Lisa skrifaði:
In the right front, the last buttonhole (in size S) is made at 31cm, but the front pieces instructions say to place the outermost stitches on a thread at the same length, 31cm. Should I place the yarn over for the buttonhole onto the thread, and then work it with the garter stitch ridge at the end? Or do another wrong-side row to finish the buttonhole? I'm a little confused about where the buttonhole is supposed to fall
19.04.2025 - 04:20DROPS Design svaraði:
Hi Lisa, It is best to work the buttonhole on the last 2 rows before placing stitches on a thread/stitch holder. Happy Easter!
19.04.2025 - 17:09
Peony skrifaði:
I followed the pattern on the sleeves but I got a sleeve with a curve not matching the armhole of the body piece. Moreover, it seems that the circumference is not aligning with the armhole that made the assemble of sleeve to body impossible. Any idea if I did something wrong?
17.05.2024 - 05:11DROPS Design svaraði:
Dear Peony, did you cast off the same number of stitches on each side of sleeve cap? Ie both at the beg from right side and from wrong side so that the sleeve cap is symmetrical and measures the correct height (see chart). Then the sleeve cap should fit nicely along armhole. Happy assembly!
17.05.2024 - 09:43
Diana skrifaði:
On the front piece, should it not read bind off for the neckline every 2nd row. It reads bind off for armhole on your pattern!!
07.05.2024 - 18:59DROPS Design svaraði:
Dear Diana, you are right thank you, a correction will be made asap. Happy knitting!
08.05.2024 - 07:34
Diana skrifaði:
On the front piece, should it not read bind off for the neckline every 2nd row as follows???
07.05.2024 - 18:57
Inger Sörvik skrifaði:
Ska jag inte byta till st 3,5 efter resåren?
02.04.2024 - 12:28DROPS Design svaraði:
Hej Inger, ja det stemmer, vi skal få det justeret, tak for info :)
05.04.2024 - 09:23
Sand Cove Cardigan#sandcovecardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með hringlaga hálsmáli, ísaumuðum stuttum ermum, gatamynstri, köðlum og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-28 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 7, 15, 23, 31 cm. STÆRÐ M: 7, 15½, 24, 32½ cm. STÆRÐ L: 8, 16½, 25, 33½ cm. STÆRÐ XL: 8, 15, 22, 29, 36 cm. STÆRÐ XXL: 9, 16, 23, 30, 37 cm. STÆRÐ XXXL: 9, 16½, 24, 31½, 39 cm. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju á þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring upp að handvegi, síðan er ermakúpan prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 232-256-280-312-356-392 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur þannig, fyrsta umferð er frá réttu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan – lesið KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD, prjónið A.1 þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 og 7 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Lestið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið sléttprjón og fækkið um 46-54-58-66-78-82 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni, prjónið 7 kantlykkjur að framan = 186-202-222-246-278-310 lykkjur í umferð. Setjið einn merkiþráð 50-54-59-65-73-81 lykkjur inn frá hvorri hlið (86-94-104-116-132-148 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón með kant að framan eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm, aukið út hvoru megin við hvorn merkiþráð – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 2-2-2-2-3-3 cm alls 6-6-6-6-5-5 sinnum í hvorri hlið = 210-226-246-270-298-330 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Prjónið 53-57-61-67-73-81 lykkjur eins og áður (framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 92-100-108-120-132-148 lykkjur sléttprjón (bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 53-57-61-67-73-81 lykkjur eins og áður (framstykki). Nú eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 53-57-61-67-73-81 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og kantlykkjur að framan og fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 1-2-3-3-6-7 sinnum = 50-51-52-53-54-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm, setjið ystu 11-11-12-12-13-13 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. 7 kantlykkjur að framan + 4-4-5-5-6-6 lykkjur) = 39-40-40-40-41-43 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 25-26-26-27-27-29 lykkjur á öxl. Prjónið síðan eins og áður þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: = 92-100-108-120-132-148 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 1-2-3-3-6-7 sinnum = 86-88-90-92-94-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 25-26-26-27-27-29 lykkjur á hvorri öxl. Prjónið síðan eins og áður þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Fitjið upp 80-84-96-112-120-128 lykkjur á sokkaprjóna 2,5. Prjónið A.1 hringinn í 2-2-2-3-3-3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-7-12-14-15-16 lykkjur jafnt yfir = 70-77-84-98-105-112 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Prjónið mynstur A.3 hringinn þar til ermin mælist 18-18-17-17-16-15 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu fjölda í mynstri Í næstu umferð eru felldar af 6-6-8-8-10-10 lykkjur mitt undir ermi fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn) = 64-71-76-90-95-102 lykkjur. Síðan er prjónað fram og til baka í mynstri eins og áður, jafnframt því sem fellt er af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-4-4-4-4-5 sinnum og 1 lykkju 6-7-9-9-12-12 sinnum = 40-41-42-56-55-58 lykkjur. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorir hlið þar til ermin mælist 26-27-27-28-29-29 cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorir hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 27-28-28-29-30-30 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar við handveg. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið prjóna 2,5 og prjónið upp frá réttu ca 118-134 lykkjur meðfram hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þráðum). Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandcovecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.