Margit Pehrsson skrifaði:
How much yarn do I need to buy to knit size L but make the garment 6 cm longer?
21.04.2024 - 19:20DROPS Design svaraði:
Dear Margit, you would need to calculate the pattern yourself, using the yardage of the yarns and the complete measurements of the pattern. Just in case, you could buy 1 more ball of each than stated for size L. Happy knitting!
22.04.2024 - 00:25
Patricia Zachrau Hornum skrifaði:
Jeg forstår ikke helt i starten af opskriften hvad menes der med 2 maske retstrik?
30.03.2024 - 22:15DROPS Design svaraði:
Hei Patricia . Øverst i oppskriften står det: RETSTRIK (strikkes frem og tilbage): Strik ret på hver pind. Om det er de 2 første maskene som skal strikkes retstrik, skal disse 2 maskene strikkes rett både fra retten og fra vrangen. mvh DROPS Design
02.04.2024 - 08:53
Amélie skrifaði:
Il y a une petite erreur dans l'explication: Au dos, suite aux côtes du début, on nous dit de passer à l'aiguille 5,5 alors que le modèle se tricote avec du 4,5 mm! Merci!
23.03.2024 - 18:49
Diane skrifaði:
Achterpand …… ga verder met rondbreinaald 5,5, Klopt dit wel of moet het 4,5 zijn?
23.03.2024 - 15:16DROPS Design svaraði:
Dag Diane,
Dit moet inderdaad 4.5 zijn; ik heb het aangepast.
24.03.2024 - 19:55
Luize skrifaði:
In the A1 diagram the first row of the model on the right side I knit 3 together, one slip and two together and then pass the slipped one, like decreasing 3, but on the wrong side I do not have 3 stitches as they were one… but the diagram shows three to knit… I do not understand how to knit it on the wrong side… Thank you for helping me
18.03.2024 - 22:00DROPS Design svaraði:
Dear Luize, on the first row of A.1 (RS) work the K3 as follows: slip 1 stitch, knit 2, pass slipped stitch over knitted stitch (= 2 sts remain), on next row (WS), purl 2, on 3rd row (RS), K1, YO, K1 = there are 3 sts again. On next row (WS), purl these 3 sts. Happy knitting!
19.03.2024 - 11:14
Marieka skrifaði:
Peppermint morning
19.01.2024 - 15:35
Melanie skrifaði:
Whispering Willow Lace Tee, Lace Cascade, Elegant Vineyard.
19.01.2024 - 09:26
Laura skrifaði:
Hope
19.01.2024 - 09:09
Susie skrifaði:
Pistachio Dream
19.01.2024 - 06:54
Anna Buchroithner skrifaði:
Fresh Morning
18.01.2024 - 23:45
September Rains#septemberrainsvest |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, klauf í hliðum og skáhallandi öxl. Stærð XS - XXL.
DROPS 249-3 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka. Framstykkið og bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig. Prjónað er neðan frá og upp og fram- og bakstykkið er saumað saman. Í lokin er prjónaður upp kantur í hálsmáli sem brotinn er tvöfalt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-114-126-134-146-166 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur halda áfram í garðaprjóni) og fækkið um 9-11-13-11-13-13 lykkjur jafnt yfir = 93-103-113-123-133-153 lykkjur. Nú er prjónað mynstur frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 9-10-11-12-13-15 sinnum, endið með fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHGUIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir kant á ermi í lok 2 næstu umferða = 103-113-123-133-143-163 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, setjið miðju 35-37-39-41-43-45 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (34-38-42-46-50-59 lykkjur eftir á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. SKÁHALLANDI ÖXL: Í næstu umferð frá hlið eru felldar af fyrstu 5 lykkjur (kantur á ermi). Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl þannig að axlirnar fái betra form og passi betur, með byrjun í næstu umferð frá hlið / handvegi þannig: Haldið áfram með A.1 og setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 8-9-10-11-12-14 lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan síðustu 5-6-7-8-9-12 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 29-33-37-41-45-54 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að koma í veg fyrir göt þar sem snúið er við mitt í handvegi, takið þráðinn upp á milli 2 lykkja og prjónið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti að efsta punkti á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-46-46-48-50 cm = 103-113-123-133-143-163 lykkjur. Nú eru miðju 27-29-31-33-35-37 lykkjur settar á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en prjónað er áfram. HÁLSMÁL: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum. Þegar lykkjum er fækkað í A.1, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilan kaðal eru prjónaðar brugðið. SKÁHALLANDI ÖXL: Í næstu umferð frá hlið eru felldar af fyrstu 5 lykkjur (kantur á ermi). Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl þannig að axlirnar fái betra form og passi betur, með byrjun í næstu umferð frá hlið / handvegi þannig: Haldið áfram með A.1 og setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 8-9-10-11-12-14 lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan síðustu 5-6-7-8-9-12 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 29-33-37-41-45-54 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að koma í veg fyrir göt þar sem snúið er við mitt í handvegi, takið þráðinn upp á milli 2 lykkja og prjónið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti að efsta punkti á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma niður að stroffi = klauf í hliðum. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 80 til 104 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt lykkjum af þræði), á stuttan hringprjón 3,5. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #septemberrainsvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.