Mamen skrifaði:
Me gustaría hacerlo con otro hilo porque en España hace mucho calor para lana... ¿Qué me recomendáis? Gracias.
22.03.2024 - 12:57DROPS Design svaraði:
Hola Mamen, puedes probar a trabajar con doble hilo de Safran o 1 hilo de Bomull-Lin, que son de algodón y deberían quedar más frescos. Sin embargo, ya que la composición del hilo es diferente, la textura de la prenda tampoco quedará igual: Alpaca + Kid-Silk queda cálido pero muy ligero, mientras que los hilos del algodón serán más pesados.
24.03.2024 - 23:33
Skogstrikker skrifaði:
Butterfly hazel
22.01.2024 - 10:30
Thea Stauning Breuer skrifaði:
Louis4
21.01.2024 - 02:16
Melanie skrifaði:
Breeze Blossom Blouse or Whimsical Flutter Tee
19.01.2024 - 09:21
Colorado Junco skrifaði:
Butterfly-sleeved knit top
18.01.2024 - 21:48
Elena skrifaði:
Coffee Butterfly
18.01.2024 - 18:13
Ann-Christine Corneliusson skrifaði:
Brunöga
18.01.2024 - 16:31
Clair Coutts skrifaði:
Butterfly dream
18.01.2024 - 15:16
Alexandra skrifaði:
Bell Flower
18.01.2024 - 14:26
Pia skrifaði:
Mokka Tee
18.01.2024 - 13:41
Brown Butterflies Top#brownbutterfliestop |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með hringlaga hálsmáli með I-cord og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 4 lykkjur í umferð með því að auka út lykkjum hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið síðan útaukningu við merkiþráðinn í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkað er um 4 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið síðan úrtöku við merkiþráðinn í hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri). ÚRTAKA-2(á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 4 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 4 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= 2 lykkjur færri). I-CORD AFFELLING: Í lok umferðar, þegar allar lykkjur hafa verið prjónaðar í hringum hálsmál: Fitjið upp 5 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftir þessum 5 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 5 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 5 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Eftir UMFERÐ 2: Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 5 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 5 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli og fellt er af með I-cord. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 202-218-240-256-286-306 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Öll mál á lengdina eru gerð frá uppfitjunarkanti! Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón jafnframt því sem í fyrstu umferð er fækkað um 30-30-36-36-42-42 lykkjur jafnt yfir = 172-188-204-220-244-264 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 86-94-102-110-122-132 lykkjur (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 6-6-6-7-7-7 cm alls 3 sinnum = 160-176-192-208-232-252 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri) = 164-180-196-212-236-256 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, skiptist stykkið fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Byrjið 3-3-4-4-5-5 lykkjum á undan fyrri merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan seinni merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður út umferðina. Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKKI: = 76-84-90-98-108-118 lykkjur. Byrjið frá réttu, prjónið fram og til baka í sléttprjóni, en þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir handvegi og lykkjum er fækkað fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur alls 1-2-3-4-4-5 sinnum og síðan 1 lykkju alls 6-6-6-6-9-10 sinnum = 60-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan sléttprjón, en þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir úrtöku fyrir hálsmáli og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-2 = 16-18-18-20-21-23 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 76-84-90-98-108-118 lykkjur. Byrjið frá réttu, prjónið fram og til baka í sléttprjóni, en þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir handvegi og lykkjum er fækkað fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur alls 1-2-3-4-4-5 sinnum og síðan 1 lykkju alls 6-6-6-6-9-10 sinnum = 60-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, eru miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan sléttprjón, en þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir eftir að lykkjur hafa verið settar á þráð og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð alls 6 sinnum – munið eftir ÚRTAKA-2 = 16-18-18-20-21-23 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 82-86-90-94-98-100 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Setjið 1 merkiþráð í byrun umferðar (= mitt undir ermi), látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 10-10-8-7-5-4 cm frá uppfitjunarkanti. Nú á að fækka lykkjum mitt undir ermi og ermakúpan er síðan prjónuð eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Byrjið 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina. Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka, JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fækkið lykkjum í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-3-1-1-0-0 sinnum og síðan 1 lykkju 18-16-19-21-24-25 sinnum = 36-36-40-40-40-40 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 18-18-20-20-20-20 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 26-26-25-25-25-25 cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í – stillið af að e.t.v. auka efni á ermakúpunni sé dregið saman mitt ofan á ermi, þannig að ermin passi í handveginn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og 1 þráð í hvorri tegund, byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 80-80-86-86-92-92 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt lykkjum af þræði). Fellið síðan af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brownbutterfliestop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.