DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7572.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Blue Moon Halo Cardigan

Prjónuð stór / oversize peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, v-hálsmáli, i-cord og röndum. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 254-19

#bluemoonhalocardigan

DROPS Design: Mynstur as-193
Garnflokkur C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-175-175-200-225 gr litur 04, ljós beige
150-150-175-175-200-225 gr litur 39, sjávarblár

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
150-150-200-200-200-250 gr litur 15, beige
150-150-200-200-200-250 gr litur 28, sjávarblár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 630: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 7 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7572.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið rendur þannig:
Í litnum sjávarblár: 7½-8-8-8-8-8 cm.
Í litnum ljós beige / beige: 7½-8-8-8-8-8 cm.
Prjónið rendur svona út afgang á stykki frá uppgefnum cm að stroffi, stroffið byrjar eftir lok á rönd í litnum ljós beige / beige. Stroffið er prjónað í litnum sjávarblár og er 8 cm í öllum stærðum.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan.
RANGA:
Prjónið 4 lykkjur í garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur garðaprjón.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið prjónuð til loka. Síðan er fellt af fyrir næstu 3 hnappagötum með ca 11-12-12-12-13-13 cm milli hverra hnappagata, þannig að neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs.

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

RENDUR ERMI:
Prjónið rendur þannig:
Í litnum sjávarblár: 8-8-8-8-8-8 cm.
Í litnum ljós beige / beige: 8-8-8-8-8-8 cm.
Prjónið rendur svona út afgang á stykki frá uppgefnum cm að stroffi, stroffið byrjar eftir lok á rönd í litnum ljós beige / beige. Stroffið er prjónað í litnum sjávarblár og er 8 cm í öllum stærðum.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkin eru prjónuð.
Á framstykkjum er fyrst prjónaður list fyrir kant að framan sem er saumaður meðfram hnakka við frágang, síðan eru framstykkin prjónuð með því að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki.
Prjónað er niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Endurtakið við hina öxlina. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Listar fyrir kanta að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = miðja að aftan, saumið listana við uppfitjunarkantinn á bakstykki.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 22-22-22-24-24-24 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum ljós beige eða 1 þræði DROPS Melody í litnum beige.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur brugðið.
EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-9-10-11-12-13 sinnum (= 16-18-20-22-24-26 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 54-58-62-68-72-76 lykkjur í umferð.
Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá!
Prjónið síðan í sléttprjóni fram og til baka JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 0-0-0-2-2-4 cm frá merki er stykkið síðan prjónað í RENDUR FRAM - OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Prjónið síðan rendur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13-12-13-13-14 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-3-3 sinnum (= 4-4-6-6-6-6 prjónaðar umferðir) = 58-62-68-74-78-82 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-16-17-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu – athugið hversu langt randarmynstrið er prjónað, rendurnar eiga að vera jafn langar þegar framstykkin eru sett saman við bakstykkið síðar. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan.

VINSTRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum ljós beige eða 1 þræði DROPSS Melody í litnum beige.
Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 7-7-7-8-8-8 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan áfram vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar á þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrst 6 lykkjur frá lista í kanti að framan, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónið upp 16-18-20-22-24-26 lykkjur frá bakstykki) = 22-24-26-28-30-32 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki er gerð frá þessum uppfitjunarkanti.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétta lykkjur út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 5-6-8-8-9-10 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að auka út lykkjum fyrir v-hálsmáli, JAFNFRAMT á sama tíma þá á að prjóna rendur og auka út lykkjum í hlið fyrir handveg, lestu því 3 næstu kafla áður en prjónað er áfram til að fá yfirlit yfir þegar rendur og útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-11-11-12-12-12 sinnum (= 22-22-22-24-24-24 prjónaðar umferðir) = 33-35-37-40-42-44 lykkjur.
Framstykkið mælist ca 19-20-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni, rendur og kantlykkjur að framan.

RENDUR:
Þegar stykkið mælist 8-8-10-12-14-16 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið síðan RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – munið eftir útskýringu að ofan.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-25-26 cm, er aukið út í hlið við handveg þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-3-3 sinnum (= 4-4-6-6-6-6 prjónaðar umferðir). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 35-37-40-43-45-47 lykkjur í umferð.

Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-24-26-27-29-30 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu – ATH! Passið uppá að síðasta umferðin passi við hversu langt randarmynstrið hefur verið prjónað á bakstykki.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan.

HÆGRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum ljós beige eða 1 þræði DROPSS Melody í litnum beige.
Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 7-7-7-8-8-8 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, það á fyrst að prjóna áfram yfir lista í kanti að framan þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 16-18-20-22-24-26 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan 6 lykkjur frá lista í kanti að framan inn í umferðina 22-24-26-28-30-32 lykkjur í umferð.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum uppfitjunarkanti.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 5-6-8-8-9-10 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að auka út lykkjum fyrir v-hálsmáli, JAFNFRAMT á sama tíma þá á að prjóna rendur og auka út lykkjum í hlið fyrir handveg, lestu því 3 næstu kafla áður en prjónað er áfram til að fá yfirlit yfir þegar rendur og útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-11-11-12-12-12 sinnum (= 22-22-22-24-24-24 prjónaðar umferðir) = 33-35-37-40-42-44 lykkjur.
Stykkið mælist ca 19-20-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni, rendur og kantlykkjur að framan – munið eftir HNAPPAGAT, lesið útskýringu að ofan.

RENDUR:
Þegar stykkið mælist 8-8-10-12-14-16 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið síðan í RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI, passið uppá að rendurnar passi við vinstra framstykki.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-25-26 cm, aukið er út í hlið við handveg þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir ÚTAUKNING-1, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-3-3 sinnum (= 4-4-6-6-6-6 prjónaðar umferðir). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 35-37-40-43-45-47 lykkjur í umferð.

Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-24-26-27-29-30 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu – passið uppá að síðasta umferð passi við hversu langt randarmynstrið er prjónað á bakstykki og vinstra framstykki.
Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er síðan mælt héðan!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er síðan prjónað í RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI eins og áður, umferð 1 er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið 35-37-40-43-45-47 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 4-4-4-4-6-8 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 58-62-68-74-78-82 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 4-4-4-4-6-8 nýjar lykkjur (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 35-37-40-43-45-47 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 136-144-156-168-180-192 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt frá!
Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur með rendur, sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 30-32-32-33-33-34 cm frá handvegi – síðasta röndin með litnum ljós beige / beige á nú að vera lokið.
Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 50-54-58-62-66-70 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 186-198-214-230-246-262 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og litinn sjávarblár og prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kantlykkjur að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 8 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Framstykkið mælist 61-64-66-68-70-72 cm mælt frá uppfitjunarkanti, framstykkið er ca 1-1-2-2-2-2 cm lengra en loka mál þar sem uppfitjunarkanturinn er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niðri á bakstykki, peysan mælist 60-63-64-66-68-70 cm.

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við á hringprjón 7.
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 4 til 6 cm niður á framstykki).
Notið hringprjón 7 og 2 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum ljós beige eða 1 þræði DROPS Melody í litnum beige. Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 48-50-54-56-60-66 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-6-6-5-6 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-6-6-5-6 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5-5-6-6-5-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5-5-6-6-5-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu.
Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4.
Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-8-8-8-10-10 sinnum (= 4-4-4-4-5-5 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu).

Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, prjóna síðan frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
Ermin er mæld frá merki efst á öxl.
Nú á að prjóna sléttprjón hringinn og fækka lykkjum undir ermi eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 9-9-8-7-6-6 cm frá merki á að prjóna RENDUR ERMI – lesið útskýringu að ofan (þ.e.a.s. í stærð XL og XXL byrja rendur á umferð 1).
Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-4 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 6½-5½-4½-4-3½-2½ cm alls 4-5-6-7-7-9 sinnum = 36-36-38-38-40-40 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-41-40-39-38-38 cm frá merki á topp á öxl, nú á síðasta röndin í litnum ljós beige / beiga að vera lokið.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og litinn sjávarblár og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-48-52-52-56-56 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 8 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 49-49-48-47-46-46 cm frá miðju ofan á öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumað saman – saumur = mitt að aftan, saumið síðan listann við uppfitjunarkantinn aftan í hnakka.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 254-19

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluemoonhalocardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Lilianne skrifaði:

Hello , I am just finishing the left Front part and its supposed to match the back part how ? The Model shows that the shoulder is actually at the back and the Front in my case is 30 cm ,which is Not the same with the back.

10.01.2025 - 03:46

DROPS Design svaraði:

Dear Liliane, front pieces will be longer than back pieces as the shoulders are diagonally down towards back piece, so in XXXL, back piece is 18 cm, front piece 30 cm = 48/2= 24 cm armhole (see chart) - find videos/lessons showing how to work this kind of jacket/jumper with European shoulders. Happy knitting!

10.01.2025 - 09:42

country flag Silvia P skrifaði:

Sto lavorando questo modello ma non sono sicura di aver capito esattamente come riprendere le maglie per fare i lati destro e sinistro. Io sto lavorando una maglia a dritto ad ogni nuovo ferro tirando su la maglia dal bordo dopo aver lavorato i core e le maglie rimanenti da come è scritto sembra invece che le maglie debbano essere tirate su tutte insieme perché dice poi di misurare la lunghezza a partire da quel ferro. Qual è la versione corretta? Grazie mille!

15.10.2024 - 20:10

DROPS Design svaraði:

Buonasera Silvia, le maglie si riprendono tutte in una volta, su un ferro solo, dopo aver lavorato le maglie del bordo. Buon lavoro!

02.11.2024 - 23:57

country flag MARIE JOSE GALERAND skrifaði:

Je ne comprends pas comment on débute le devant gauche, j’ai tricoté la bordure gauche mais ensuite je ne sais pas quoi faire. Merci de votre aide

24.09.2024 - 18:39

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Galerand, vous trouverez ici, en vidéo et là, en leçon comment tricoter le devant gauche, la seule différence ici étant la bordure devant, pour le devant gauche, vous allez d'abord tricoter les mailles de bordure devant sur l'endroit puis relever les mailles comme dans la vidéo/la leçon; pour le devant droit, vous devrez couper le fil de la bordure devant pour les tricoter de nouveau quand les mailles du devant droit sont relevées. Bon tricot!

25.09.2024 - 08:20

country flag Jasmin skrifaði:

Hi, ich stricke die Jacke in Gr L, habe den oberen Part des Rückenteils nach 17cm inkl der Zunahmen für die Armausschnitte fertig & bin nun dem linken Vorderteil. Hier steht aber, dass man mit den Zunahmen der Armausschnitte erst nach 23cm Länge beginnen soll. Kann das stimmen? Die Schultern sind ja nicht nach hinten versetzt, oder??

23.09.2024 - 18:30

DROPS Design svaraði:

Liebe Jasmin, die Schulter sind etwas nach hinten versetzt - siehe Tab "Videos" / "Lektion", dort finden Sie Videos und Lektion wie solche Modelle mit europäischen Schultern gestrickt werden. Viel Spaß beim Stricken!

24.09.2024 - 08:54

country flag Agnieszka skrifaði:

Dzień dobry :) W schemacie / opisie nie zostały uwzględnione oczka brzegowe. Czy należy je przerabiać, doliczyć do ogólnej liczby oczek? Nie wiem jak przerabiać rzędy, zwłaszcza te gdzie dodawane są oczka. Dziękuję za odpowiedź :)

23.09.2024 - 14:14

DROPS Design svaraði:

Witaj Agnieszko, oczko brzegowe jest każdorazowo wliczone do podanej liczby oczek, nie należy nic doliczać. Pozdrawiamy!

24.09.2024 - 08:33

country flag Emi skrifaði:

Hallo, ich stricke gerade die Anleitung. Ich habe die linke Vorderseite fertig und jetzt die rechte Blende gestrickt. Wenn ich diese aber, wie in der Anleitung beschrieben stricke, entsteht der I-Cord Rand auf der falschen Seite. So kann die Blende nicht an die Schulter angestrickt werden. Wie geht das richtig?

15.09.2024 - 13:44

DROPS Design svaraði:

Liebe Emi, bei der rechten Blende wird der I-Cord am Ende der Hin-Reihe sein, so wenn man die Maschen für die Schulter aufnimmt, dann enden die Hin-Reihe mit der Blende. Dh wenn die rechte Blende gestrickt wird, wird man den Faden abschneiden, dann die Maschen der rechten Schulter aufnehmen, dann die Blende stricken. Viel Spaß beim Stricken!

16.09.2024 - 09:05

country flag Elena Magomadova skrifaði:

Oppskrift

13.09.2024 - 19:59

country flag Lilian skrifaði:

Next project please,blue is my new black.

11.09.2024 - 21:27

country flag Mariluz skrifaði:

Me gustaría hacer la chaqueta toda de un color , cuantos ovillos serían para la talla S, un saludo.

27.08.2024 - 23:13

DROPS Design svaraði:

Hola Mariluz, como para hacer todo en un color, sin rayas, necesitarías el mismo número de ovillos, pero todos de un color. Para la versión de Brushed Alpaca Silk necesitarías 300 gr (o 12 ovillos), para la versión con Melody necesitarías 6 ovillos.

31.08.2024 - 18:14

country flag B Boop skrifaði:

Blue vibes

11.08.2024 - 15:36