DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Bomull-Lin yarn
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 792.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2376.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS 247-5

#tortillabag

DROPS Design: Mynstur I-170
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stykkið mælist ca 20 cm að þvermáli.

GARN:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150 g litur 03, sandur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 9 umferð á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 792.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2376.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur sem viðbót.
Þegar heklað er í hring, endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
Sjá mynsturteikningu A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Það eru heklaðir 2 hringir frá miðju og út, síðan er hekluð ól/band bæði sem ól/band og hliðarstykki. Í lokin eru stykkin saumuð saman.

HRINGUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með DROPS Bomull-Lin og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Síðan er heklað í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 12 sinnum í umferðmynsturteikning A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.1.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar öll mynsturteikning hefur verið hekluð, mælist stykkið ca 20 cm að þvermáli. Heklið síðan með 1 keðjulykkju í hvern af fyrstu 27 stuðla í umferð. Klippið og festið þráðinn.
Heklið annan hring til viðbótar á sama hátt.

ÓL / BAND:
Heklið 15 loftlykkjur og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 12 stuðlar.
Heklið fram og til baka þar til ólin/bandið mælist 47 cm – lesið HEKLLEIÐBEININGAR.
Síðan er ólin/bandið brotið tvöfalt á lengdina og skammhliðin er hekluð saman með 1 stuðul í hvern stuðul í gegnum bæði lögin = 6 stuðlar.
Heklið 6 stuðla fram og til baka þar til ólin/bandið mælist alls 140 cm.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppfitjunarkantinn á ól/bandi tvöfalt, þannig að öll ólin/bandið sé 6 lykkjur á breidd og saumið kantinn niður í gegnum bæði lögin. Tvöfalda ólin/bandið er nú saumað niður meðfram kanti á hring – fastalykkjur á hring sýna op á töskunni.
Saumið saman þannig: Byrjið þar sem fastalykkjur enda, saumið aðra langhliðina á tvöföldu ólinni/bandinu við stuðla yst á hring (það á nú að vera lítill kantur), haldið áfram með sauminn meðfram kanti hringinn þar sem fastalykkjurnar byrjuðu – tvöfalda ólin/bandið endar einnig hér.
Síðan er hin hliðin saumuð við tvöfalda ólina/bandið á hinum hringnum á sama hátt.
Hinn hlutinn á ólinni/bandinu (sem ekki er tvöfalt) er ólin á töskunni.

Mynstur

heklið 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt á hring, umferðin byrjar og endar hér = heklið 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt á hring, umferðin byrjar og endar hér
umferðin byrjar með 3 loftlykkjur, í lok umferðar er hekluð ein keðjulykkja í 3. loftlykkju = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur, í lok umferðar er hekluð ein keðjulykkja í 3. loftlykkju
1 stuðull um loftlykkjuhringinn = 1 stuðull um loftlykkjuhringinn
1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
2 stuðlar í lykkjuna fyrir neðan = 2 stuðlar í lykkjuna fyrir neðan
Diagram for DROPS 247-5
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 247-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Susana skrifaði:

Hello, what is the sewing technic used to sew both circles to the strap? There is no indication on the pattern or videos provided. Thank you

06.06.2025 - 12:30

DROPS Design svaraði:

Dear Susana, we don't have any video to that specific seam, you will use a mix of these 2 videos: how to sew a pice worked with treble crochets (here) = circle on one side and how to sew squares together (here) = strap. Make sure to not tighten piece, you can first add pins on your work so that it might make the seam easier. Happy assembly!

06.06.2025 - 13:08

country flag Susana skrifaði:

Heya, can I kindly ask if on this part "Work 6 treble crochets back and forth until the band measures a total of 140 cm" I will still need to work the crochet information "At the beginning of each round/row of treble crochets work 3 chain stitches, which do not replace the first treble crochet but are in addition"? Thank you

04.06.2025 - 22:50

DROPS Design svaraði:

Dear Susana, sure you still ned this info, this means you start each row with 3 chains to start row but these chains will not replace the first treble crochet, then crochet 1 treble crochet in each of the next 6 treble crochets = there are 6 treble crochets in total for the strap, repeat this row until the desired length. Happy crocheting!

05.06.2025 - 08:55

country flag Susana Araujo skrifaði:

What does the subtitle "1 treble crochet in stitch bellow" means? Is this on the 2nd stitch from the previous treble crochet ? Or around the actual chain stitch?

01.06.2025 - 23:40

DROPS Design svaraði:

Dear Susana, in the stitch below means that the treble crochet in this round is worked inside the stitch (the treble crochet from the previous round), and not around the stitch; you can check herethe difference between around and in the stitch. Happy crochetting!

01.06.2025 - 23:54

country flag Svitlana skrifaði:

Hei ! Er det mulig å se diagram A1 og A2 til denne oppskriften ?

12.05.2025 - 10:37

DROPS Design svaraði:

Hej Svitlana, ja du finder diagrammerne nederst i opskriften. Diagrammet starter ved cirklen nederst :)

12.05.2025 - 11:10

country flag Aoife Maeve skrifaði:

Har dere instrukser på båndet med bilder som viser? jeg er en erfart hekler men det båndet gir ingen mening for meg

27.04.2025 - 12:59

DROPS Design svaraði:

Hei Aoife. Først hekler du et bånd med 12 staver til det måler 47 cm (= bunnen på vesken), så legger du dette båndet dobbelt og hekler kortsiden (12 staver) sammen med 1 stav i hver stav gjennom begge lag, slik at kortsiden nå består av 6 staver. Du har nå et bånd med 12 staver som er brettet dobbelt. Fortsett med å hekle staver over de 6 stavene ca 93 cm. Legg oppleggskanten (med 12 staver) dobbelt og sy igjen (kortsiden). Det doble båndet skal nå sys fast langs kanten på sirkelene. mvh DROPS Design

05.05.2025 - 10:23

country flag Helga Eitel skrifaði:

Ich vermisse bei den Videos immer die Erklärungen zu dem betreffenden Objekt. Wie nähe ich z. B. den gehäkelten Rand so an die beiden runden Taschenhälften dass es eine Kante ergibt ? Wie man Stäbchen usw. häkelt wird wohl jeder wissen der eine Anleitung sucht.

19.03.2025 - 15:02

country flag Sylvie Guilbot skrifaði:

Bonjour pour débuter combien de Brides dans le cercle magique ? merci

24.07.2024 - 08:35

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sylvie, le rond magique est presente ICI, mais faites-vous les brides au lieu des mailles serrees. Bon crochet!

24.07.2024 - 10:41

country flag Suzy skrifaði:

Bonjour, pourquoi mon disque gondole merci

14.06.2024 - 08:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Susy, pensez à bien conserver la bonne tension en largeur et en hauteur, ajustez la taille du crochet si besoin. Bon crochet!

14.06.2024 - 16:18

country flag SUJO83 skrifaði:

Bonjour je désire faire 2 ances pouvez vous me dire comment faire merci

10.06.2024 - 13:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sujo83, tout dépend de ce que vous souhaitez comme résultat, vous pourrez peut-être trouver l'inspiration parmi tous nos modèles de sacs (cf ici), certains d'entre eux ont 2 anses. Bon crochet!

11.06.2024 - 07:47

country flag Suzy skrifaði:

Bonjour que veut-on dire par répéter 12 fois A1 jusqu’à la fin du tour merci

04.06.2024 - 17:17

DROPS Design svaraði:

Bonjour Suzy, cela veut dire que vous devez crocheter 12 fois le diagramme A.1 en largeur, soit tout le tour, au 1er rang, A.1 = 1 bride, à la fin du 1er rang, vous aurez donc crocheté 12 brides, et ainsi de suite. Bon crochet!

05.06.2024 - 07:48