y a une erreur pour l’empiècement des tailles S et M concernant le nombre de tours : 14 x 4 tours = 56 tours et non pas 52 et 15 x 4 tours = 60 tours et non pas 56 comme indiqué sur vos explications. MERCI POUR TOUT CE QUE VOUS FAITES !
25.09.2024 - 21:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie-France et merci, la correction a aussi été faite. Bonne continuation!
07.10.2024 - 10:58
Penelope skrifaði:
Hej, jag har en fråga gällande rörelsevidden på plagget. Vilken bystvidd motsvarar de olika storlekarna? Tack på förhand!
14.09.2024 - 20:38
Sylvie Amphoux skrifaði:
Qu'il est beau !!!!!!
05.09.2024 - 19:24
Julie skrifaði:
Hi, . Love your patterns, but should there be a measurement diagram for this pattern? Thanks
01.09.2024 - 06:21DROPS Design svaraði:
Dear Julie, thank you. Measurement chart has now been added, Happy knitting!
02.09.2024 - 08:35
Helena skrifaði:
Goedendag, Ik mis de afmetingen per maat van deze trui.
31.08.2024 - 14:35
Nathalie skrifaði:
Hallo, ich kann nirgends die Maßskizze sehen. Wo erkenne ich, welche Größe ich stricken kann? Ein paar Maße wären nicht schlecht, wenigstens vom fertigen Brustumfang. LG
30.08.2024 - 20:34DROPS Design svaraði:
Liebe Nathalie, danke für den Hinweis, Maßskizze kommt so schnell wie möglich. Viel Spaß beim Stricken!
02.09.2024 - 07:49
Chantal Dionne skrifaði:
Un de mes 10 choix! Juste pour dire qu’il manque le diagramme pour les grandeurs! Merci! Merci!
30.08.2024 - 16:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dionne et merci pour l'info, il va être ajouté le plus vite possible. Bon tricot!
02.09.2024 - 07:46
Winter Confetti#winterconfettisweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALÍNU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR LASKALÍNU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 13 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn inn að röngu og við frágang verður tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 37-38-39-40-41-42 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjónað lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 22 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 26-28-30-32-34-36 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 22 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 26-28-30-32-34-36 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan þannig: UMFERÐ 1: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverri laskalínu (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið umferð 1 og 2 alls 1-1-3-6-5-1 sinnum (= 2-2-6-12-10-2 prjónaðar umferðir) = 108-112-132-160-156-128 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni, nú heldu útaukning áfram fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverri laskalínu (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. UMFERÐ 3: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 2. laskalykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 3. laskalínu, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. laskalykkju og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. laskalínu (= 4 lykkjur fleiri, einungis er aukið út á framstykki / bakstykki og ekki á ermum). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 14-15-15-15-17-20 sinnum (= 56-60-60-60-68-80 prjónaðar umferðir = 14-15-15-15-17-20 sinnum útaukning á ermum, 28-30-30-30-34-40 sinnum útaukning á framstykki / bakstykki) = 276-292-312-340-360-368 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, það hefur verið aukið út alls 29-31-33-36-39-41 sinnum á framstykki / bakstykki og 15-16-18-21-22-21 sinnum á ermum. Prjónið síðan hringinn í sléttprjóni án þess að auka út þar til stykkið mælist 24-26-28-30-33-34 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Haldið eftir fyrstu lykkju í umferð, setjið næstu 52-54-58-64-66-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 86-92-98-106-114-120 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 52-54-58-64-66-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 85-91-97-105-113-119 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun á umferð er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 188-200-216-236-256-276 lykkjur. Prjónið sléttprjón, hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-24-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 208-224-240-260-284-308 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5 cm er fellt af. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 52-54-58-64-66-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-14-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-12-14-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 6-6-4-3-2-2 cm alls 5-5-7-10-11-11 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-35-33-32-29-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-64-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5 cm er fellt af. Ermin mælist ca 41-41-38-37-34-34 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterconfettisweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.