Winter Rain#winterrainsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-3 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Lykkjufjöldinn í A.1 er breytilegur, en er alltaf talinn sem 6 lykkjur. Finndu þína stærð og byrjaðu á örinni sem tilgreind er (á við um ermar). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-114-114-122-122-130 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Cotton Merino. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Setjið 1 merki í byrjun umferðar og prjónið í hring þannig: Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 5-7-7-7-7-7 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 47-51-51-55-55-59 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 42-44-44-48-48-52 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Byrjun á umferð er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 33-37-37-39-39-41 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru 4 merki sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 14-18-18-18-18-18 lykkjur (= ermi). Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 37-37-37-41-41-45 lykkjur (= framstykki). Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14-18-18-18-18-18 lykkjur (= ermi). Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 37-37-37-41-41-45 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið laskalykkju, prjónið A.2, (byrjið við ör 1-2-2-2-2-2), prjónið A.1, prjónið A.3 (byrjið við ör 1-2-2-2-2-2) (= ermi), prjónið laskalykkju, prjónið A.2 (allar stærðir: Byrjið við ör 1), haldið áfram með A.4 / perluprjón að næstu laskalykkju, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu (= fram-/bakstykki) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 114-122-122-130-130-138 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 29 sinnum í öllum stærðum = 338-346-346-354-354-362 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) – þegar mynsturteikning A.3 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, heldur útaukning áfram og perluprjón / A.4 sem prjónað er áfram á sama hátt og nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar aukið hefur verið út 29 sinnum í öllum stærðum, er útaukning fyrir ermar lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 2-4-6-6-10-12 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 346-362-370-378-394-410 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan með perluprjóni og A.1 án þess að auka út þar til stykkið mælist 23-24-25-26-28-30 cm frá merki eftir kant í hálsmáli – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT þegar næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið laskalykkju slétt (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 72-76-76-76-76-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-7-11-19-23-27 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 101-105-109-113-121-129 lykkjur í A.4 eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-76-76-76-76-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-7-11-19-23-27 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 100-104-108-112-120-128 lykkjur í A.4 eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-224-240-264-288-312 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= í miðju af 3-7-11-19-23-27 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið slétt fram að merki, umferðin byrjar í lykkju með merki og prjónað er í hring. Haldið áfram að prjóna A.4 hringinn á öllu fram- og bakstykkinu þar til stykkið mælist 46-47-49-50-52-54 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 44-44-48-54-62-62 lykkjur jafnt yfir bakstykki í umferð 1 = 252-268-288-318-350-374 lykkjur. Þegar stroff mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-52-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 72-76-76-76-76-76 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 3-7-11-19-23-27 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-83-87-95-99-103 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 3-7-11-19-23-27 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar í þessari lykkju og þessi lykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni. Stillið af að mynstur A.4 og A.1 haldi áfram eins og áður frá berustykki yfir á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en það er mikilvægt að mynstrið verði samhverft hvoru megin við A.1. Prjónið í hring með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-3-2-4-3-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2-2-1½-1½-1½ cm alls 11-14-15-18-18-19 sinnum = 53-55-57-59-63-65 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-36-36-35-34-31 cm frá skiptingunni. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 24-25-26-27-29-30 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-4-5-6-6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 29-29-31-33-35-37 lykkjur), prjónið A.1 eins og áður, prjónið 23-24-25-26-28-29 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-6-7-6-6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 28-30-32-32-34-36 lykkjur) = 63-65-69-71-75-79 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 29-29-31-33-35-37 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir síðustu 28-30-32-32-34-36 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn með stroff þar til stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-41-41-40-37 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterrainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.