Annette skrifaði:
Gibt es diesen Pullover auch für Erwachsene? Er ist wunderschön! Vielen lieben Dank im Voraus Annette
29.10.2026 - 17:00DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, hier finden Sie den Damen Pullover. Viel Spaß beim Stricken!
30.10.2026 - 07:31
Isabella skrifaði:
Buongiorno. nel maglione vengono usati sia ferri 3 che ferri 4. non capisco come sia stato da voi pensato il campione. ho eseguito il campione coi ferri 4 e mi risulta più piccolo del 10x10. è corretto fare il campione coi ferri 4? o dovevo farlo coi ferri 3? in sintesi non capisco se il campione è una stima utile e riguardante le lavorazioni che successivamente vengono effettuate con ferri 3? o con ferri 4.... help grazie mille
26.08.2026 - 14:54DROPS Design svaraði:
Buongiorno Isabella, solitamente il campione è lavorato con i ferri più grandi, se il campione non corrisponde deve cambiare numero di ferri fino a raggiungere le misure indicate. Buon lavoro!
26.09.2026 - 10:17
Isa skrifaði:
Buongiorno. il campione è una stima da fare riguardo alle lavorazioni che successivamente vengono effettuate con ferri 3? o Ferri 4?
26.08.2026 - 14:48DROPS Design svaraði:
Buongiorno Isa, il campione solitamente si lavora con i ferri più grandi. Buon lavoro!
31.10.2026 - 15:28
Sigrun skrifaði:
Hallo und guten Tag, meine Frage zu o.g. Pulli, wird das Norweger Muster mit 2 Runden pro Farbe gestrickt, also der Mustersatz hat 5 oder 10 Reihen, Lieben Dank im Voraus, Freundliche Grüsse aus Karlsbad Sigrun Dörflinger
04.08.2026 - 15:02DROPS Design svaraði:
Liebe Sigrun, es sind alle Runden des Musters im Diagramm eingezeichnet, Sie brauchen die gezeigten Runden also nicht verdoppeln. Viel Spaß beim Stricken!
04.08.2026 - 22:55
Tanja skrifaði:
Hallo, Könnte man diese Anleitung auch in Gr M bekommen?
18.05.2026 - 13:04DROPS Design svaraði:
Liebe Tanja, hier finden Sie die Damen-Version. Viel Spaß beim Stricken!
18.05.2026 - 16:02
Isabella skrifaði:
Buongiorno. Per fare il disegno in tinta unita , esempio tutto rosso, di quanti grammi ho bisogno? Grazie
28.02.2026 - 16:29DROPS Design svaraði:
Buonasera Isabella, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Indicativamente le serviranno un paio di gomitoli in più. Buon lavoro!
01.03.2026 - 20:49
Paula María skrifaði:
Tenéis algún patrón similar para adultos o este mismo? Es precioso
23.02.2026 - 09:56DROPS Design svaraði:
Hola Paula María, la talla 11-12 años sería similar a una talla XS de mujer. Para otras tallas, puedes usar otro patrón similar para esta lana, como el 218-5, y sustituir el diagrama de ese patrón por el diagrama del patrón de niños.
09.03.2026 - 00:26
Révész Zsuzsanna skrifaði:
Kérdezném hogy Sky vagy Air finalból készült a pulóver? A hozzávalók és munkakezdés Drops Air fonalat ír, a képen Drops Sky fonal látható. Köszönöm a választ, Révész Zsuzsa
01.02.2026 - 20:25
Barbara Fryer skrifaði:
I have just finished this project . I love the yarn but I did not have enough of the main color - My gauge and finished sweater size were correct - luckily I was able to get 2 extra skeins.
03.01.2026 - 16:33
Claire skrifaði:
Pour les augmentations du jacquard ! Est ce que les flèches 3et 5 sont bien positionnées ? Merci de me répondre !
07.12.2025 - 23:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Claire, tout à fait, les flèches sont bien placées, notez juste que les motifs ne seront pas alignés comme dans le diagramme, mais que votre nombre de mailles est toujours divisible par 4, ainsi, vous répétez les 4 mailles du diagramme tout le tour. Bon tricot!
08.12.2025 - 10:11
Berries & Dreams Sweater#berriesanddreamssweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-10 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til á eftir 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-84-84-88-88 lykkjur á hringprjóna eða sokkaprjóna 3 með litnum trönuber í DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn hvít þoka og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff svona í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 16-20-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 96-100-104-108-112-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið A.1 hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 20-24-24-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 116-124-128-132-136-144 lykkjur. Ör-2: Aukið út 24-24-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 140-148-152-156-164-172 lykkjur. Ör-3: Aukið út 24-24-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 164-172-176-180-192-200 lykkjur. Ör-4: Aukið út 24-24-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 188-196-204-208-220-232 lykkjur. Ör-5: Aukið út 24-28-32-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 212-224-236-240-252-264 lykkjur. Prjónið A.1 til loka, síðan er prjónað með litnum hvít þoka þar til stykkið mælist ca 16-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 31-33-35-36-38-40 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 62-66-70-72-76-80 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 31-33-35-36-38-40 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Haldið síðan áfram með litnum hvít þoka, prjónað er sléttprjón hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 15-19-23-25-26-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið JAFNFRAMT út 36-36-36-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 172-180-188-200-208-216 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2½-2½-2½-3½-3½-3½ cm, prjónið síðan 2 umferðir stroff með litnum trönuber. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMI: Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi (mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp). Látið merkiþráðinn fylgja með áfram í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón með litnum hvít þoka. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½-2½-3-3½-4-4 cm millibili alls 6-7-7-7-7-8 sinnum = 38-38-40-42-44-44 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist ca 14-20-24-27-31-35 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) Í 2½-2½-2½-3½-3½-3½ cm, prjónið síðan 2 umferðir stroff með litnum trönuber. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 17-23-27-31-35-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #berriesanddreamssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.