Elisa skrifaði:
Mia nipote (10 anni quasi) misura dalla spalla al polso 46 cm. Se io ,dalla divisione del lavoro,prolungo la manica x un tot di 39 cm (compreso il bordo a coste) non verrebbe di quasi 60 cm?
22.07.2026 - 20:39DROPS Design svaraði:
Buonasera Elisa, nello schema in fondo alla pagina può vedere le misure definitive del modello finito. Buon lavoro!
08.08.2026 - 20:39
Elisa skrifaði:
Dopo aver fatto per la 1volta gli aumenti ogni 4 giri sulle maniche,nel giro 5 del motivo,quando dovrei inserire A4 dovrei fare:9 dritti,2 ins 1 gettato 6 dritti 2 ins 1 gettato ,6 dr 2 in 1 gettato e continuo a ripetere A2(A4) fino a che resteranno 6 maglie a dritto (sarebbe lo spazio di A3)? E poi,al giro 7 ho gli aumenti,e compresi gli aumenti avrei 9 dritti 2 ins 1 gettato 1 dr 1 accavallata,3 dritti ,2 ins 1 gettato 1 dr 1 gett,1 acc e continuo a ripetere fino anche restano 7 maglie di A3?
12.07.2026 - 00:49DROPS Design svaraði:
Buonasera Elisa, il motivo A.4 viene lavorato sulle maniche. Buon lavoro!
09.08.2026 - 13:18
Elisa skrifaði:
Sto avendo problemi con la ripetizione del diagramma A4. Dopo il marker dovrebbe essere 6 maglie a dritto,2 maglie insieme a dritto,1 gettato (A4)poi A2 quindi 2 dritti,2 maglie ins ,1 gettato,4 dritti,(poi ripeto A2) quindi 2 dritti,2 ins,1 gettato e continuo a ripetere A2 fino a quando ci sta la ripetizione e poi termino con A4 quindi 6 dritti,2 ins,1gettato? ma cosi facendo dopo il primo marker ci sono 6 maglie dritte prima di A4 mentre invece prima dell' ultimo marker nessuna
11.07.2026 - 14:12DROPS Design svaraði:
Buongiorno Elisa, se sta lavorando sulle maniche, deve lavorare solo il diagramma A.4. Buon lavoro!
09.08.2026 - 13:14
Elisa skrifaði:
Purtroppo non mi combacia il motivo A4.Dal momento in cui dovrò aumentare sulle maniche ogni 4 giri nel raglan,poi nel giro 5 del motivo ,dove inizio i trafori che sequenza devo seguire? Prima era A1-A2-A2-A3 e ora? Oppure direttamente A4 fino e quindi conto 6 maglie dal marker prima di 2 maglie ins a dritto,1 gettato,poi ancora 6 dritti,2 ins 1 gettato,6 dritti e ripeto così A4 fino a 6 m dal Mark?
11.07.2026 - 00:19DROPS Design svaraði:
Buongiorno Elisa, sulle maniche deve lavorare il motivo A.4. Buon lavoro!
05.08.2026 - 16:54
Elisa skrifaði:
Non riesco a comprendere come fare i diagrammi. Dopo il bordo a coste ho 4 giri a m.rasata (in cui inizio il raglan) e poi devo iniziare i trafori ma non capisco se nel giro 5 devo fare i trafori sia in A1 A2 A3 o solo in A1-A3 lavorando le 8 maglie di A2 a m rasata o se devo fare tutti e 3 i trafori in sequenza,mi può spiegare?
09.07.2026 - 18:07DROPS Design svaraði:
Buongiorno Elisa, i motivi vanno lavorati in sequenza su tutti i ferri. Buon lavoro!
05.08.2026 - 16:47
Elisa skrifaði:
Ho un filato più fine del drops muskat,uso sempre i ferri 4 ho provato a fare il campione e con 21 maglie ho circa 9 cm quindi servirebbero 3-4 maglie in più...come posso adattare il lavoro? Pensavo di mettere in tot 4 maglie in più 1 sul davanti,1 sul dietro e le altre 1 a testa per le maniche (temo per il motivo) si può fare?
08.07.2026 - 16:23DROPS Design svaraði:
Buonsera Elisa, per um'assistenza così personalizzata, può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
12.07.2026 - 13:30
John Cawly skrifaði:
For all who are finding it difficult to continue as the increases change on the arm portions, what I found very helpful to keep track of those changes was to place a stitchmarker (of a different color) to identify the increases on the sleeve sections. It took me a very, very long time to figure out chart A4, and for me it is very confusingly written. Instead of using charts A1 and A3 in that portion, I used A4 in place of both. Hope this makes sense. John
28.10.2025 - 22:24
Sabine skrifaði:
Im vorletzten Satz gibt es einen Summierungsfehler: Der Ärmel der Größe 9-10 Jahre ist nach dem Abketten 39 cm lang (nicht 37). ;-)
11.09.2025 - 14:14DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, das stimmt, danke für den Hinweis! Es wird in Kürze korrigiert.
25.10.2025 - 00:21
Sabine skrifaði:
Liebes Drops-Team, A4 ist schwer zu verstehen - erkenntlich für mich ist, dass für das neue Daisy (Gänseblümchen) der Umschlag zwischen der 2. und 3. Masche entsteht, die sich zwischen den Daisys der vorherigen Reihe befinden. Auf den Fotos sind in dieser 3. Daisy-Reihe jedoch 5 Daisys zu erkennen, bei mir jedoch ist kein Platz dafür unter Berücksichtigung derRaglanmaschen und des Abstands der Daisys zueinander. Sollen an diesen Stellen ggf. auch halbe Daisys gestrickt werden?
07.09.2025 - 10:51DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, Sie stricken keine halben Lochmuster. Die Maschen, die nicht im Muster aufgehen, stricken Sie glatt rechts. Erst wenn wieder genug Maschen für einen Rapport vorhanden sind, stricken Sie wieder ein neues Lochmuster. Gutes Gelingen!
17.09.2025 - 09:43
Charlotte Almar skrifaði:
Jeg forstår overhovedet ikke, hvordan jeg, efter 158 masker, kommer videre med mønstret?? Jeg skal bruge A4, men ikke A1 og A3, men hvad med A2 og hvordan skal jeg starte?? Jeg fatter absolut intet... Kan det forklares i detaljer? På forhånd tak
26.05.2025 - 09:55DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, jo du fortsætter med at tage ud på hver 2.omgang til ryg og forstykke, men på ærmerne tager du nu kun ud på hver 4.omgang. Mønsteret på ærmerne fortsætter som du allerede gør :)
27.05.2025 - 14:36
Daisy Fields#daisyfieldssweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-1 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma: Merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-80-88-88-88 lykkjur á sokkaprjóna eða hringprjóna 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt, jafnframt því sem 4 merkiþræðir eru settir í stykkið og aukið út þannig: Prjónið 13-13-13-13-13-13 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1 merkiþráð, 16 lykkjur slétt og aukið út 3 lykkjur jafnt yfir (ermi), setið 1 merkiþráð, 24-24-24-28-28-28 lykkjur (framstykki), setjið 1 merkiþráð, 16 lykkjur slétt og aukið út 3 lykkjur jafnt yfir (ermi), setjið 1 merkiþráð, 11-11-11-15-15-15 lykkjur slétt (ca hálft bakstykki) = 86-86-86-94-94-94 lykkjur. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir laskalínu og mynstur A.1 til A.3 er prjónað yfir lykkjur á ermum. ATH! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 1 mynstureiningu fleiri af A.2 á breiddina á milli A.1 og A.3. Prjónið 12-12-12-12-12-12 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 10-10-10-14-14-14 lykkjur slétt. Haldið áfram í sléttprjóni á framstykki / bakstykki, gatamynstri á ermum og útaukningu fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina, í annarri hverri umferð alls 9-9-7-8-8-7 sinnum (ásamt fyrstu útaukningu) = 158-158-142-158-158-150 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-12-16-14-16-18 sinnum á framstykki/bakstykki (5-6-8-7-8-9 sinnum á ermum). ATH! Útaukning á ermum kemur ekki til með að halda áfram eins og útskýrt er í A.1 og A.3 þar sem nú er aukið út í 4. hverri umferð. A.4 sýnir 1 mynstureiningu af mynstri, passið uppá að þetta passi síðar yfir mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 218-230-238-242-254-258 lykkjur í umferð, það hefur verið aukið út 19-21-23-22-24-25 sinnum á framstykki/bakstykki og 14-15-15-15-16-16 sinnum á ermum. Haldið áfram í sléttprjóni á framstykki/bakstykki og gatamynstri á ermum, án útaukninga þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm, mælt eftir stroffi mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 32-34-36-35-37-38 lykkjur eins og áður (ca hálft bakstykki), setjið næstu 47-49-49-49-51-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), 62-66-70-72-76-78 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 47-49-49-49-51-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 30-32-34-37-39-40 lykkjur eins og áður (ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-16-20-23-24 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist fyrir ermar, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 152-160-168-176-184-196 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-50 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 47-49-49-49-51-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-55-57-59-61 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.4, þær lykkjur sem ekki ganga upp í heilt gatamynstur í hvorri hlið, eru prjónaðar í sléttprjóni. Stillið af að mynstur A.4 passi síðan yfir gatamynstur frá A.1 til A.3. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-5-6-7-8 cm millibili alls 6-6-5-5-5-5 sinnum = 41-43-45-47-49-51 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-24-28-32-36-40 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki eða að óskaðri lengd og það eru ca 3 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 22-27-31-35-37-43 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daisyfieldssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.