Ola skrifaði:
Cold Summer
11.08.2024 - 13:27
Carol S skrifaði:
Beach Vibes
10.08.2024 - 11:45
Petra skrifaði:
Blue zebra
09.08.2024 - 14:49
Nikole skrifaði:
Waterfall
09.08.2024 - 10:24
Magda skrifaði:
Sky
09.08.2024 - 10:17
Martha skrifaði:
Water and Sand
09.08.2024 - 01:42
Helga Elínborg Auðunsdóttir skrifaði:
Sjóarinn
08.08.2024 - 22:25
Aitziber skrifaði:
Marinade
08.08.2024 - 18:43
Erica skrifaði:
Stormy sea
08.08.2024 - 18:34
M Meijer skrifaði:
My cup of tea
08.08.2024 - 17:52
Blue Moon Halo Cardigan#bluemoonhalocardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór / oversize peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, v-hálsmáli, i-cord og röndum. Stærð XS - XXL.
DROPS 254-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið rendur þannig: Í litnum sjávarblár: 7½-8-8-8-8-8 cm. Í litnum ljós beige / beige: 7½-8-8-8-8-8 cm. Prjónið rendur svona út afgang á stykki frá uppgefnum cm að stroffi, stroffið byrjar eftir lok á rönd í litnum ljós beige / beige. Stroffið er prjónað í litnum sjávarblár og er 8 cm í öllum stærðum. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. RANGA: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur garðaprjón. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið prjónuð til loka. Síðan er fellt af fyrir næstu 3 hnappagötum með ca 11-12-12-12-13-13 cm milli hverra hnappagata, þannig að neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. RENDUR ERMI: Prjónið rendur þannig: Í litnum sjávarblár: 8-8-8-8-8-8 cm. Í litnum ljós beige / beige: 8-8-8-8-8-8 cm. Prjónið rendur svona út afgang á stykki frá uppgefnum cm að stroffi, stroffið byrjar eftir lok á rönd í litnum ljós beige / beige. Stroffið er prjónað í litnum sjávarblár og er 8 cm í öllum stærðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkin eru prjónuð. Á framstykkjum er fyrst prjónaður list fyrir kant að framan sem er saumaður meðfram hnakka við frágang, síðan eru framstykkin prjónuð með því að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki. Prjónað er niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Endurtakið við hina öxlina. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Listar fyrir kanta að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = miðja að aftan, saumið listana við uppfitjunarkantinn á bakstykki. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 22-22-22-24-24-24 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum ljós beige eða 1 þræði DROPS Melody í litnum beige. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-9-10-11-12-13 sinnum (= 16-18-20-22-24-26 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 54-58-62-68-72-76 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni fram og til baka JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 0-0-0-2-2-4 cm frá merki er stykkið síðan prjónað í RENDUR FRAM - OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan rendur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13-12-13-13-14 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-3-3 sinnum (= 4-4-6-6-6-6 prjónaðar umferðir) = 58-62-68-74-78-82 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-16-17-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu – athugið hversu langt randarmynstrið er prjónað, rendurnar eiga að vera jafn langar þegar framstykkin eru sett saman við bakstykkið síðar. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. VINSTRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum ljós beige eða 1 þræði DROPSS Melody í litnum beige. Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 7-7-7-8-8-8 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan áfram vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar á þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrst 6 lykkjur frá lista í kanti að framan, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónið upp 16-18-20-22-24-26 lykkjur frá bakstykki) = 22-24-26-28-30-32 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki er gerð frá þessum uppfitjunarkanti. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétta lykkjur út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 5-6-8-8-9-10 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út lykkjum fyrir v-hálsmáli, JAFNFRAMT á sama tíma þá á að prjóna rendur og auka út lykkjum í hlið fyrir handveg, lestu því 3 næstu kafla áður en prjónað er áfram til að fá yfirlit yfir þegar rendur og útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-11-11-12-12-12 sinnum (= 22-22-22-24-24-24 prjónaðar umferðir) = 33-35-37-40-42-44 lykkjur. Framstykkið mælist ca 19-20-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni, rendur og kantlykkjur að framan. RENDUR: Þegar stykkið mælist 8-8-10-12-14-16 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið síðan RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – munið eftir útskýringu að ofan. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-25-26 cm, er aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-3-3 sinnum (= 4-4-6-6-6-6 prjónaðar umferðir). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 35-37-40-43-45-47 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-24-26-27-29-30 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu – ATH! Passið uppá að síðasta umferðin passi við hversu langt randarmynstrið hefur verið prjónað á bakstykki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. HÆGRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum ljós beige eða 1 þræði DROPSS Melody í litnum beige. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 7-7-7-8-8-8 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, það á fyrst að prjóna áfram yfir lista í kanti að framan þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 16-18-20-22-24-26 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan 6 lykkjur frá lista í kanti að framan inn í umferðina 22-24-26-28-30-32 lykkjur í umferð. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum uppfitjunarkanti. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 5-6-8-8-9-10 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út lykkjum fyrir v-hálsmáli, JAFNFRAMT á sama tíma þá á að prjóna rendur og auka út lykkjum í hlið fyrir handveg, lestu því 3 næstu kafla áður en prjónað er áfram til að fá yfirlit yfir þegar rendur og útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-11-11-12-12-12 sinnum (= 22-22-22-24-24-24 prjónaðar umferðir) = 33-35-37-40-42-44 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-20-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni, rendur og kantlykkjur að framan – munið eftir HNAPPAGAT, lesið útskýringu að ofan. RENDUR: Þegar stykkið mælist 8-8-10-12-14-16 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið síðan í RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI, passið uppá að rendurnar passi við vinstra framstykki. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-25-26 cm, aukið er út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir ÚTAUKNING-1, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-3-3 sinnum (= 4-4-6-6-6-6 prjónaðar umferðir). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 35-37-40-43-45-47 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-24-26-27-29-30 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu – passið uppá að síðasta umferð passi við hversu langt randarmynstrið er prjónað á bakstykki og vinstra framstykki. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er síðan mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er síðan prjónað í RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI eins og áður, umferð 1 er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið 35-37-40-43-45-47 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 4-4-4-4-6-8 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 58-62-68-74-78-82 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 4-4-4-4-6-8 nýjar lykkjur (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 35-37-40-43-45-47 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 136-144-156-168-180-192 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur með rendur, sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist ca 30-32-32-33-33-34 cm frá handvegi – síðasta röndin með litnum ljós beige / beige á nú að vera lokið. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 50-54-58-62-66-70 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 186-198-214-230-246-262 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og litinn sjávarblár og prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 8 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist 61-64-66-68-70-72 cm mælt frá uppfitjunarkanti, framstykkið er ca 1-1-2-2-2-2 cm lengra en loka mál þar sem uppfitjunarkanturinn er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niðri á bakstykki, peysan mælist 60-63-64-66-68-70 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við á hringprjón 7. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 4 til 6 cm niður á framstykki). Notið hringprjón 7 og 2 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum ljós beige eða 1 þræði DROPS Melody í litnum beige. Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 48-50-54-56-60-66 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-6-6-5-6 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-6-6-5-6 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5-5-6-6-5-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5-5-6-6-5-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-8-8-8-10-10 sinnum (= 4-4-4-4-5-5 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, prjóna síðan frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Ermin er mæld frá merki efst á öxl. Nú á að prjóna sléttprjón hringinn og fækka lykkjum undir ermi eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 9-9-8-7-6-6 cm frá merki á að prjóna RENDUR ERMI – lesið útskýringu að ofan (þ.e.a.s. í stærð XL og XXL byrja rendur á umferð 1). Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-4 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 6½-5½-4½-4-3½-2½ cm alls 4-5-6-7-7-9 sinnum = 36-36-38-38-40-40 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-41-40-39-38-38 cm frá merki á topp á öxl, nú á síðasta röndin í litnum ljós beige / beiga að vera lokið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og litinn sjávarblár og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 49-49-48-47-46-46 cm frá miðju ofan á öxl. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumað saman – saumur = mitt að aftan, saumið síðan listann við uppfitjunarkantinn aftan í hnakka. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluemoonhalocardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.