Davina skrifaði:
When increasing on the 21sts for the yoke, do we carry on increasing these 2 sts on the next rounds, or is this only for the first round. Thank you
23.02.2024 - 18:44DROPS Design svaraði:
Dear Davina, these increases are worked only on the first round on yoke; then you will only increase for raglan before/after A.1. Happy knitting !
26.02.2024 - 07:19
Debora skrifaði:
Buonasera, nella spiegazione del collo non manca la parte a coste? Bel modello, grazie
11.02.2024 - 23:51DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, grazie per la segnalazione: abbiamo aggiornato il modello. Buon lavoro!
13.02.2024 - 21:52
Joske skrifaði:
Ik zou graag een verhoogde achterhals breien. Hoe pas ik dit toe in dit patroon, ivm siersteken in de raglan. Mvg Joske
11.02.2024 - 09:24DROPS Design svaraði:
Dag Joske,
Helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Je zou verkorte toeren kunnen breien en er rekening mee houdend dat het patroon op de verkeerde kant andersom gebreid moet worden.
14.02.2024 - 20:21
KAROLINA skrifaði:
FIERY KISS
21.01.2024 - 11:26
LOHR Frédérique skrifaði:
Baiser volé
18.01.2024 - 19:46
Ann-Christine Corneliusson skrifaði:
Rosenblomma
18.01.2024 - 16:34
Raisa skrifaði:
Red beauty
18.01.2024 - 14:22
Red Sunrise#redsunrisesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri, klauf í hliðum og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-10 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið þannig í hverri umferð: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið þannig í hverri umferð: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af þræði eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á eftir/undan A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á UNDAN A.1: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjón aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR A.1: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Lykkjum er fækkað í hvorri hlið á fram- og bakstykki með því að fækka lykkjum hvoru megin við einingu í sléttprjóni á milli A.1 á framstykki og A.1 á bakstykki. Byrjið strax eftir A.1 á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í hinni hliðinni á fram- og bakstykki (4 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-124-128-132 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Setjið 1 merki í þessa umfereð. Berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fyrstu umferð frá hægri öxl að aftan þannig: Prjónið 21 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (ermi), prjónið A.1, prjónið 15-17-19-19-21-23 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-0-2-2-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.1 (framstykki), prjónið 21 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir (ermi), prjónið A.1, prjónið 15-17-19-19-21-23 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-0-2-2-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.1 = 112-116-120-136-140-148 lykkjur. Síðan heldur mynstrið áfram hringinn með þessum hætti jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir laskalínu á eftir/undan A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (8 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 5-6-10-13-12-11 sinnum = 152-164-200-240-236-236 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið út með þessum hætti 24-26-24-22-26-30 sinnum á framstykki/bakstykki (12-13-12-11-13-15 sinnum á ermum). Á eftir síðustu útaukningu eru 296-320-344-372-392-416 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-24-25-27-29 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 57-61-67-73-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi (þetta eru lykkjurnar á milli A.1 á bakstykki og A.1 á framstykki), fitjið upp 10-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-99-105-113-121-131 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 57-61-67-73-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 91-99-105-113-121-131 lykkjur eins og áður (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-234-258-278-302 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 10-10-12-16-18-20 lykkjum undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir síðar þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón og haldið áfram með A.1 eins og áður á framstykki og bakstykki, þær 10-10-12-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hliðum eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm frá skiptingunni = 194-210-226-250-270-294 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-20-21-21-21 cm frá skiptingunni. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 97-105-113-125-135-147 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður þar sem aukið er út um 2-2-3-3-4-5 lykkjur í hvorri hlið á milli merkiþráða og A.1 og 16-18-18-18-18-20 lykkjur jafnt yfir mitt að aftan á milli lykkja í A.1 – munið eftir ÚTAUKNING = 117-127-137-149-161-177 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjum I-cord. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Setjið 57-61-67-73-75-77 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-89-93-97 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-16-18-20 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkju mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverjum 7-5½-3½-2½-2½-2 cm alls 5-6-9-13-14-15 sinnum = 57-59-61-63-65-67 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-37-38-37-36-34 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskuðu máli fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 11-11-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir = 68-70-74-76-78-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-43-44-43-42-40 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redsunrisesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.