Elisa skrifaði:
Hallo, das Muster ist sehr schön. Wird es den Pullover auch als Erwachsenenmodell geben? Ggf. mit dickeren Garn? Viele Grüße.
14.04.2025 - 12:13DROPS Design svaraði:
Liebe Elisa, genau dasselbe haben wir nicht, aber ähnliche Modelle finden Sie hier für Frauen und hier für Herren. Viel Spaß beim Stricken!
22.04.2025 - 08:57
Helma Kauffeld skrifaði:
Hallo, ik zou graag dit patroon met Alpaca garen breien kan dit of heb ik dan meer bollen nodig. Ik wil geen wol omdat ik niet weet of mijn kleinzoon daar tegen kan? \r\nMet vriendelijke groet Helma
01.04.2025 - 14:24DROPS Design svaraði:
Dag Helma,
DROPS Alpaca valt in een andere garengroep (groep A). Via deze link lees je meer informatie over het onderling vervangen van garens.
02.04.2025 - 09:00
Nadja Bareiß skrifaði:
Hallo. Kann es ein das die die Anzahl nicht aufgeht? Ich habe 124 Maschen auf der Nadel nach dem ersten Pfeil. Dann geht es mit Muster wie folgt weiter... 2M hell nougat, eine M marzipan, 2M hell nougat, eine M marzipan usw. Es geht bei mir zum Schluss nicht auf. Ich habe zum Schluss 1 Masche nougat. Wenn ich dann noch die 2 Maschen vom Anfang habe, dann sind es 3M nougat in folge. Was übersehe ich da? Danke im voraus für die Antwort
21.02.2025 - 00:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bareiß, Sie haben jetzt 124 Maschen auf der Nadel und damit können Sie die 4 Maschen A.1 insgesamt 31 Mal wiederholen, so (2 M hell nougat, 1 M Marzipan, 1 M hell Nougat) x 31 (so sind es 3 M hell Nougat infolge, so ist es richtig). Viel Spaß beim Stricken!
21.02.2025 - 08:48
Claudia Alessandri skrifaði:
Le indicazioni riguardanti il quantitativo di lana necessaria per il colore n° 11, nocciola chiaro sono inesatte. Sto eseguendo il maglioncino taglia 3-4 anni attenendomi alla spiegazione e al numero di ferri consigliato ma i 150 gr previsti non sono sufficienti per eseguire le maniche
03.02.2025 - 14:38
Thüring Margrit skrifaði:
Ich habe schon viele Pullover nach Ihren Anleitungen gestrickt und war immer gut zurechtgekommen, nun habe ich aber eine Frage. Mein Enkel ist sechs Jahre und drei Monate alt und misst 117 cm. Jetzt weiss ich nicht nach welcher Ihrer Grössenangabe ich stricken soll, entweder ist der Pullover zu gross oder zu klein und das ganze umzurechnen übersteigt mein Können ! Was raten Sie mit ? Vielen Dank für Ihre Antwort und ganz freundliche Grüsse
10.11.2024 - 14:12DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Thüringen, am besten messen Sie einen ähnlichen Pullover, den er gerne trägt, dann vergleichen Sie diese Maßnahmen mit den in der Skizze so finden Sie die passende Größe; hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
11.11.2024 - 09:32
Walnuts & Smiles Sweater#walnutsandsmilessweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2 – 12 ára
DROPS Children 48-11 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5 hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-84-84-88-88 lykkjur á hringprjóna eða sokkaprjóna með litnum ljós nougat í DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff svona í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 16-20-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-100-104-108-112-116 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt að aftan, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið A.1 hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýr er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 20-24-24-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 116-124-128-132-136-144 lykkjur. Ör-2: Aukið út 24-24-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 140-148-152-156-164-172 lykkjur. Ör-3: Aukið út 24-24-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 175-183-187-191-203-211 lykkjur. Ör-4: Aukið út 24-24-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 164-172-176-180-192-200 lykkjur. Ör-5: Aukið út 24-28-32-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 212-224-236-240-252-264 lykkjur. Prjónið A.1 til loka, síðan er prjónað með litnum ljós nougat þar til stykkið mælist ca 16-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 31-33-35-36-38-40 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki, setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 62-66-70-72-76-80 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 31-33-35-36-38-40 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Haldið síðan áfram með litnum ljós nougat, prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 15-19-23-25-26-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið JAFNFRAMT út 36-36-36-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 172-180-188-200-208-216 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMI: Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi (mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón með litnum ljós nougat. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½-2½-3-3½-4-4 cm millibili alls 6-7-7-7-7-8 sinnum = 38-38-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 14-20-24-27-31-35 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 17-23-27-31-35-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #walnutsandsmilessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.