DOMINIQUE AMBROSET skrifaði:
Bonjour si je comprends bien le premier tour je fais 5 diminutions toutes les 35 mailles et je finis mon tour Au 2ème tour je tricote les diagrammes A1, A2 A3 A4 A1 normalement ensuite sur les 70 mailles suivantes je fais 10 diminutions, je tricote les mailles suivantes en A1 A2 A3 A4 A1 et je tricote les 35 mailles suivantes en faisant 5 diminutions et mon 2ème tour est fini avec 248 mailles et ensuite je commence mes diagrammes pour les torsades. Merci pour vos explications.
11.11.2024 - 10:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ambroset, pas exactement, vous tricotez d'abord 5-6 cm de côtes comme indiqué au tout début, puis, au tour suivant, vous allez diminuer à intervalles réguliers dans les mailles en côtes 2/2 (on diminue 10 m de chaque côté du pull: 5 au début du tour, 10 après les diagrammes et 5 à la fin du tour), et, en même temps, vous tricotez le 2ème rang des diagrammes qui va vous faire diminuer 2 m dans chaque A.2 et 2 m dans chacun des A.4. Vous allez donc diminuer sur le même tour les 20 m en tricotant en jersey et 8 m en tricotant le 2ème tour des diagrammes. Puis, au tour suivant, vous commencez A.5 à A.7. Bon tricot!
11.11.2024 - 12:40
DOMINIQUE AMBROSET skrifaði:
Bonjour Pour la taille XL Il y a un problème dans le nombre de mailles Une fois fait les côtes de 6 cm on fait des diminutions de 20 mailles Et on dit il reste 248 mailles. Or on a au départ 276 et si on enlève 20 mailles il reste 256 mailles. Pouvez-vous m éclaircir ? Merci
10.11.2024 - 08:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ambroset, notez que l'on doit diminuer au dernier rang des diagrammes A.2 et A.4: vous diminuez 2 m dans chacun de ces diagrammes soit 8 m au total (2 m dans chaque A.2 + 2m dans chaque A.4), vous avez donc 276-20-8=248 mailles. Bon tricot!
11.11.2024 - 09:10
Dominique AMBROSET skrifaði:
Bonjour Il y a un problème dans le nombre de mailles Une fois fait les côtes de 6 cm on fait des diminutions de 20 mailles Et on dit il reste 248 mailles. Or on a au départ 276 et si on enlève 20 mailles il reste 256 mailles. Pouvez-vous m éclaircir ? Merci
06.11.2024 - 17:39
Aaron Koljonen skrifaði:
Hei! Tarvitsin vähän apua yhdessä kohdassa. Kun ohjeessa lukee, että neulo mallineuletta piirrosten mukaisesta, neulo seuraavat 46 silmukkaa oikein ja kavenna tasavälein. Niin en oikein tajua tätä kohtaa ja sitten pitääkö minun neuloa kaikkien kohdassa mainituiden piirrosten 2. Kerros? Mukavaa päivää! Yst. Aaron
02.11.2024 - 12:20
Dominique AMBROSET skrifaði:
Merci pour vos explications mais sur le diagramme A2 et A4 au premier rang on tricote 2 mailles envers ensemble mais au rang suivant on ne tombe pas juste pour les 2 mailles envers
18.10.2024 - 16:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ambroset, on doit effectivement diminuer dans les côtes au 2ème rang des diagrammes A.2 et A.4 mais ce 2ème rang ne se tricote qu'après 5 ou 6 cm, autrement dit, au début, vous devez répéter juste le 1er rang pendant 5 à 6 cm (cf taille), puis diminuer comme indiqué dans les côtes pour le jersey et dans les diagrammes pour préparer aux torsades des diagrammes suivants. Bon tricot!
21.10.2024 - 07:16
Dominique AMBROSET skrifaði:
Bonjour comme je tricote en rond sur mon aiguille circulaire je n' ai donc pas d envers or sur votre diagramme vous précisez maille endroit sur endroit ou maille envers sur envers ?
18.10.2024 - 10:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ambroset, tous les rangs sont dessinés dans les diagrammes, ainsi, quand on tricote en rond, on tricote toujours sur l'endroit (1 case blanche = à l'endroit tous les tours, 1 croix = à l'envers tous les tours), mais quand on tricotera en allers et retours, il faudra suivre l'explications "sur l'envers" des symboles (1 case blanche = à l'envers sur l'envers, 1 croix = à l'endroit sur l'envers). Bon tricot!
18.10.2024 - 15:47
Lindsay Kiekens skrifaði:
Als ik blijf breien, en telkens 2averechts samen brei, kom het toch niet uit voor het aantal steken? want ik verminder telkens 4 steken per rij toch? Alvast bedankt
01.10.2024 - 18:46
Lindsay skrifaði:
Hey, Ik begrijp de opzet van het lijf niet, moet ik niet gewoon hele rondes in boordsteek breien tot ik aan 5cm kom? ik snap niet waarom er al een patroon aan te pas komt en hoe dit er dan gaat uitzien zoals op de foto.
01.10.2024 - 18:43
Dominique AMBROSET skrifaði:
Bonjour je suis obligée de la faire en Magic loop
01.10.2024 - 16:27
Dominique AMBROSET skrifaði:
Je suis obligée de tricoter en Magic loop Merci
01.10.2024 - 16:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ambroset, je ne suis pas bien sûre de comprendre, vous n'êtes absolument pas obligée de tricoter en magic loop, vous pouvez le faire si vous le souhaitez pour les manches et le col, mais vous pouvez également les tricoter en rond sur les aiguilles doubles pointes/la petite aiguille circulaire. Le dos et le devant (le bas du pull) se tricote en rond sur une aiguille circulaire de 80 cm, puis on divise pour les emmanchures et on termine chaque partie séparément en allers et retours sur l'aiguille circulaire. Bon tricot!
02.10.2024 - 08:00
Woven Willows#wovenwillowssweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með ísaumuðum ermum, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-17 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Framstykkið og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / hringprjóna, neðan frá og upp að byrjun á ermakúpu, ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Frágangur á stykki er útskýrður í mynstri. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli sem er brotinn tvöfaldur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 228-244-260-276-292-308 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-32-36-40 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, prjónið A.1, A.2, A.3, A.4, A.1, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 44-52-60-68-76-84 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, prjónið A.1, A.2, A.3, A.4, A.1, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-32-36-40 lykkjur, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið stroff og mynstur eins og í fyrstu umferð í A.1, A.2, A.3 og A.4 þar til stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 23-27-31-35-39-43 lykkjur og fækkið um 4-5-6-5-4-3 lykkjur jafnt yfir, prjónið 2. umferð í A.1, A.2, A.3, A.4, A.1, prjónið slétt yfir næstu 46-54-62-70-78-86 lykkjur og fækkið um 8-10-12-10-8-6 lykkjur jafnt yfir, prjónið 2. umferð í A.1, A.2, A.3, A.4, A.1, prjónið slétt yfir næstu 23-27-31-35-39-43 lykkjur og fækkið um 4-5-6-5-4-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Það eru 204-216-228-248-268-288 lykkjur í umferð. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið, 1 í byrjun umferðar og 1 eftir 102-108-114-124-134-144 lykkjur (= í hliðar). Prjónið síðan þannig: * Prjónið 19-22-25-30-35-40 lykkjur sléttprjón, A.5, A.6, A.7, A.6, A.5, 19-22-25-30-35-40 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri (þá kemur snúningur í kaðli til með að koma frá réttu þegar stykkið er prjónað fram og til baka). Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Prjónið þannig: Byrjið 2-3-4-5-6-7 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, fellið af 4-6-8-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 2-3-4-5-6-7 lykkjur á undan seinni merkiþræði, fellið af 4-6-8-10-12-14 lykkjur fyrir handveg og prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Framstykkið og bakstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 98-102-106-114-122-130 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.7 = 90-94-98-106-114-122 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 31-33-34-38-41-45 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 4 lykkjur yfir kaðal í A.5 = 27-29-30-34-37-41 lykkjur. Fellið af í næstu umferð. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 98-102-106-114-122-130 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.7 = 90-94-98-106-114-122 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju frá hálsmáli = 31-33-34-38-41-45 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 4 lykkjur yfir kaðal í A.5 = 27-29-30-34-37-41 lykkjur. Fellið af í næstu umferð. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Fitjið upp 64-68-68-68-72-72 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-18-18-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 48-50-50-52-54-56 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 10-10-12-12-10-13 cm, aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 4-3½-3-2½-2½-2 cm alls 10-11-12-13-14-14 sinnum = 68-72-74-78-82-84 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 50-49-49-46-44-43 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka frá merkiþræði þar til ermin mælist 51-51-51-49-48-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-2-2-3-4-4 cm efst á erminni. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3,5 og DROPS Air. Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 100 til 116 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt lykkjum af þræði) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í ca 10 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wovenwillowssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.